Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.08.2020, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 22.08.2020, Qupperneq 36
Íris María Stefánsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri menningarmála í Kópavogi, og Elísabet Indra Ragnarsdóttir, nýráðinn viðburða- og verkefna- stjóri, segjast hlakka mikið til menningarvetrarins í Kópavogi þar sem nóg verður um að vera fyrir alla aldurshópa. „Það eru allir velkomnir í Menningarhúsin í Kópavogi og og í þeim anda verður að sjálf- sögðu haldið áfram að bjóða upp á ókeypis viðburði sem notið hafa mikilla vinsælda undanfarin ár. Menning á miðvikudögum og Fjölskyldustundir á laugardögum verða á sínum stað þar sem flétt- ast saman tónleikar, listsmiðjur, listamannaspjall og lifandi fræðsla um margvísleg viðfangsefni,“ segir Íris María og bendir á að sérstaða Menningarhúsanna í Kópavogi felist meðal annars í nánu og spennandi samtali þvert á listir, sögu og vísindi. „Starfsfólk húsanna er ótrúlega hugmynda- ríkt og skapandi og þegar það leggur saman í eitt púkk verður til mjög krassandi og fjölbreytt dagskrá.“ „Ég er sjálf glæný í þessu starfi,“ segir Elísabet Indra „og á því miður alls engan heiður af þessari f lottu dagskrá en get ekki beðið eftir að njóta. Það er áskorun að standa fyrir viðburðum nú á tímum fjöldatakmarkana og fjarlægðar- marka en á sama tíma skiptir það svo óendanlega miklu máli að næra sálina og frjóvga hugann – ekki síst á tímum sem þessum. Við stefnum ótrauð á að geta haldið úti metnaðarfullu starfi en munum að sjálfsögðu fylgja öllum fyrir- mælum um sóttvarnir og vanda okkur.“ Menningarhúsin í Kópavogi taka vel á móti þér og þínum Hjarta menningarstarfs Kópavogsbæjar slær í Menningarhúsunum. Tilgangur starfseminnar er að auka lífsgæði íbúa á öllum aldri með fjölbreyttu menningar- og listalífi, fræðslu og miðlun. Áhersla er á að þróa og bjóða upp á viðburði og upplifanir sem ekki er að finna annars staðar. Elísabet Indra Ragnarsdóttir og Íris María Stefánsdóttir hjá Menn- ingarhúsunum í Kópavogi. MYND/ MENNINGARHÚSIN Í KÓPAVOGI Stúdíó Gerðar er opið fræðslu- rými í Gerðar- safni þar sem gestum gefst færi á að njóta samverustunda. MYND/ANNA KAREN SKÚLADÓTTIR Krakkar elska að koma og skoða öll dýrin á stofunni enda eru hér einhverjar 400 lífverur til sýnis og ekki er verra að það er ókeyp- is inn á safnið og því hægt að koma aftur og aftur. Á Náttúrufræðistofu er að finna hátt í 400 lífverur til sýnis. MYND/MENNINGARHÚSIN Í KÓPAVOGI Griðastaður fjölskyldunnar Í öllum Menningarhúsunum getur fjölskyldan átt góðar stundir saman, þar sem nóg er í boði fyrir alla til að njóta, fræðast og skapa. „Bókasafn Kópavogs er heimili að heiman. Hér getur fólk haft það huggulegt yfir góðri bók, lesið og spjallað saman, prófað ný spil og meira að segja saumað nýjar gard- ínur,“ segir Íris María og hlær. Á Náttúrufræðistofu Kópavogs eru lífríki Íslands og fjölbreyttum búsvæðum í íslenskri náttúru gerð góð skil á myndrænan og fræðandi hátt. „Krakkar elska að koma og skoða öll dýrin á stofunni enda eru hér einhverjar 400 lífverur til sýnis,“ segir Elísabet Indra „og ekki er verra að það er ókeypis inn á safnið og því hægt að koma aftur og aftur.