Íþróttablaðið - 01.02.1983, Blaðsíða 47
Siglingamaður ársins
Tvítugur Kópavogsbúi
„siglingarmaður ársins”
í þriðja sinn
Tvítugur Kópavogsbúi,
Gunnlaugur Jónasson, var til-
nefndur „siglingamaður árs-
ins 1982“. Þó Gunnlaugur sé
ungur að árum er hann löngu
frægur meðal siglingamanna.
Titillinn „siglingamaður árs-
ins“ er honum ekkert nýnæmi,
því titilinn hlaut Gunnlaugur
fyrst árið 1979, aftur 1980 og
nú í þriðja sinn 1982.
— Það kom mér ekki alveg
á óvart, að ég skyldi hljóta tit-
ilinn nú, þó sannarlega kæmu
fleiri til greina, sagði siglinga-
kappinn ungi í spjalli við
íþróttablaðið.
Gunnlaugi er ekki um það
gefið að miklast af sigrum
sínum eða yfirleitt að lýsa
þeim. Hann leyndi því þó
ekki, að sigur hans í opna
flokknum á íslandsmótinu
1982 hafði komið honum mest
á óvart og var jafnframt harð-
sóttastur og um leið sætastur.
Sá sigur Gunnlaugs vannst í
síðustu keppni af fimm á
mótinu. í þessum opna flokki
kepptu menn á öllum tegund-
um báta, stórum og litlum,
eftir sérstökum forgjafarregl-
um. í markið sigldi Gunn-
laugur fyrstur allra á sínum
Laser-báti, fjögurra metra
fleyi með einu segli.
Auk sigurs og íslandsmeist-
aratitils í opna flokknum varð
—Hyggst freista
gæfunnar
á stór-
mótum erlendis
í sumar
Gunnlaugur íslandsmeistari í
flokki Laserbáta.
— Laserbátar eru sérlega
liprir og skemmtilegir, en
krefjast einnig hvað mest allra
báta af siglingamanninum,
Þessi bátategund á hvað
mestum vinsældum að fagna
meðal siglingamanna heims. í
þeim flokki eru margir af
bestu siglingamönnum heims,
keppnin mjög hörð og geta
manna á hvað hæstu stigi,
sagði Gunnlaugur.
Gunnlaugur byijaði að
fylgjast með siglingum á
Kópavogi er hann var barn að
aldri og hefur verið þáíttak-
andi í siglingum frá 13 ára
aldri.
Á sl. sumri tók umheimur-
inn verulega að opnast fyrir
Gunnlaugi á þessu sviði.
Hingað kom Evrópumeistar-
inn í Laser flokki, Stefan
Myralf frá Danmörku, og
sagði íslenskum siglinga-
mönnum til í þrjá daga. Nutu
margir góðs af og öðluðust
nýjan skilning á siglinga-
íþróttinni. í kjölfar komu
Gunnlaugur Jónasson — fremstur íslenskra siglingamanna.
47