Fréttablaðið - 22.08.2020, Page 38

Fréttablaðið - 22.08.2020, Page 38
Bókasafns- og upplýsingafræðingur – Umsjón með starfsemi fyrir börn og ungmenni Leitað er að hugmyndaríkum, öflugum og barngóðum einstaklingi sem hefur áhuga á verkefnum tengdum börnum, bókum og barnamenningu. Starfið felur í sér umsjón með starfsemi og viðburðum fyrir börn og ungmenni auk annarra verkefna er tengjast grunnstarfsemi og rekstri safnsins í samstarfi við aðra starfsmenn s.s. upplýsingamiðlun, viðburðahald og almenna þjónustu við gesti safnsins. Helstu verkefni og ábyrgð: • Umsjón með barna- og unglingastarfi safnsins • Almenn þjónusta og ráðgjöf til gesta og notenda • Uppbygging og viðhald safnkosts fyrir börn og unglinga • Skipulagning og eftirlit með útliti barnasvæðis • Skipulagning og umsjón með viðburðum fyrir börn og fjölskyldur • Samstarf við menntastofnanir og félagasamtök • Móttaka skólahópa og lestrarstundir • Þátttaka í stefnumótun og teymisvinnu • Aðkoma að kynningu á barna- og viðburðastarfi safnsins • Ýmis verkefni er snúa að innra og ytra starfi safnsins Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólapróf í bókasafns- og upplýsingafræði eða sambærileg menntun • Reynsla af starfi með börnum og ungmennum • Reynsla af skipulagningu og umsjón viðburða er kostur • Góð tölvukunnátta og færni auk þekkingar á bókasafnskerfinu Gegni • Gott vald á íslensku og á ensku • Skapandi hugsun, sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð • Metnaður og jákvæðni í starfi, þjónustulund og lipurð í samskiptum Bókavörður Í boði er líflegt starf fyrir einstakling sem býr yfir mikilli þjónustulund, er vel lesinn og áhugasamur um bækur, menningu og samskipti við fólk á öllum aldri. Starfið felur í sér þjónustu við gesti safnsins, upplýsingamiðlun og aðstoð sem og annað er við kemur safninu og þörfum notenda. Helstu verkefni og ábyrgð: • Umsjón með útlánum og skilum gagna • Almenn ráðgjöf, afgreiðsla og aðstoð við sjálfsafgreiðslu • Frágangur safnefnis til útláns s.s. plöstun og uppröðun í hillur • Umsjón með daglegri ásýnd safnsins • Ýmis skilgreind sérverkefni og teymisvinna • Aðkoma að viðburðastarfi safnsins Menntunar- og hæfniskröfur: • Stúdentspróf eða sambærileg menntun • Áhugi og almenn grunnþekking á bókmenntum • Reynsla af starfi á bókasafni er kostur • Þekking á bókasafnskerfinu Gegni er kostur • Góð tölvufærni og gott vald á íslensku og ensku • Rík þjónustulund, mikil samskiptafærni og jákvæðni í starfi • Frumkvæði í starfi, sveigjanleiki og sjálfstæð vinnubrögð Bókasafn Seltjarnarness seltjarnarnes.is Seltjarnarnesbær auglýsir eftirfarandi störf á Bókasafni Seltjarnarness laus til umsóknar. Um er að ræða 70-100% stöður og skipta starfsmenn bókasafnsins með sér vöktum. Opið er alla daga nema sunnudaga. Umsóknarfrestur er til og með 3. september 2020. Miðað er við að viðkomandi aðilar geti hafið störf sem fyrst. Tekið er við umsóknum í gegnum ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar www.seltjarnarnes.is. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi í starfið. Nánari upplýsingar veitir María Björk Óskarsdóttir, sviðsstjóri Þjónustu- og samskiptasviðs Seltjarnarnesbæjar, maria.b.oskarsdottir@seltjarnarnes.is. Bókasafn Seltjarnarness er almenningsbókasafn og starfar samkvæmt lögum um bókasöfn frá árinu 2012. Safnið er ennfremur menningarmiðstöð Seltjarnarnesbæjar þar sem fram fer fjölbreytt menningarstarf og viðburðir. Nánari upplýsingar um starfsemi safnsins má sjá á seltjarnarnes.is/bokasafn Í samræmi við jafnréttisáætlun Seltjarnarnesbæjar eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um störfin. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Seltjarnarnesbæjar og viðkomandi stéttarfélags. Jafnlaunavottun er í gildi hjá Seltjarnarnesbæ. Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is RÁÐNINGAR RÁÐGJÖF RANNSÓKNIR 2 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 2 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.