Fréttablaðið - 22.08.2020, Side 78
Ég byrjaði eiginlega sem baller-
ína, varð svo verkfræðingur,
svo söngkona. Þetta er dæmi
um manneskju sem getur ekki
ákveðið sig.
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er.
Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir
Minningarkort á hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýju vegna andláts og útfarar
okkar ástkæra eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
Hinriks Líndal Hinrikssonar
Hjarðarholti 17,
Akranesi,
sem lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi
sunnudaginn 26. júlí.
Júlíana Karvelsdóttir
Karvel Líndal Hinriksson Inga Dís Sigurðardóttir
Ása Líndal Hinriksdóttir Guðráður Gunnar Sigurðsson
Olga Líndal Hinriksdóttir Jóhann Þór L. Kristjánsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar og amma,
Rakel Kristín Malmquist
áður Einarsnesi 44,
er látin.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu.
Valgerður Guðmundsdóttir
Svanhildur Guðmundsdóttir Halldór Guðnason
Reynir Guðmundsson Sigrún Sigurþórsdóttir
Ebenezer G. Guðmundsson Lára Jónsdóttir
Ásgeir Guðmundsson
barnabörn, barnabarnabörn, barnabarnabarnabörn.
Þó tónleikar Stínu Ágústs væru áformaðir utan dyra á Jóm-frúnni í sumar, varð að hætta við þá af varúðarástæðum. Hún var frekar svekkt. „Ég var kannski aðeins of spennt.
Hafði verið svo lengi án þess að koma
fram með fólki að tilfinningin var eins
og að fá dót á jólunum þegar ég var lítil!
Loks var mér líka að takast að fá Eyþór
Gunnars til að spila með mér, hann er
alltaf upptekinn – en þá var tónleikunum
aflýst vegna COVID.“
Þetta hefur verið skrítið ár hjá Stínu
eins og fleirum. „Það byrjaði svakalega
vel,“ rifjar hún upp. „Ég söng með Stór-
sveit Reykjavíkur á Gullöld sveiflunnar
í Eldborg í Hörpu 1. janúar. Fullur salur,
rosa stemning og góðir dómar svo ég
hugsaði: Þetta ár verður geggjað. Svo tók
ég upp plötu í vikunni á eftir með Önnu
Grétu Sigurðardóttur og Mikael Mána í
Sundlauginni í Mosfellsbæ, hún kemur
út í haust. En svo kom kórónaveiran og
tónleikum í Stokkhólmi í byrjun mars
var aflýst. Þá byrjaði ég á að plana fjölda
verkefna með alls konar fólki og nú
finnst mér ég næstum hafa of mikið að
gera.“ Skellihlær. „Svona er nú óskipu-
lagið.“
Stína segir lítið hafa komið í kassann
í kófinu. Hún sé heppin að eiga vinn-
andi mann, annars hefði hún þurft að
sækja um neyðaraðstoð. „Fyrir utan fjöl-
skylduna hef ég þó hitt tvo menn, píanó-
leikarann Simon Berggren sem er alveg
svakalega fær, við erum að taka upp
saman og gefum sennilega út afrakstur-
inn stafrænt. Hinn er Henrik Linder sem
er talinn einn af bestu bassaleikurum
heims. Planið er að taka upp plötu með
honum. Við erum að semja og æfa eigin
tónlist og einhverjir djass-standardar
f ljóta með. Svo er ég að að skipuleggja
næstu sólóplötu og byrja að hljóðrita.
Er líka að vinna með Inga Bjarna Skúla-
syni, íslenskum píanóleikara, á döfinni
eru tónleikar með honum um jólin. Auk
þess eru nokkur fjarverkefni í gangi þar
sem fólk er að semja sitt á hvað og senda
á milli, sem er alltaf áhugavert.“
Stína kom til landsins með mann sinn
og tvö börn. Þau dvöldu í Vesturbænum
þar sem hún ólst upp. Kveðst vera smá
sænsk líka. „Ég átti sænska ömmu og
mamma á átta systkini í Svíþjóð svo ég
á þar risastóra fjölskyldu.“ Sjálf hefur
hún búið þar í níu ár. „Áður var ég níu ár
í háskóla í Montreal í Kanada að læra að
syngja djass. Þar áður bjó ég í London í
eitt ár, þá var ég verkfræðingur, sko.“
Hlæjandi. „Ég byrjaði eiginlega sem
ballerína, varð svo verkfræðingur, svo
söngkona. Þetta er dæmi um mann-
eskju sem getur ekki ákveðið sig. Ætlaði
að vera praktísk. Það er svo kúl að vera
stelpa í verkfræði, öruggt djobb og svona
– það var bara ekki fyrir mig. Er með allt
of mikla athyglissýki til að geta setið á
fundum og verið alvarleg!“
Stína á góðar minningar frá Mont-
real og segir hana mikla tónlistarborg.
„Áheyrendur eru líka svo lifandi. Fyrstu
giggin mín á Íslandi voru bara pína, fólk
sat svo stíft. Ég hélt ég væri svona hrika-
lega léleg. Svo kom það eftir á og sagði
að þetta væri f lottasta sem það hefði
heyrt! Nú er ég farin að læra að brjóta
ísinn með einhverjum fíf lagangi til að
losa um spennuna. gun@frettabladid.is
Ætlaði að vera praktísk
Stína Ágústs er ein þekktasta djassöngkona Íslendinga en hefur mest alið manninn
í Stokkhólmi síðustu ár. Steig þó fæti á fósturlandið nýlega og ætlaði að djassa.
Stína náði aðeins að vökva ræturnar á Íslandi í sumar þó ekkert yrði af tónleikum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ástkær móðir okkar, dóttir,
systir, og barnsmóðir,
Jóna Dís Þórisdóttir
lést miðvikudaginn 12 ágúst.
Útför hennar fer fram frá Digraneskirkju
þriðjudaginn 25. ágúst, klukkan 13.
Vegna samkomutakmarkana er athöfnin
einungis fyrir nánustu fjölskyldu og vini. Athöfninni
verður streymt á www.digraneskirkja.is.
Þeim sem vilja minnast hennar og styrkja syni hennar
er bent á styrktarreikning nr. 0370-13-400560,
kt. 160386-2319.
Þórir Jökull Ásgeirsson
Halldór Elí Ásgeirsson
Guðrún Jóna Jónasdóttir Ingi Halldór Árnason
Þórey Þórisdóttir Sveinbjörn Sveinsson
Ottó Ingi Þórisson Lára Björgvinsdóttir
Hulda Þórisdóttir Árni Gunnar Reynisson
Magnús Þórisson Ólafía Marelsdóttir
Ásgeir Elíasson
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Ragnheiður (Stella)
Björnsdóttir
hjúkrunarfræðingur,
lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu við
Sléttuveg, sunnudaginn 16. ágúst.
Í ljósi aðstæðna fer útförin fram í kyrrþey að viðstöddum
nánustu aðstandendum. Þeim sem vilja minnast hennar
er bent á líknarsamtök.
Hannes G. Jónsson
Margrét Birna Hannesdóttir Sigurður Jónsson
Guðný Hannesdóttir Baldur Gylfason
Herdís Hannesdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
2 2 . Á G Ú S T 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R30 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT