Morgunblaðið - 09.01.2020, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2020
sviptingu ákveðins réttar sam-
kvæmt ökuskírteini og réttar til að
öðlast ökuskírteini.
Morgunblaðið bar eftirfarandi
spurningu undir Þórmund Jón-
atansson, upplýsingafulltrúa sam-
gönguráðuneytisins. „Ber að skilja
það svo að hægt sé að svipta fólk
ökurétti ef það ekur hraðar en 20
km á vistgötu?“
Svar Þórmundar var: „Skilningur
þinn er alveg réttur í þessum efn-
um. Nýju umferðarlögin gera ráð
fyrir því að hámarkshraði í vistgöt-
um sé 10 km/klst. sbr. 9. gr. og öku-
menn verði sviptir ökuréttindum ef
þeir aka hraðar en á tvöföldum há-
markshraða sbr. 4. mgr. 99. gr.“
Þar með er þetta skýrt. Ökumað-
ur, sem mældur er á 20 kílómetra
hraða á vistgötu, verður sviptur
ökuréttindum.
Vistgötur er að finna í nokkrum
bæjum, en flestar eru þær í
Reykjavík. Samkvæmt eldri um-
ferðarlögum var hámarkshraði á
vistgötum 15 km/klst. Vistgötur
höfuðborgarinnar má sjá á með-
fylgjandi korti. Er ástæða til að
hvetja ökumenn til þess að sýna
sérstaka aðgát þegar þeir aka um
þessar götur.
En það er ekki bara ökuleyfis-
svipting sem bíður ökumanna sem
aka of hratt um vistgötur. Þeirra
bíður einnig hraðasekt. Í reglugerð
um sektir og önnur viðurlög vegna
brota á umferðarlögum segir um
vistgötur: „Sektin skal nema 20
þúsund krónum ef ekið er hraðar
en 10 kílómetra og 40 þúsund ef ek-
ið er hraðar en 20 km á klukku-
stund.“
Hafa ber í huga að það eru vik-
mörk á hraðamælingum lögreglu.
Ekki er byrjað að sekta fyrir hrað-
akstur fyrr en hraðinn er 5 km/klst
meiri en leyfður hámarkshraði.
Aka á 20 og missa réttindin?
Um vistgötu skal aka eigi hraðar en á 10 km/klst., segir í nýjum umferðarlögum Ef ekið er á
tvöföldum hraða skal svipta ökumann réttindum í þrjá mánuði Lögreglan ætlar hægt í sakirnar
Smiðjustígur
Tryggvagata
Hafnarstræti
Kolasund
Vesturgata
Aðalstræti
Fischersund
Brattagata
Grjótagata
Mjóstræti
Vála-
stígur
Haðar-
stígur
Suðurhlíðar
■ Beykihlíð, Birkihlíð, Lerkihlíð,
Reynihlíð og Víðihlíð
Seljahverfi
■ Kaldasel, á milli
nr. 18-24 og nr. 4-14.
Þingholt
■ Smiðjustígur milli Laugavegar og Hverfi sgötu
■ Haðarstígur ■ Válastígur
Kvosin
■ Aðalstræti milli Fischer-
sunds og Vesturgötu
■ Vesturgata milli Grófarinnar
og Aðalstrætis
■ Tryggvagata milli Lækjar-
götu og Pósthússtrætis
■ Kolasund
■ Hafnarstræti frá Kolasundi
að Pósthússtræti
Grjótaþorpið
■ Grjótagata
■ Mjóstræti
■ Brattagata
■ Fischersund
TRYGGVAGATA
Vistgötur utan miðbæjarins:
H V E R F I SGATA
FR
ÍK
IR
K
JU
V.
LAU
FÁ
SV
EG
U
R
SKÓLAVÖRÐUST.
AUST U RSTRÆ T I
T j ö r n i n
H ó l a -
va l l a -
ga r ð u r
L AUGAV EGU RBA N K ASTRÆ T I
Vistgötur
í miðbæ
Reykjavíkur
Morgunblaðið/Eggert
Brattagata Gata í Grjótaþorpinu, sem telst vera vistgata. Þarna þurfa öku-
menn að sýna sérstaka aðgát. Vistgötur eru merktar með sérstöku merki.