“ Tungumál ekki fyrirstaða Undanfarin ár hefur verið vaxandi áhersla á þátt fjölmenningar í dagskrárhaldi Menningarhúsanna í Kópavogi sem er í takt við skýra menningarstefnu Kópavogsbæjar sem lýtur að barnamenningu og fjölmenningu. „Við erum svo heppin að vera með frábæran verk- efnastjóra fjölmenningar í Menn- ingarhúsunum, hana Jasminu Vajzovic Crnac,“ segir Íris María. „Það skiptir mjög miklu máli að fjölbreyttur og fjölþjóðlegur hópur Íslendinga finni hversu velkominn hann er og móti starfið með okkur. Í síðustu úthlutun Barnamenning- arsjóðs Íslands hlutum við meðal annars styrk til að standa fyrir listsmiðjum óháðar tungumálum, tungumál á ekki að vera fyrirstaða þess að hægt sé að njóta og upplifa menningu og listir.“ Tónskáldin í Salnum Salurinn mun líkt og undanfarin ár gangast fyrir Tíbrár-tónleikaröð þar sem tónlistarfólk í fremstu röð flytur sígilda tónlist í bland við splunkunýja. „Tónleikaröðin hefst núna í september með dásamleg- um tónlistarhópi sem mun meðal annars flytja sjaldheyrt en ótrú- lega fallegt verk eftir Debussy fyrir lesara, f lautur, hörpur og selestu,“ segir Elísabet Indra. „Svo langar mig líka að benda á tónleika sem verða í vor þegar Strokkvartettinn Siggi f lytur glænýja strengjakvart- etta. Salurinn efndi til samkeppni meðal tónskálda í lok síðasta árs og voru tónskáldin Ásbjörg Jónsdóttir, Sigurður Árni Jónsson, Gunnar Karel Másson og María Huld Markan í framhaldi fengin til að semja strengjakvartetta með Salinn í huga. Frábært framtak hjá Salnum og tónskáldin sem völdust til verkefnisins svo skemmtilega ólík þannig að útkoman verður án vafa mjög áhugaverð.“ Örvar skynfærin Gerðarsafn býður upp á metnaðar- fullar sýningar með innlendum og erlendum listamönnum enda hefur safnið markað sér sess sem eitt áhugaverðasta listasafn Íslands. „Um þessar mundir eru nemendur í hönnun og arkitektúr við Listaháskóla Íslands að setja upp sýningu sem ber hið fallega og lýsandi heiti Fjörutíu skynfæri en um er að ræða nokkurs konar lokapunkt á þriggja ára lærdóms- ferli listamannanna,“ segir Íris María. „Gerðarsafn er líka frábær viðkomustaður fyrir alla fjölskyld- una – ekki síst ung börn. Hinir sívinsælu bláu kubbar, auk fleiri skapandi leikfanga, eru til taks alla vikuna í Stúdíói Gerðar og þar er líka alltaf í boði að teikna, lita og gera klippimyndir. Frítt er fyrir börn á safnið og foreldrar geta nýtt sér árskort Gerðarsafns til að koma reglulega í heimsókn og njóta þess skemmtilega fræðslu- starfs sem boðið er uppá,“ bætir Íris María við. Hressandi hrekkjavökutón- leikar, Dagur íslenskrar náttúru með Sævari Helga, farfuglasmiðja, umfjöllun um list Gerðar Helga- dóttur út frá femínískri listfræði og höfundastofa með Sigrúnu Eldjárn í tilefni 40 ára höfund- arafmælis eru á meðal þess sem fjölbreytt viðburðadagskrá Menn- ingarhúsanna hefur að geyma. Hægt er kynna sér betur starfsemi Menningarhúsanna í Kópavogi á menningarhusin.kopavogur.is og á Facebook-síðum húsanna. 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 2 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RKÓPAVOGUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.