Bændablaðið - 16.07.2020, Side 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. júlí 2020 45
Swaansbeton hefur í meira en
hálfa öld verið leiðandi fyrirtæki
í þróun, hönnun og framleiðslu
gólfa í gripahús.
Gólfin frá Swaansbeton eru
framleidd í nútíma legum
verksmiðjum í Heeze og
Weert í Hollandi undir ströngu
gæðaeftirliti og í samræmi við
reglugerðir. Hönnun gólfanna
tekur mið af miklu burðarþoli,
stömu en slitsterku yfirborði og
auðveldri losun mykju og hlands.
Hafðu samband:
bondi@byko.is
byko.is
GÓLF Í GRIPAHÚS
50 ÁRA
REYNSLA
NAUTGRIPIR,
SVÍN OG SAUÐFÉ
Aberdeen Angus nautkálfar til sölu:
Tilboð óskast
Sæðistaka hófst í lok júní úr þeim
fjórum Aberdeen Angus nautum
sem fæddust síðasta sumar. Allir
hafa þegar gefið sæði og það er
gott að eiga við gripina enda var
lögð meiri vinna í að temja þá
en fyrri hóp. Nautin eru róleg
og geðgóð. Nautin eru boðin til
sölu og er lýsing á þeim á heima-
síðu Búnaðarsambandsins og í
Bændablaðinu hér til hliðar. Þau
verða ekki afhent nýjum eigendum
sínum fyrr en nægjanlegu magni
af sæði hefur verið safnað úr
þeim. Nautin hafa vaxið og dafn-
að vel og er meðal þungaaukning
þeirra tæp 1580 g á dag fyrstu 11
mánuðina.
Söluferli nautanna
Ákveðið var að nota sömu útboðs-
reglur og í fyrra en óskað er eftir
skriflegum tilboðum í hvert naut.
Hverjir mega bjóða í kálfana?
Rekstraraðilar í nautgriparækt –
bæði einstaklingar og lögaðilar –
geta sent inn tilboð uppfylli þeir
eftirfarandi skilyrði:
1. Séu skráðir eigendur eða
leigjendur lögbýlis og með
lögheimili á Íslandi.
2. Stundi nautgriparækt og reki
nautgripabú á lögbýlinu með
virkt virðisaukaskattsnúmer
og starfsemi þeirra falli undir
atvinnugreinanúmer 01 og 02 í
atvinnuvegaflokkun Hagstofu
Íslands, sbr. ÍSAT2008, þó
ekki starfsemi í undirflokk-
um 01.61, 01.62, 01.63, 01.64,
01.70 og 02.40.
3. Séu þáttakendur í afurða-
skýrsluhaldi Bændasamtaka
Íslands og hafi sinnt fullnægj-
andi skilum á skýrslum fyrir
framleiðsluárið 2018, sbr 4 gr.
Reglugerðar nr 1261 / 2018.
Tilboðsferli
Tilboð verða að berast á þar til gerðu
eyðublaði sem aðgengilegt verður
á heimasíðu Búnaðarsambands
Suðurlands (bssl.is) en þeir sem
ekki geta nálgast eyðublaðið á þann
hátt geta haft samband við Svein
í síma 894-7146 og fengið blaðið
sent til sín.
Á eyðublaðinu er tilgreint í
hvaða grip eða gripi er verið að
gera tilboð en bjóða má í eins
marga gripi og hver vill, en til-
greina skal hversu hátt er boðið í
hvern þeirra. Ef sami aðili send-
ir inn fleiri en eitt tilboð gildir
nýjasta tilboðið, en hver tilboðs-
gjafi getur bara haft eitt gilt tilboð
í hvern grip. Lágmarksboð í hvern
grip er 800.000 kr – áttahundruð
þúsund kr - án vsk og verða lægri
tilboð ekki tekin gild. Tilboðið
á þar til gerðu eyðublaði þarf að
senda í ábyrgðarpósti merkt:
Tilboð í naut
Nautgriparæktarmiðstöð Íslands
Austurvegi 1 800 Selfoss
Tilboðið þarf að vera póstlagt í síð-
asta lagi föstudaginn 30. júlí 2020 en
tilboðin verða síðan opnuð og unnið
úr þeim föstudaginn 7. ágúst 2020.
Þeim sem gera tilboð er frjálst að
vera við þegar tilboðin eru opnuð.
