Fréttablaðið - 22.08.2020, Side 79

Fréttablaðið - 22.08.2020, Side 79
Okkar innilegustu þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, Kamillu Guðbrandsdóttur Olga Hafberg Björn Rögnvaldsson Einar Hafberg Hrannar Már Hafberg Rebekka Helga Aðalsteinsdóttir Júlíanna Ósk Hafberg Svavar Skúli Einarsson Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Kolfinna Gerður Pálsdóttir síðast til heimilis að Vallartröð 2 í Eyjafjarðarsveit, verður jarðsungin frá Grundarkirkju þriðjudaginn 25. ágúst, klukkan 13.30. Vegna samkomutakmarkana er athöfnin aðeins fyrir nánustu fjölskyldu og vini en streymt um Facebook: Jarðarfarir í Grundarkirkju. Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á Öldrunarheimili Akureyrarbæjar. Ingibjörg Friðriksdóttir Helgi Bjarnason Fanney Friðriksdóttir Snæbjörn Friðriksson Anna Friðriksdóttir Guðmundur Guðmundsson Baldur H. Friðriksson Kristín Hrönn Reynisdóttir Theodór Friðriksson ömmu- og langömmubörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Ellert Gunnlaugsson fyrrum bóndi á Sauðá, Garðavegi 19, Hvammstanga, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga 16. ágúst. Útförin fer fram frá Hvammstangakirkju 24. ágúst, kl. 13.00. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu er bara nánustu fjölskyldu og vinum boðið. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunarinnar á Hvammstanga. Aðalheiður Jónsdóttir Sesselja Aníta Ellertsdóttir Gísli Már Arnarson Guðni Ellertsson Stella Guðrún Ellertsdóttir Tómas Örn Daníelsson afabörn og langafabarn. Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra Ögmundar H. Guðmundssonar loftskeytamanns, Dalseli 40, Reykjavík. Kristín Jónsdóttir Guðmundur Ögmundsson Jón Ögmundsson Snjólaug María Árnadóttir Unnur Ögmundsdóttir Páll L. Sigurjónsson Anna Kristín Ögmundsdóttir Ævar Sveinsson Berglind Þóra Steinarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför Ólafar Elíasdóttur Strikinu 8, Garðabæ. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sólvangs fyrir umhyggju og hlýju við umönnun hennar. Eyþór Árnason Sigurbjörg Einarsdóttir Hafþór Árnason ömmubörn og langömmubörn.Þegar ég hringi í Helga Gísla-son, nýjan sveitarstjóra Fljótsdalshrepps, er glamp-andi sól og hiti, vel yfir 20 gráðum hjá honum, en hjá mér bylur rigningin á þakinu. Hann er sestur að á Húsum í Fljótsdal, bæ hins þekkta hagyrðings Hákonar Aðal- steinssonar, og lætur vel af sér. Kveðst hafa tekið sér göngutúr um Norðurdal- inn deginum áður og skoðað þar hvern fossinn öðrum fegurri. Skyldi það lengi hafa verið draumur hans að verða sveitar- stjóri. „Nei, alls ekki, ég hefði nú frekar viljað vera titlaður hreppstjóri en það er víst búið að leggja það embætti niður,“ svarar hann glaðlega. „En mig langaði að breyta til. Ég var framkvæmdastjóri Skóg- ræktarfélags Reykjavíkur í sextán ár, það var bara kominn tími á mig, að eigin mati, og mig langaði austur, sá þetta starf aug- lýst og stökk á það.“ Helgi er hagvanur á Héraði, er af Skógargerðisætt, fæddur og uppalinn á Helgafelli í Fellum og áður en hann réðist til Skógræktarfélags Reykjavíkur var hann framkvæmdastjóri Héraðsskóga í þrettán ár. Inntur eftir íbúatölu Fljótsdalshrepps svarar hann: „Við erum að slefast í hundr- að og ég veit ekki hvort við fáum að halda sjálfstæði en það er félagafrelsi sam- kvæmt stjórnarskránni og sveitarfélag er félag. Ég er bara ráðinn út kjörtímabilið. Ef sameining verður þá verður hún. En þetta sveitarfélag er vel rekið, hér hefur verið haldið ákaflega vel utan um alla hluti. Það má alveg velta fyrir sér hvort ekki sé meiri ástæða til að setja efri mörk á íbúafjölda sveitarfélaga, það er erfiðara fyrir embættisfólk að hafa yfirsýn ef þau eru mjög fjölmenn. Hér tapast ekki yfir- sýnin þó við séum landstór, með 1.300 ferkílómetra.“ Hann segir Fljótsdalshrepp samreka skóla með öðrum Héraðsbúum á Egilsstöðum. „Hallormsstaðarskóli var lagður niður fyrir nokkrum árum. Það var góður skóli í fallegu umhverfi og gríðarlega fallegri byggingu sem Þor- valdur S. Þorvaldsson teiknaði.