Fréttablaðið - 22.08.2020, Síða 80

Fréttablaðið - 22.08.2020, Síða 80
„Of sein, of sein,“ sagði Kata pirruð og hermdi e ir áhyggjurödd Konráðs. „Ég er búin að heyra þetta væl alveg nógu o og nenni ekki að heyra það einu sinni í viðbót,“ bætti hún við. „En okkur liggur á,“ sagði Konráð biðjandi og bar sig aumlega. „Það gerir ekkert til að vera of sein,“ sagði Kata. „En það er gaman að reyna að komast í gegnum völundarhús,“ bætti hún við og bretti upp ermarnar. „Koma svo, inn með ykkur og reynið nú að tínast ekki. Ég ‚nn réttu leiðina, sannið þið til,“ sagði Kata roggin um leið og hún arkaði inn í dimm göng völundarhússins. Konráð á ferð og ugi og félagar 417 Getur þú fundið leiðina í gegnum völundarhúsið?? ? ? ? Borgarbókasafnið, Bókmenntaborgin og Bóka- beitan efna til sumarlesturs fyrir krakka. Verið velkomin í bókasafnið í ykkar hverfi og takið þátt í lestrarleiknum. Í hverri viku fær einn hepp- inn þátttakandi bók að gjöf og í lok sumarsins er veittur einn veglegur vinningur. Hvernig bækur þykja þér skemmtilegastar, Margrét Hekla? Mér finnst fyndnar bækur vera langskemmtilegastar og þá helst bækur sem koma mér til að hlæja. Hvaða bók lastu síðast og um hvað var hún? Ég las Verstu börn í heimi 3 og hún var um alls konar óþekka krakka. Hvaða bók ætlarðu að lesa næst? Ég ætla lesa Molly Moon og dáleiðslubókin. Ef þú myndir skrifa bók, um hvað væri hún? Hún væri um dýralífið og hvernig dýrunum líður í umhverfinu sínu. Ef þú mættir velja þér persónu úr bók til að ferðast um Ísland með, hver væri hún? Ég myndi ferðast um Ísland með Kötlu úr bókinni Nornasaga. Hvernig mynduð þið ferðast? Við myndum ferðast á bíl. Manstu eftir fyrstu bókinni sem var í uppá- haldi hjá þér? Fyrsta bókin sem ég man eftir var Sagan af bláa hnettinum og Skrímslið litla systir mín. Ég er búin að lesa þær báðar mjög oft og tónlistin úr Skrímslið litla systir mín er svo dásamleg. Ferðu oft á bókasafnið? Já, mjög oft og líka oft með litlu systur minni. Hver eru þín helstu áhugamál? Helstu áhuga- málin mín eru fótbolti og stærðfræði. Lestrarhestur vikunnar: Margrét Hekla Finnsdóttir Ívar afþakkaði utanlandsferð í fermingargjöf, vildi tjald. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Akureyringurinn Ívar Þorleifur Barkarson veit fátt skemmtilegra en skátastarf og ævintýrin sem það býður upp á. Hvað varstu gamall þegar þú byrjaðir í skátunum, Ívar? Ég er búinn að vera í skátunum síðan ég var átta ára og er fimmtán ára núna. Það sýnir að þér finnst gaman. Já, þetta er skemmtilegur félagsskapur og ég er mikið fyrir útivist og úti- legur og finnst bara skátastarfið f lott. Hvað heitir sveitin sem þú ert í? Félagið heitir Klakkur og ég er í dróttskátasveit. Síðan verð ég rekka skáti eftir ár, þegar ég verð 16, þá taka við enn meira krefjandi ferðir og verkefni, bæði á Íslandi og annars staðar í heiminum. Hefur verið líf í starfinu í sumar? Nei, eiginlega ekki, aðallega út af COVID. Það átti að vera landsmót en var hætt við það. En ég fór til Bandaríkjanna í fyrra á Alheims- mót skáta. Það er örugglega með því skemmtilegasta sem ég hef gert. Mótið var haldið í Vestur-Virginíu og ég var þar í tvær vikur. Það var æðislegt. Á kvöldin var fullt af spennandi hlutum sem hægt var að gera, eins og að kafa, sigla á bátum og kajökum og fara í alls konar ævintýri. Eruð þið skátarnir eitthvað að sigla á Pollinum á Akureyri? Nei, en það eru hjólabátar á skátasvæð- inu á Hömrum, við erum stundum á þeim þegar þeir eru í lagi. Er mikið líf í Klakki þegar ekki er COVID? Yfir vetrartímann sérstak- lega. Það eru alltaf gönguskíðaferð- ir á sunnudögum, þá förum við upp á fjöll og búum okkur til snjóskýli þar sem við tökum upp nestið og stundum förum við í skíðaútilegur, ein ferð nefnist Ísak, það er fimm daga gönguskíðaferð, þá er gist í snjóhúsum, tjöldum og skálum. Áttu tjald? Já, ég er nýbúinn að eignast það. Fermdist nefnilega í fyrra og við ætluðum til útlanda síðasta vetur, ég átti að fá ferðina í fermingargjöf. Svo kom COVID og þá var mér sagt að við yrðum að bíða með ferðina en ég bað frekar um tjald í fermingargjöf. Mér finnst geggjað að eiga tjald. Í hvaða skóla ertu? Lundaskóla, samt ekki í skólanum sjálfum því hann er myglaður, 7.-10. bekkur þurftu að fara í annað húsnæði. Við byrjum eftir fjóra, fimm daga. Það verður bara skemmtilegt. Hver er uppáhaldsnámsgreinin þín? Íslenska og samfélagsfræði. Get eiginlega ekki gert upp á milli. Góður í ritgerðum? Ég hef góðan orðaforða en skriftin er hræðileg! Verð rekkaskáti eftir ár ÞAÐ ERU ALLTAF GÖNGUSKÍÐAFERÐIR Á SUNNUDÖGUM, ÞÁ FÖRUM VIÐ UPP Á FJÖLL OG BÚUM OKKUR TIL SNJÓSKÝLI ÞAR SEM VIÐ TÖKUM UPP NESTIÐ. 2 2 . Á G Ú S T 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R32 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð KRAKKAR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.