Ráðstöfun nautanna
eftir opnun tilboða
1. Fyrst skal ganga úr skugga um
að tilboð sem borist hafa séu
gild þ.e. þau uppfylli öll þau
skilyrði sem sett hafa verið.
2. Komi jöfn hæstu tilboð í ein-
hvern grip frá tveimur eða
fleiri aðilum skal hlutkesti
ráða í hvaða röð tilboðin rað-
ast.
3. Gengið skal frá sölu nautanna
á þann hátt að fyrst er tekin
fyrir sá gripur sem hæst er
boðið í, þá sá sem næst hæst
er boðið í og svo koll af kolli.
Komi jafn hátt boð í tvo eða
fleiri gripi skal hlutkesti ráða
um röð þeirra nauta við sölu.
4. Hver tilboðsgjafi getur
einungis fengið keyptan einn
grip. Ef sami aðili á hæsta boð
í fleiri en einn grip skal hann
velja hvaða tilboði hann vill
halda og dettur hann þá út sem
tilboðsgjafi í önnur naut.
5. Kaupandi skal ganga frá
greiðslu fyrir nautið inn á
bankareikning Nautís í síð-
asta lagi 12. ágúst. Litið er
á greiðslu á þessum tíma-
punkti sem fyrirframgreiðslu
en nautin verða áfram í eigu
og á ábyrgð Nautís fram að
afhendingardegi.
6. Sé ekki greitt inn á banka á
réttum tíma fellur tilboðið úr
gildi og sá sem átti næsthæsta
boð í viðkomandi naut fær
kaupréttinn. Hafi sá aðili
þegar fengið keyptan annan
grip getur hann valið hvorn
gripinn hann vill taka. Við
svona breytingar á einum grip
getur því kaupréttur breyst á
fleiri nautum.
7. Ef gripur stenst ekki dýra-
læknisskoðun varðandi
almennt heilsufar eða sæðis-
gæði að lokinni sæðistöku fell-
ur sá gripur út úr sölumeðferð
og fær kaupandi þá endurgreitt
kaupverð. Þetta hefur þó ekki
áhrif á röð tilboða eða kauprétt
á öðrum nautum.
8. Berist ekki gilt tilboð í einn
eða fleiri af gripunum mun
stjórn Nautís ákveða hvern-
ig með þá gripi verður farið í
framhaldinu.
F.h. hönd Nautís
Sveinn Sigurmundsson
framkvæmdastjóri
Hinn norski Horgen Erie, er faðir tveggja nauta sem nú eru boðin til sölu.
Markaðssetja nautakjötið með fjósbyggingunni
Á bænum Karlsøy í Grunnfirði í
Norður-Noregi reka Birger Bull
og Siri Folven Bull fyrirtækið Bull
Angus í kringum kjötframleiðslu
á bænum sem er ekki í frásögur
færandi nema fyrir það að
fjósið sem þau byggðu árið 2013
er hringlaga og hefur vakið
verðskuldaða athygli. Í fjósinu eru
um 100 gripir á hverjum tíma en
grunnflötur byggingarinnar er 700
fermetrar. Á annarri hæð fjóssins
er 250 fermetra íbúðarhúsnæði og
100 fermetra gallerí.
„Þetta byrjaði allt með því að ég
og fyrrverandi konan mín, Lena,
langaði að búa til starf fyrir hana
og úr varð kjötframleiðsla. Á þeim
tíma áttum við ekki sveitabæ og
ekkert var á sölu nálægt okkur. Í
raun áttum við ekki heldur land á
þessum tíma! En það var mikið um
góð beitilönd allt í kringum okkur
og það voru tveir aðrir sveitabæir
hér í Grunnfirði sem ætluðu að
horfa til framtíðar þannig að hér var
umhverfið og góðir samstarfsaðilar
nálægt okkur,“ útskýrir Birger.
Uppfylltu drauminn
Árið var 2008 þegar þau hjónin
byrjuðu með tvær hendur tómar, þau
keyptu sér 12 kýr og byrjuðu í tómu
sílói hjá bróður Birger á næsta bæ
en ári síðar byggðu þau sitt fyrsta
fjós sem í dag er notað sem geymsla.
„Hjörðin stækkaði jafnt og þétt,
við settum á fót okkar eigið vörumerki
Bull Angus og síðan hófumst við
handa við að skipuleggja nýtt fjós.
