Íþróttablaðið - 01.02.1983, Page 66
Leifur Harðarson
vel sé. Þó aukið fjör sé að fær-
ast í unglingaflokkana, mætti
það þó vera enn meira. Okkur
vantar hávaxna unglinga sem
vilja hefja æfingar 12 ára eða
yngri. Á þann hátt einan gæt-
um við byggt upp gott lands-
lið. Okkar landsliðsmenn nú
eru að meðaltali nálega 20 cm
lægri en leikmenn toppliða.
Hér eru landsliðsmenn allt
niður í 1,68 að hæð en erlendis
þetta 1.90—2 metrar.
Blakmaður ársins
1973: Þór Sigþórsson, fS
1974: Halldór Jónsson, ÍS
1975: Indriði Amórsson, ÍS
1976: Guðmimdur Pálsson, Þrótti
1977: Valdemar Jónasson, Þrótti
1978: Jóhanna Guðjónsd., Völsungi
1979: Haraldur G. Hlöðverss.,
UMFL
1980: LeifurHarðarson, Þrótti
1981: Friðjón Bjamason, IS
1982: Lcifur Harðarson, Þrótti
— Við höfum leikið samtals
35 landsleiki í blaki. Einn
leikmannanna hefur verið
með í þeim öllum,
Guðmundur Pálsson. Hann
hóf þó ekki æfingar fyrr en
hann var um tvítugt. Hinn
trausta bakgrunn æskuáranna
og nánast uppeldi í blaki
skortir í íslenska landsliðið.
Þetta þurfum við að laga. Eina
þjóðin, sem íslenska landsliðið
hefur unnið til þessa í blaki
eru Færeyingar. Unglingalið
þeirra sigrar hins vegar okkar
unglinga. Færeyingar hafa nú
hætt að leika landsleiki full-
orðinna, ætla að bíða með það
þar til unglingalið þeirra tekur
við A-landsliðshlutverkinu.
Þetta verður að teljast skyn-
samleg stefna.
— Hvað átt þú marga
landsleiki að baki?
— Mírúr eru 24 talsins, þar
af 4 á Norðurlandamótum —
fyrst 1976. Allir þessir leikir,
nema tveir, voru leiknir er-
lendis og allir hafa tapast —
nema leikir gegn Færeying-
um. Blak á Norðurlöndum
hefur verið í mjög föstum
skorðum. Finnar eru bestir og
eiga lið á heimsmælikvarða,
síðan koma Svíar, þá Danir,
Norðmenn og íslendingar.
Þessi röð hefur ekki haggast
lengi.
— Ef þú ættir eina ósk til
handa blakíþróttinni?
— Best teldi ég að fá er-
lenda þjálfara. Það hefur
Þróttur lengi reynt, auglýst
víða, en varla fengið svar.
Með erlendum þjálfurum
myndi breiddin aukast von-
andi. Nú eru Þróttur og
íþróttafélag stúdenta í sér-
flokki. Ekkert hinna liðanna
nálgast þau að getu. íslensk
félög hafa fengið tvo sænska
þjálfara (annar fæddur ís-
lendingur) og hér starfar nú
kínverskur þjálfari hjá Víkingi
og landsliðinu. Allir hafa þeir
haft góð áhrif og Kínverjinn
þó langmest og er mjög góður.
Við erum í framför, þó of hægt
miði kannski.
— Framtíðin hjá þér?
— Ég verð með á fullu, æfi
eins og verið hefur og mun
halda áfram þjálfun kvenna-
flokkanna, segir Leifur
Harðarson. Hann á oftast
langan vinnudag, er íþrótta-
kennari Seljaskóla, en æfir og
þjálfar blak fram eftir öllum
kvöldum og er oftast að til
11.30 á kvöldin.
Á sumrin þegar hann á frí
frá blaki leikur hann og keppir
í knattspymu og þjálfaði
knattspymulið sl. sumar.
En með sóma ber hann tit-
ilinn „blakmaður ársins
1982“. A.S.
66