Íþróttablaðið - 01.02.1983, Page 50
„Golfmaður ársins 1982”
Byrjaði að slá golfkúlu
með kylfu úr steypujárni
‘1 Sigurður Pétursson — íslandsmeistari og ,,golfmaður érsins"
1982.
Golfmaður ársins 1982 var
kjörinn Sigurður Pétursson í
Golfklúbbi Reykjavíkur.
Hann er ekki nema 22 ára en
hefur leikið og æft golf meira
en hálfa sína ævi.
— Maður er auðvitað
ánægður að hljóta svona titil
því í honum felst mikil viður-
kenning frá stjórn Golfsam-
bandsins. Ég átti frekar von á
því að hljóta titilinn, að
minnsta kosti að það yrði
annað hvort Björgvin Þor-
steinsson eða ég. íslands-
meistaratitill minn hefur
sjálfsagt vegið þungt á vogar-
skálunum og kannski ekki síst
það, að ég átti einna jafnbesta
skor allra golfmanna,“ sagði
Sigurður.
Á liðnu ári vann Sigurður
mörg mót og var ætíð meðal
fremstu hlyti hann ekki sigur-
inn. Þá fór hann í sveit íslands
á HM í Sviss. Heildarútkoman
varð þolanleg, þó sveitin öll
léki slaklega fyrsta keppnis-
daginni og væri að honum
loknum í 3. neðsta sæti.
— Síðan tókum við að tína
upp önnur lið og unnum
okkur upp í 26. sæti. Hefðum
við leikið alla dagana jafn vel
og síðustu þrjá, liggur nokkuð
ljóst fyrir að við hefðum náð
um 20. sæti og verið um mið-
bik keppnisþjóða.
Sigurður var 11 ára þegar
hann gerðist félagi í GR og
hóf reglubundnar æfingar í
Grafarholti.
— hefur nánast
alist upp á
golfvellinum
— Ég átti heima í Árbæ
örskammt frá golfvellinum.
Og þó ég gengi í klúbbinn
ellefu ára hafði ég og fleiri
slegið golfkúlur áður. Við
bjuggum okkur til kylfur úr
steypujárni og lékum okkar
golf rétt heima við húsin þar
sem við áttum heima. Það
voru nokkuð margir strákar í
þessu, en ég held að þeir séu
flestir hættir, að minnsta kosti
er enginn þeirra í keppni.
Sigurður sagðist æfa helst á
hverjum degi. Hann slær
mikið á æfingabrautum og
Golfmaður ársins
1973: Björgvin Þorsteinsson, GA
1974: Sigurður Thorarensen, Keili
1975: Ragnar Ólafsson, GR
1976: Þorbjörn Kjærbo, GS
1977: Björgvin Þorsteinsson, GA
1978: Gylfi Kristinsson, GS
1979: Hannes Eyvindsson, GR
1980: Hannes Eyvindsson, GR
1981: Ragnar Ólafsson, GR
1982: Sigurður Pétursson, GR
lagði t.d. á sl. ári mesta rækt
við „stutta leikinn“ þ.e. uppá-
skotin og púttin. Frægastur er
hann hins vegar fyrir högg-
lengd, en hún byggist fyrst og
fremst á góðri sveiflu.
— Ég held að ég megi
þakka áðurnefndum æfingum
mínum íslandsmeistaratitil-
inn. Þegar Landsmótið fór
fram var ég í góðri æfingu og
50