Við ferðuðumst um til að skoða önnur
fjós og eftir að hafa hugsað þetta fram
og til baka enduðum við á þessu
hringlaga formi vegna þess að þar
fær maður í raun minni vélvæðingu,
góða yfirsýn í fjósinu og betri nýtingu
á svæðum ásamt því að okkur fannst
þetta líta vel út,“ útskýrir Birger og
segir jafnframt:
„Okkur langaði virkilega mikið að
búa til okkar eigið og vorum drifin
áfram af því en til að uppfylla drauminn
okkar þurftum við að finna einhvern
sem var tilbúinn að teikna fyrir okkur
fjósið og sem var jákvæður á að hugsa
nýja hluti. Það leið svolítill tími áður
en það tókst en á endanum fundum
við verkfræðinginn Nedzad Zdralovic
hjá sýslumanninum í Finnmörku. Það
endaði með því að hann teiknaði fjós
sem var miklu betra en það sem við
sáum fyrir okkur og þar að auki var
250 fermetra íbúð í byggingunni líka.
Til að uppfylla drauminn fjárhagslega
urðum við að fara til Bosníu en
límtré, gluggar og hurðir var pantað
þaðan. Innréttingar koma frá danska
fyrirtækinu Staldmæglerne og
gjafakraninn frá Austurríki á meðan
flórróbótinn kemur frá Frakklandi
og var búinn sérstaklega til fyrir
þessa fjósgerð. Fjármögnun fjóssins
kemur frá Nýsköpunarsjóði Noregs
(Innovasjon Norge) og frá Karlsøy
sveitarfélaginu.“
Sjálfbærni í framleiðslunni
Til viðbótar við að reka Bull
Angus flytur Birger inn tæki til
landbúnaðar og er framkvæmdastjóri
bílaverkstæðis á svæðinu. Hann
ætlaði sér aldrei að verða bóndi og
menntaði sig til rafvirkja. En örlögin
höguðu því þannig til að hann og
fyrrverandi kona hans, Lena, keyptu
til að byrja með 12 hektara lands og
70 hektara af mýrlendi.
„Þetta hefur stækkað jafnt og þétt
síðan við byrjuðum hér fyrir 12 árum
og þó þetta hafi oft og tíðum verið
krefjandi þá er þetta líka skemmtilegt.
Í dag höfum við um 450 hektara af
ræktuðu landi til umráða en við eigum
einungis 30 hektara af því, hitt leigjum
við. Í dag eru um 40 kýr í fjósinu á
hverjum tíma með kálfum svo þetta
er á bilinu 80–100 dýr inni í fjósinu.
Uxakálfarnir eru seldir þegar þeir eru
átta mánaða gamlir. Kvígurnar eru hjá
okkur þar til þær eru fullorðnar og eru
sæddar til að fá eigin kálfa. Í svona
kálfaframleiðslu verða dýrin oft mun
eldri heldur en í mjólkurframleiðslu en
hjá okkur eru kýr sem eru 14 ára gamlar
og sem enn bera kálfum og framleiða
eins og þær eiga að gera,“ segir Birger
og bætir við:
„Við reynum að nota eins lítið af
áburði og við getum til að fá góðan
vöxt þar sem við getum ekki notað skít
en við notum um það bil einn fjórða af
áburði til samanburðar við marga aðra
bændur því skíturinn er í fyrirrúmi hér.
Þannig að þó að við séum ekki með
vottun fyrir lífrænni ræktun þá teljum
við okkur komast ansi nálægt því
ásamt sjálfbærni eins og hægt er. Við
erum jú, eins og margir bændur, mest
upptekin af gæðum og því völdum við
Anguskynið sem gefur meyrasta kjötið
og besta kjötið er af 3–5 ára gömlum
kúm. Okkur hefur gengið mjög vel að
selja afurðirnar og eigum nú traustan
og góðan viðskiptamannahóp og ég
er þess fullviss að fjósbyggingin,
sem hefur vakið mikla athygli, á sinn
þátt í því að koma okkur enn frekar á
framfæri.“ /ehg
Fjósbyggingin er sérkennileg að sjá og hefur vakið mikla athygli, svo mikla að
Birger fullyrðir að hún ein og sér eigi stóran þátt í að selja kjötið frá bænum.
Fyrrverandi kona Birger, Lena Kristin
Bye, er meðeigandi í Bull Gård og á
hann til helminga ásamt Birger B.
Bull en hægra megin við hann er nú-
verandi kona hans, Siri Folven Bull,
sem sér um daglegan rekstur í dag.