Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1983, Page 51

Íþróttablaðið - 01.02.1983, Page 51
Sigurður Pétursson púttin tókust kannski betur en nokkru sinni. — Var íslandsmeistara- titillinn torsóttur? — Keppnin var hörð og réðist á síðasta (fjórða) degi mótsins. Ég náði forystu í upphafi og hélt henni tvo fyrstu dagana. Á þriðja degi náði Ragnar Ólafsson foryst- unni og hafði eitt högg í for- skot er lokakeppnin hófst. Þá gekk allt á afturfótunum hjá honum. Ég endurheimti for- ystuna þegar á fyrstu braut og titillinn var í höfn. — Hvað er íslenskum kylf- ingum erfiðast? — Veðráttan er versti óvinurinn og einnig hve leik- og keppnistímabilið er hér stutt. Kylfingar allra annarra landa eiga lengra tímabil og þeir sem telja sig búa við erfiða veðráttu, eins og t.d. Svíar, senda landsliðsmenn sína suður í lönd til æfinga á Spáni eða annars staðar þar sem veðrið er gott. Þar skortir ekki fjármagnið. Slíkan mun- að getum við ekki leyft okkur. — Ergolfíþróttin á uppleið á íslandi? — Þróunin er góð og stöðug. Það er sífellt að stækka sá hópur ungra kylfinga, sem byrjuðu mjög ungir og hafa nánast alist upp við golfiðkun og mótast með golfinu. Flestir okkar landsliðsmenn síðustu tvö árin byrjuðu mjög ungir. Landslið okkar er stöðugt að verða sterkara. Það vantar kannski herslumuninn ennþá. Á EM í Skotlandi 1981 vant- aði nokkur högg upp á að okkar lið kæmist í A-riðil þ.e. yrði meðal bestu þjóða. Leik- urinn var frábær fyrri daginn, en velgengnin steig liðsmönn- um til höfuðs og allt fór á verri veg síðari daginn. En liðið er að vaxa af reynslu og getu og allt á góðri þróunarbraut. — Við höfum mjög góðan þjálfara þar sem John Nolan er, en ég og aðrir kylfingar njóta góðs af honum og einnig hefur Þorvaldur Ásgeirsson gert mikið fyrir golfið, sagði Sigurður. Þá hefur Kjartan Pálsson, einvaldur um val landsliðsins og undirbúning þess, stór áform á prjónunum, og landsliðið lítur því fram- tíðina björtum augum. — Hvað er helst á döfinni í sumar? — Stærst er Evrópumótið í París um miðjan júní, en á heimavelli er um svipaða mótaskrá að ræða og verið hefur eða aragrúa móta. Það verður því ekki slegið slöku við æfingar og þrekþjálfun til undirbúnings stórra átaka er hafin, sagði „golfmaður ársins 1982“. —A.St. Sigurður Pétursson fagnar íslandsmeistaratitlinum s.l. sumar. Með honum á myndinni er Sólveig Þor steinsdóttir er varð íslandsmeistari í kvennaflokki. 51

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.