“ Gert er ráð fyrir fjölgun íbúa í dalnum, að sögn Helga. „Hér er verkefni í gangi sem nefnist  Fögur framtíð í Fljótsdal. Ásdís Helga Bjarnadóttir er verkefnastjóri og drífur það áfram ásamt sveitarstjórn- inni. Eftirspurn er eftir húsnæði og við erum að meta hvar heppilegast sé að reisa þorp. Fólk nálgast það viðfangsefni út frá umhverfissálfræðilegum forsendum. Markmiðið er að velja stað þar sem fólki líður vel í kyrrlátu umhverfi og öryggi.“ Spurður um atvinnu á svæðinu nefnir hann störf hjá Fljótsdalsstöð, Gunnars- stofnun, Snæfellsstofu, Óbyggðasetri, Hengifossi gistihúsi, jarðvegsverktaka á Sturluflöt og viðarvinnslu á Víðivöllum, auk þess sem hefðbundinn búskapur sé í dalnum. „Við Hengifoss hefur orðið ferðamannasprengja og brýnt að koma þar upp þjónustuhúsi, það kallar á starfs- krafta,“ bætir hann við. Sambýliskona Helga er Urður Gunn- arsdóttir, blaðamaður og starfsmaður Öryggisstofnunar Evrópu – til áramóta. Hún er ættuð frá Gunnhildargerði á Héraði og Helgi segir hana bíða þess með óþreyju að f lytja austur. „Eitt af heimilum okkar er úti í Varsjá, en Urður kom til Íslands áður en Pólverjar skelltu landamærunum í lás, og er búin að vera í rúmlega 100% vinnu, ýmist á heimili okkar á Marargötunni eða á Húsum,“ segir Helgi. „Hún er á endalausum fjar- fundum með fólki úti í heimi og gagna- sendingar ganga á milli. Kollegar hennar erlendis tóku eftir hvað allt f laut miklu betur þegar hún fór að vinna frá Húsum heldur en Reykjavík, svo netsamband er gott í Fljótsdalnum.“ Í bígerð að byggja þorp Helgi Gíslason skógfræðingur er nýtekinn við stjórnartaumum í sveitarfélaginu Fljóts- dalshreppi og hlakkar til að takast á við vöxt þess, viðgang og önnur verkefni. Íslenska handboltalandsliðið hlaut silfurverðlaun á Ólympíuleikunum í Peking þennan dag árið 2008, eftir stórkostlegan undanúrslitaleik við spænska liðið. Lokatölur urðu 36-30. Fögnuðurinn var vitaskuld mikill að leik loknum hjá leikmönnum íslenska liðsins, þeim Íslendingum sem staddir voru á leikvanginum og þjóðinni allri, sem fylgdist með í sjónvarpi eða tölvuskjám. Öllum var ljóst að þeir hefðu orðið vitni að einstökum við- burði í Íslandssögunni og að brotið hefði verið blað, enda Íslendingar langfámennasta þjóð sem unnið hafði til verðlauna í hópíþrótt á Ólympíu- leikum. Aðeins úrslitaleikurinn við Frakka var eftir. Þ E T TA G E R Ð I S T: 22 . ÁG Ú S T 2 0 0 8 Íslendingar unnu silfur á Ólympíuleikum Helgi kann vel við sig í skógi og í Fljótsdal er Hallormsstaðarskógur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Elskulegur sonur okkar og bróðir, Magnús Gísli Arnarson atvinnubílstjóri, lést fimmtudaginn 6. ágúst. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 26. ágúst kl. 13. Vegna fjöldatakmarkana verður eingöngu nánustu ættingjum og vinum boðið í kirkjuna. Guðrún Þóra Magnúsdóttir Örn Ísleifsson Ólafur Örn Arnarson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sigurður Guðberg Helgason frá Þorlákshöfn, (Siggi Helga frá Seli), lést á Sjúkrahúsi Suðurlands 19. ágúst sl. Útför verður auglýst síðar. Ragna Erlendsdóttir Linda Björg Sigurðardóttir Vilhelm Á. Björnsson Guðlaug Sigurðardóttir Björgvin Jón Bjarnason Jónas Sigurðsson Áslaug Hanna og fjölskyldur. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðrún Ingveldur Guðjónsdóttir Strikinu 2, Garðabæ, lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, 20. ágúst. Útför hennar fer fram 27. ágúst nk. Í ljósi aðstæðna er athöfnin einungis fyrir fjölskyldu og boðsgesti. Skúli Rúnar Guðjónsson Páll Skúlason Agnes Kragh Hansdóttir Jónas Skúlason Elísabet M. Jóhannesdóttir Skúli Rúnar Skúlason Sigríður Bergsdóttir Auður Skúladóttir Magnús V. Magnússon barnabörn og barnabarnabörn. T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 31L A U G A R D A G U R 2 2 . Á G Ú S T 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.