Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1983, Page 44

Íþróttablaðið - 01.02.1983, Page 44
Breytingar á deildinni til bóta Handknattleiksmaöur ársins Kristján kominn í skotstöðu. mikinn skilning. Það er hins veg- ar ekki alltaf hægt að greiða allt, jafnvel þó vilji og geta væri til þess. Þetta er til dæmis mikil fórn fyrir þá sem eru í námi. I undir- búning og leiki landsliðsins í vet- ur hafa farið um það bil tveir mánuðir, varla minna, og ef þetta kostar námsmenn það að þeir þurfti að fresta námi um einn vetur, sem vel getur gerst, þá eru þetta dýrir tveir mánuðir.“ — En er þetta erfiðisins virði? „Já, annars væri ég ekki að þessu. Þetta er mikið erfiði, en það verður hver og einn að gera upp við sjálfan sig, hvort hann vill gera þetta eða ekki, og ég sé ekki eftir þeim tíma og erfiði sem í handboltann fer.“ — Flestir eru líklega sammála um að landsliðið nýtur góðs af breyttu fyrirkomulagi á íslands- mótinu. En hvað með íslands- mótið sjálft, er það eins skemmtilegt nú? „Ég er þeirrar skoðunar, að þegar stórmót eins og B-keppnin eru annars vegar, þá eigi að fórna miklu fyrir undirbúning þeirra. Karla-landsliðið í handknattleik er óumdeilanlega „andlit“ þess- arar íþróttagreinar, jafnt hér inn- Kristján í leik með landsliðinu en með því hefur hann verið mjög at- kvæðamikill. an lands sem utan, og við eigum að leggja metnað okkar í að eiga gott landslið. Þvi verður varla gert of mikið fyrir landsliðið þegar svona stendur á. — Það er á hinn bóginn alveg rétt, að fyrstu- deildarkeppnin hefur liðið fyrir þetta í vetur. Fyrir þjálfara og leikmenn líður, alltof langur tími milli leikja á mótinu, og erfitt er að halda uppi þeim takti sem búið var að koma upp um miðjan vetur. Nú finnst mér þetta rétt- lætanlegt, en næsta vetur til dæmist, þá eigum við að leggja meiri áherslu á íslandsmótið, enda er þá engin B-keppni á dagskrá.“ — En hvað um breytingamar á fyrstu deildinni, fjögurra liða keppnin til dæmis, ertu ánægður með þessar breytingar? „Já, ég held að þær séu til bóta, en þó má margt betur fara. Mér finnst til dæmis of lítið lagt upp úr því hverjir sigra í fyrri um- ferðinni, hvaða lið verður efst áður en fjögurra liða keppnin hefst, skiptir nú nánast engu máli. Aðalatriðið er að komast í eitt af fjórum efstu sætunum. Ég held að mótið yrði skemmtilegra og leikimir meira spennandi ef H.S.Í. gerði eitthvað fyrir þennan fyrri hluta, veitti myndarleg verðlaun og hvetti menn til dáða. Verði þessu ekki breytt á ein- hvem hátt veit ég ekki nema ég væri fylgjandi eins konar úrvals- deildarfyrirkomulagi eins og í körfuboltanum, þar sem sex lið til dæmis lékju fjórfalda umferð. En við erum að þreifa okkur áfram, þetta kemur smám saman.“ 44

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.