Íþróttablaðið - 01.02.1983, Side 53
Einar Ólafsson
um, enda var aðalkeppinaut-
urinn Finnur Gunnarsson frá
Ólafsfirði ekki í formi.
— Og hvað er nú fram-
undan?
— Æfingar af fullum
krafti, enda verður landsmót-
ið hér á ísafirði og við ætlum
ekki að láta okkar hlut eftir
liggja. Framundan eru ýmis
punkta- eða bikarmót og ætl-
unin er að standa sig og gefa
hvergi eftir; helst að verða
bikarmeistari.
— En á erlendum vettvangi?
— Ég er nýlega kominn frá
hálfsmánaðardvöl ytra. Við
vorum fyrst í Austurríki í 3—4
daga. Þar rigndi svo mikið að
við flúðum til Ítalíu. Þar tók-
um við þátt í 30 km göngu í
World Cup keppninni og urð-
um um miðbik keppenda-
hópsins. Ingólfur Jónsson frá
Reykjavík var 1 mín. og 20
sekúndum á eftir mér. Einar
Ingvarsson keppti í unglinga-
flokki.
Skíðamaður ársins
1973: Haukur Jóhannsson, Akureyri
1974: Magnús Eirfksson, Fljótum
1975: Jórunn Viggósdóttir, Rvk.
1976: Sigurður Jónsson, ísaf.
1977: Sigurður Jónsson, Isaf.
1978: Steinunn Sæmundsdóttir, Rvk.
1979: Steinunn Sæmundsdóttir, Rvk.
1980: Bjöm Þór Ólafsson, Ólafsf.
1981: Ámi Þór Ámason, Rvk.
1982: Einar Ólafsson, Isaf.
Síðar héldum við til
Austurríkis, þar sem aftur
hafði snjóað. Við kepptum í
World Cup keppni í Reit im
Winkl, en þar voru allir
fremstu göngumenn heims
meðal þátttakenda. Þama
gekk mér ekki nógu vel, færið
klikkaði og Ingólfur var 1 mín
og 10. sekúndum á undan
mér. Við vorum um miðjan
hóp keppenda. Þaðan komum
við heim í rigninguna og
veðurofsann hér.
Núna er ég að undirbúa mig
fyrir þátttöku í HM keppni
lögreglumanna á skíðum, en
ég leysti af í lögreglunni á ísa-
firði sl. sumar og hef því
keppnisrétt.
— Við verðum viku í Shef-
field í Austurríki við æfingar
fyrir mótið, sem fram fer í
Tento á Ítalíu. Við Kristján
Ragnarsson keppum í göngu
en Bjöm Víkingsson Akureyri,
Valur Jónatansson ísafirði og
Þröstur á Húsavík keppa í
Alpagreinum. Ingólfur Jóns-
son göngugarpur fylgir okkur,
en við Ingólfur höldum eftir
HM mót lögreglumanna til
Oslo en þar fer fram HM mót.
Þar spreytum við okkur enn
við bestu göngumenn heims.
Einari göngukappa er fleira
til lista lagt en skíðakunnátt-
an. Hann var í unglingalands-
liði íslands (16—18 ára) í
knattspymu og lék með því
þrjá landsleiki. Þá hefur hann
einnig stundað júdó með góð-
um árangri og á tvo íslands-
meistaratitla sem slíkur í
unglingaflokki 65 kg.
Einar hefur nú endanlega
valið skíðaíþróttina og hyggst
stunda hana eina. Hann var
þó kvaddur til sl. sumar til
knattspymuæfinga, þegar
mikil meiðsli háðu 1. deildar-
liði ísfirðinga. Einarvartil taks
en komst aldrei nema á vara-
mannabekk.
— Ég æfi 15—20 tíma í
viku, helst tvisvar á dag á
haustin meðan þrekið er byggt
upp með göngu á hjólaskíð-
um, hlaupum og þrekæfing-
um.
— Hvar kreppir skórinn
helst hjá ísl. skíðamönnum?
— Peningamálin eru erfið,
kannski erfiðust. Segja má
einnig að þjálfaraskortur sé en
vegna veðurfarsins og ólýsan-
legra erfiðleika af þess völd-
um, næst enginn árangur að
ráði nema æfa erlendis helst
hálft árið. Við leggjum mikið
af mörkum sjálfir peninga-
lega, en styrkir hafa vaxið með
betri árangri og mikið munar
um það að fá frían útbúnað
skíði, skó og galla og fleira frá
stórfyrirtækjum eins og Fisher
og Adidas. Én skíðaíþróttin er
dýr þeim sem vilja ná topp-
árangri, sagði þessi ungi
„skíðamaður ársins 1982“.
53