Fréttablaðið - 22.08.2020, Side 22

Fréttablaðið - 22.08.2020, Side 22
ÞAR VORU MISTÖKIN VIÐURKENND OG ÞAÐ VAR ÞAÐ SEM VIÐ VILDUM. VIÐ VORUM ALDREI AÐ SÆKJ- AST EFTIR PENINGUM. Reiðin sem spratt upp við barnsmissinn, sem nú er viðurkennt að hafi verið vegna van-ræk slu heilbr igðis-st a r f sma n na , hélt henni lengi vel í heljargreipum. Sigga sem er lífsglöð manneskja að eðlisfari vildi ekki festast í reiði eða hlutverki syrgjandi móðurinnar en féllst þó á að ræða hvaða þýðingu lok málaferlanna hafa fyrir þau hjón og fjölskylduna sem stækkaði á síðasta ári. Í janúar síðastliðnum voru fimm ár frá því að Sigríður, eða Sigga eins og hún er kölluð, upplifði það stærsta áfall sem foreldrar geta ímyndað sér. Íþyngjandi sorg tók við en einnig reiði yfir því hvernig andlát sonar þeirra bar að. Reiðin sem festi í hana klónum í fyrstu hefur þó breyst og blossar helst upp þegar rætt er um atvikið. Lífið heldur áfram og árið 2019 var mikið hamingjuár í lífi parsins þegar þau eignuðust dótturina Rán, sem lét bíða lengi eftir sér, og gengu í hjónaband með pompi og prakt. Í janúar síðastliðnum undir- rituðu hjónin jafnframt samkomu- lag um að ríkið greiði þeim fimm milljónir króna í miskabætur auk málskostnaðar. Þannig lauk tæplega fimm ára málaferlum þó að málið sé enn á borði lögreglu. „Við vorum ákveðin í að fara með þetta mál lengra. Ég upplifði strax að á mér hefði verið brotið, ég hefði hreinlega verið beitt of beldi.“ Vildu mistökin viðurkennd Sigga segist í upphafi hafa upplifað undrun hjá yfirmönnum spítalans og skilning þeirra á að ekki hefði verið farið rétt að í fæðingunni en svo hafi tónninn breyst, það þyrfti að halda trúnað, ekki mætti benda á einstaklinga og var kerfinu ítrekað lýst sem „svissneskum osti“, fullum af götum sem ekki næðu alla leið í gegn. Sigga segir það hafa gert illt verra að í yfirheyrslu hjá lögreglu hafi heilbrigðisstarfsmaður reynt að skella skuldinni á hana með því að segja að hún hafi streist á móti í fæðingu. „Ég held að allar konur sem hafa farið í gegnum fæðingu í gegnum fæðingarveg viti að það er sturluð hugmynd.“ Þegar foreldrarnir áttuðu sig á að Landspítalinn hefði ekki tilkynnt málið til lögreglu, en lögum sam- kvæmt skal tilkynna öll dauðsföll innan veggja spítalans, þá gerðu þau það sjálf. Þar hefur málið verið til rannsóknar í þrjú ár og er enn. Aðspurð hvaðan baráttuviljinn hafi komið í miðju erfiðu sorgarferli segist Sigga í raun ekki vita það. „Ég byrjaði að vinna um haustið en var alltaf á hnefanum og alltaf tætt og maður flýr þetta ekkert. Við vorum varla vinnufær lengi vel og tækni- lega séð hefði ég átt að taka mér frí frá vinnu og sækja aðstoð hjá Virk. Þegar svo kom sáttatilboð frá ríkissaksóknara nú í janúar, fimm árum síðar, þá tókum við því í raun fegins hendi. Þar voru mistökin viðurkennd og það var það sem við vildum. Við vorum aldrei að sækjast eftir peningum.“ Notaði jóga til að byggja sig upp Sigga fór í jógakennaranám eftir áfallið og var það ein leiða hennar til að byggja sig upp. „Það hjálpaði mér að finna innri ró og tækni og aðferðir til að slaka á. Líkami minn var hreinlega eins og stórt grjót, ég var svo reið. Ég hafði svo mikla þörf fyrir að losna við alla þessa reiði sem engum gagnast. Ég vaknaði á nóttunni með kreppta hnefa og fékk martraðir. Mér fannst ég sífellt þurfa að f lýja aðstæður af ótta við að hitta einhvern aðilanna úr fæðingunni. Í dag verð ég vissulega reið þegar ég tala um þetta, eins og núna, en reiðin er ekki lengur alls- ráðandi,“ útskýrir hún. Sigga segir reynslu sína og þjálfun í sviðslistum einnig hafa hjálpað sér mikið. „Það er ákveðin hugleiðsla sem fer í gang þegar maður fer á flug á sviði og getur f lúið tilfinningar sínar að einhverju leyti.“ Kynntust fullorðin Sigga og Kalli kynntust þegar þau voru komin hátt í fertugt og áttu hvort barnið sitt frá fyrri sam- böndum. Sambandið var tæplega ársgamalt þegar von var á barni og því mikið lagt á ungt samband þegar það sem var tilhlökkunarefni breyttist í djúpa sorg og reiði. „Ég trúi því stundum ekki að við séum enn saman,“ segir Sigga og hlær. Vildu fá mistökin viðurkennd Sigríður Eyrún Friðriksdóttir segist loks hafa fundið reiðinni vegna andláts sonar síns og Karls Olgeirssonar, Nóa Hrafns, skúffu. Hún tók jafnframt líkama sinn, sem henni fannst hafa brugðist sér, í sátt á óvæntan hátt. Sigga og Kalli eignuðust dótturina Rán á síðasta ári og segir hún það hafa breytt miklu eftir það sem á undan var gengið. „Hún fyllir ekkert upp í gatið hans, en henni fylgir svo mikil gleði og það hefur allt gengið svo vel með hana. Ég er brjálæðislega þakklát fyrir það,“ segir Sigga, sem fann sköpunarkraftinn blómstra og aftur varð gaman að vera til. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Árið 2019 var svo sannarlega gjöfult fyrir fjölskylduna en langþráð dóttir, Rán, kom í heiminn og þau Sigga og Kalli gengu í hjónaband. Hér á brúðkaupsdaginn ásamt börnum sínum þremur. MYND/ÁSTA JÓNÍNA ARNARDÓTTIR Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is 2 2 . Á G Ú S T 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.