Íþróttablaðið - 01.02.1983, Qupperneq 64
Ingi Þór Jónsson
Ingi Þór á fullri ferð. Hann er mjög fjölhæfur sundmaður og á islandsmet í flugsundi, fjórsundi, bak-
sundi og skriðsundi.
— Já, sundið á íslandi er á
öruggri uppleið. Það eru góðir
menn við stjómvölinn og
betra skipulag á málum en
áður. Afrekin hjá sundfólkinu
batna og allt er á uppleið,
sagði Ingi Þór.
— Og hvað er framundan
hjá þér?
Sundmaður ársins
1973: Friðrik Guðmundsson, KR
1974: Þórunn Alfreðsdóttir, Ægi
1975: Þórunn Alfreðsdóttir, Ægi
1976: Sigurður Ólafsson, Ægi
1977: Þórunn Alfreðsdóttir, Ægi
1978: Þórunrj/Mfreðsdóttir, Ægi
1979: Hugi S. Harðarson, Self.
1980: Ingi Þór Jónsson, ÍA
1981: Ingólfur Gissurarson, ÍA
1982: Ingi Þór Jónsson, ÍA
— Æfingar af fullum krafti
með það fyrir augum að ná
toppárangri á Evrópumótinu í
Róm í sumar.
— Hvaða uppáhaldssund-
grein á sundkappi, sem á ís-
landsmet í þremur sundað-
ferðum?
— Mér þykir 200 metra
flugsund alltaf skemmtilegast,
ég get ekki að því gert.
Ýmsum finnst þetta erfiðasta
keppnisgrein af öllum. Það
finnst mér ekki. Það er alltaf
gaman að glíma við 200 metr-
ana á flugi.
— H ver er ef tirminnilegasta
keppni þín?
— Mest áhrif á mig hafði
þátttakan í EM í Júgóslavíu
1981 og kannski það helst að
sjá alla þessa frægu sund-
menn, sem maður hafði heyrt
og lesið um.
— Áttu þér eitthvert átrún-
aðargoð í sundinu?
— Eftirminnilegasti sund-
maður sem ég hef séð er
Rússinn Vladimir Salnikov,
sem á heimsmetin í 400 og
1500 m skriðsundi. Hann er
aldeilis stórkostlegur sund-
maður, yfirvegaður og nánast
fullkominn, sagði Ingi Þór.
Fullyrða má, að Ingi Þór er
þessum kostum búinn öðrum
íslenskum sundmönnum frek-
ar. Án yfirvegunar og góðs
„slurks“ af fullkomnun setur
enginn 51 íslandsmet í sundi á
tveimur árum.
—A.S.
64