Fyrst núna með nýjum lögum
verður mögulegt að sekta vegna
hraðaksturs á vistgötum.
„Við munum ekki fara fram
með neinu offorsi,“ segir Guð-
brandur Sigurðsson. „Við sjáum
til hvernig málin þróast á þessu
ári.“ Guðbrandur segir að hrað-
akstur á vistgötum hafi til
þessa ekki verið vandamál og
honum vitanlega hafa ekki kom-
ið kvartanir um slíkt. Oft sé
kvartað yfir því hvernig bílum er
lagt í vistgötum, en þar má bara
leggja í þar til gerðum stæðum.
„En ákvæðið um hraðakstur er
af hinu góða og hvetur fólk til
varfærni,“ segir hann. Hægt
verði að beita því ef ökumenn
sýni vítavert aksturslag.
Ekki verið
vandamál
HRAÐI Á VISTGÖTUMFRÉTTASKÝRING
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Er mögulegt að ökumaður sem
mældur er á 20 kílómetra hraða á
vistgötu verði sviptur ökurétti í
þrjá mánuði? Þessari spurningu
verður að svara játandi þótt ótrú-
legt megi virðast.
Gönguhraði er
talinn vera 5 km/
klst. og kraft-
gönguhraði 7-9
km/klst. Því er
mögulegt að öku-
menn missi öku-
réttindin fyrir að
aka á rúmlega
tvöföldum kraft-
gönguhraða!
Lögreglan
hyggst fara hægt í sakirnar til að
byrja með, eins og fram kemur í
viðtali við Guðbrand Sigurðsson, að-
stoðaryfirlögregluþjón umferð-
ardeildar, hér til hliðar.
Ný umferðarlög tóku gildi um
síðustu áramót. 9. grein laganna
fjallar um vistgötur. Þar segir:
Um vistgötu ber að aka hægt
og eigi hraðar en 10 km á klst.
Heimilt er að dveljast og vera að
leik á vistgötu. Ökumaður skal sýna
gangandi vegfaranda sérstaka til-
litssemi og víkja fyrir honum.
Vistgata skal afmörkuð með
sérstökum merkjum sem tákna
vistgötu. Vélknúnum ökutækjum
má ekki leggja í vistgötu nema á
merktum stæðum.
99. grein nýju umferðarlaganna
er almennar reglur um sviptingu
ökuréttar. Þar segir m.a.:
Svipting ökuréttar skal vera
um ákveðinn tíma, eigi skemur en
einn mánuð, eða ævilangt ef sakir
eru miklar eða brot er ítrekað öðru
sinni.
Þegar ekið er meira en tvöfalt
hraðar en heimilt er skal svipting
ökuréttar ekki ákvörðuð skemur en
í þrjá mánuði.
Svipting ökuréttar felur í sér
Guðbrandur
Sigurðsson
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
PIPISTRELLO
Borðlampi
Verð frá 199.000,-
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is |
Opið alla virka daga kl. 10-17
Góð passamynd
skiptir máli
Skjót
og hröð
þjónust
a
Íbúar Reykjavíkur geta fengið salt
og sand til að bæta öryggi á göngu-
leiðum í nágrenni sínu og heim-
keyrslum á fjórum hverfastöðum í
borginni.
Aðstaðan á Klambratúni er ekki
lengur notuð sem hverfastöð.
Hverfastöðin fyrir vesturborgina,
sem var á Njarðargötu, er flutt í
nýja aðstöðu á Fiskislóð 37 C vestur
á Granda. Þar geta íbúar sótt sér
salt og sand. Eins má fara í Þjón-
ustumiðstöðina við Svarthöfða í
sömu erindagjörðum, í hverfastöð-
ina í Jafnaseli í Breiðholti og
hverfastöðina á Kjalarnesi. Stöðv-
arnar eru opnar virka daga klukk-
an 7.30 til 17.
Salt og sandur á fjórum stöðum í borginni