Bændablaðið - 16.07.2020, Side 1

Bændablaðið - 16.07.2020, Side 1
Ísblá augu í Sölvholts- sauðfé 7 14. tölublað 2020 ▯ Fimmtudagur 16. júlí ▯ Blað nr.567 ▯ 26. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is Þessi bröndótta kýr lét sér fátt um finnast þegar ljósmyndari Einangrunarstöðvarinnar á Stóra-Ármóti smellti af mynd af nýbornum kálfi af Angus-kyni þar sem hann sýgur móður sína. Faðirinn er Emil av Lillebakken, sem er eitt af bestu Angus-nautunum sem eru í boði í Noregi, með 120 í kynbótaeinkunn og gefur sérlega mikinn vaxtarhraða og kjötgæði. Í vor fæddust 6 Angus-kálfar á einangrunarstöðinni undan Emil, þrjár kvígur og þrjú naut. Fæðingarþungi á kvígunum var um og yfir 40 kg en nautin voru þyngri og upp undir 50 kg. Þá hafa fæðst 12 Angus-naut frá upphafi og 17 kvígur á einangrunarstöðinni, þar sem grunnurinn er lagður að nýjum holdanautastofni fyrir íslenska bændur þessi misserin. Mynd / Halla Eygló Sveinsdóttir Allar forsendur tollasamnings við ESB eru brostnar – Endurskoða þarf úthlutunarkerfi tollkvóta og gera nýjan viðskiptasamning við ESB að mati bænda Aukning tollkvóta við innflutn- ing landbúnaðarvara og ný aðferð við úthlutun þeirra, sem leitt hefur til lægra útboðsverðs, kemur illa við innlenda búvöru- framleiðendur. Áhrifanna er farið að gæta í afurðaverði til bænda en t.a.m. lækkuðu allar afurðastöðvar nýverið skilaverð á kýrkjöti til bænda um 10–12% með þeim skýringum m.a. að birgðasöfnun á hakki vegna stór- aukins innflutnings væri um að kenna. Bændasamtök Íslands hafa óskað eftir fundi með Bjarna Benediktssyni fjármála- og efna- hagsráðherra, sem fer með málefni tollgæslu í landinu, og Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra, sem er ábyrgur fyrir utanríkisvið- skiptum, til þess að ræða um þá alvarlegu stöðu sem íslenskur l a n d b ú n a ð u r stendur frammi fyrir. Samtökin hafa einnig bent ítrekað á að eftirliti með innflutningi sé ábótavant og segja að það sé grundvallaratriði að stjórnvöld styðji við íslenskan landbúnað með því að tryggja að tollvernd og eft- irlit skili árangri. Samkeppnisstaðan veikist Bændasamtökin sögðu í bréfi til ráðherranna að tollvernd hefði ekki lengur tilætluð áhrif og að samkeppnisstaða ís- lenskrar matvælaframleiðslu héldi áfram að veikjast yrði ekk- ert að gert. „Bændur verða fyrir kjaraskerðingu og neytendur njóta ekki ávinnings af fyrirkomulaginu. Það liggur fyrir að framleiðsluhvati bænda hér á landi minnkar jafnt og þétt ef þessari þróun verður ekki snúið við,“ segir í bréfi BÍ. Gögn úr rekstri búgreina eins og naut- griparæktar, svína- og kjúklinga- ræktar sýni svart á hvítu að staðan sé alvarleg. Stóraukning í innflutningi Innflutt magn erlendra búvara á lágum tollum hefur aukist hratt síðustu ár. Árið 2010 voru flutt inn 144 tonn af osti en í fyrra voru þau 602. Sömu sögu er að segja af inn- flutningi af svínakjöti. Á tímabilinu 2012 til 2019 jókst innflutningur úr 450 tonnum í 2.200 tonn. Árið 2015 voru flutt inn 920 af beinlausu kjúklingakjöti en í fyrra voru þau 1.380. Bændur hafa bent á að áhrifin af þessum mikla innflutningi séu þau að innlend framleiðsla nái ekki að vaxa og dafna auk þess sem hún verður óhagkvæmari. Arnar Árnason, formaður Lands- sambands kúabænda, segir í grein sem birt er í blaðinu á bls. 39 að allar forsendur tollasamnings sem gerður var við Evrópusambandið árið 2015 séu brostnar. Forsvarsmenn bænda hafi raunar alla tíð mótmælt honum og varað við afleiðingum hans. Arnar bendir á að útganga Bretlands úr ESB breyti myndinni töluvert og ekki síst áhrif þess að færri ferða- menn koma hingað til lands en áður í kjölfarið á kórónuveirunni. Arnar segir að tvennt þurfi að koma til ef við ætlum ekki að láta innflutt nautakjöt koma í stað íslenskrar framleiðslu. „Endurskoða þarf hið nýja úthlutunarkerfi tollkvóta og gera þarf nýjan viðskiptasamning við ESB um landbúnaðarvörur sem endurspeglar betur raunþörf mark- aðarins. Stjórnmálafólk getur ekki komið fram með fögur fyrirheit um stuðning við íslenskan landbúnað og skrifað fjölda greina um mik- ilvægi íslenskrar matvælafram- leiðslu, ásamt því að ráðast í átak þar sem neytendur eru hvattir til að velja íslenskt og styðja við íslenska framleiðslu, á sama tíma og rekstr- argrundvelli matvælaframleiðenda er kippt undan þeim með ódýrum innfluttum matvælum sem bera litla sem enga tolla,“ segir Arnar. /TB Þriðja kynslóð í búskapnum Horfa með bjartsýni til næsta sumars 28–3126–27

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.