Morgunblaðið - 09.01.2020, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 09.01.2020, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2020 Bridgesamband Íslands – Síðumúla 37 – 108 Reykjavík – sími 587 9360 – www.bridge.is Bridge gerir lífið skemmtilegra Viltu læra bridge? Bridgesambandið getur útvegað leiðbeinendur fyrir hópa, fyrirtæki og skóla. Guðmundur Páll starfrækir Bridgeskólann, þar geta þeir lært bridge sem eru að stíga sín fyrstu skref í bridge og einnig þeir sem vilja bæta við kunnáttu sína. Námskeið í Bridgeskólanum hefjast 20. janúar nk. Allir undir 25 ára aldri fá frítt á byrjendanámskeið. Upplýsingar hjá Guðmundi Páli Arnarsyni í síma 8985427 eða á gpa@simnet.is Eldri borgarar spila alla mánudaga og fimmtudaga kl. 13–17 í Síðumúla 37 Stórmót í Bridge Reykjavík Bridgefestival fer fram í Hörpu 30. janúar – 2. febrúar 2020, skráning á bridge@bridge.is Bridgefélög og klúbbar eru starfræktir um allt land – upplýsingar á bridge.is Bridge sameinar aldurshópana Bridge er gott fyrir heilsu þína Bridge er manns gaman „Bridge er fyrir alla“ Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra setti síðustu Bridgehátíð og sagði fyrstu sögnina fyrir Zia Mahmod heimsfrægan spilara. Allir brosandi, já það er skemmtilegt að spila bridge Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Viti mun prýða framhlið hins nýja og glæsilega Radisson RED-hótels, sem vonandi mun rísa á horni Skúlagötu og Vitastígs. Allt fram til ársins 1927 var viti á svæðinu og af honum er nafn götunnar dregið. Sama má segja um Vitatorg. Arkitekt hótelsins er hinn skoski Tony Kettle. Hann kvaðst í viðtali við Morgunblaðið í vikunni hafa leitað innblásturs í húsagerðarlist Reykjavíkur og í íslenskri náttúru við sköpun hússins. Það er ánægju- legt að Kettle hafi einnig haft vita- sögu Reykjavíkur í huga og hyggist endurskapa vita á svæðinu eftir nærri aldar fjarveru. Vitinn við anddyri hótelsins verður þó mun minni í sniðum og ólíkur þeim vita sem leiðbeindi sjófarendum á fyrri hluta síðustu aldar. Hann verður að sjálfsögðu ekki eiginlegur viti, miklu fremur táknrænn fyrir gamla tíma. Saga vitanna í 150 ár Í tilefni þess að nýr viti við Sæ- braut var tekinn í notkun í fyrra- sumar rifjaði Morgunblaðið upp vitasögu Reykjavíkur. Vitasaga Reykjavíkurhafnar er orðin löng, eða 123 ár. Jafnvel 150 ár þegar til þess er litið að árið 1870 voru að kröfu skipstjórans á póstskipinu Diönu sett upp tvö ljós- ker. Annað ljóskerið var í Engey en hitt á Arnarhólstúni. Ekki var þó kveikt á þessum ljósum nema sér- staklega væri um það beðið. Þetta voru ekki eiginlegir vitar en vísir að innsiglingarvitum. Það var svo árið 1897 að stigið var mikið framfaraskref. Það ár voru þrír nýir vitar teknir í notkun við Faxaflóa, á Garðskaga, í Gróttu og í Reykjavík. Sá viti var stundum kallaður Skuggahverfisviti en það hverfi austan Kvosarinnar var „fyrsta fortakslausa og ómengaða alþýðuhverfi Reykjavíkur og þar með landsins,“ eins og sagt var. Páll Líndal lýsir hinum nýja vita Reykvíkinga í bók sinni, Reykjavík. Sögustaður við Sund: Árið 1897 var viti reistur í landi Helgastaða og stóð hann skammt austan við húsið Bjarnaborg. Þetta var timburturn, 4-5 metrar í ummál og 10-12 metra hár, að því sagt er, til að leiðbeina skipum á leið til Reykjavíkur, en byggður því nær í dæld, svo sem minnst beri á honum. Þegar bærinn stækkaði hurfu vitaljósin í önnur ljós. Var þá byggður turn ofan á vatnsgeyminn á Rauðarárholti og vitinn fluttur þangað, segir Páll. Þetta mun hafa verið árið 1927. Umræddur vatns- geymir var byggður 1917 og stend- ur við Háteigsveg, milli Sjómanna- skólans og kirkju Óháða safnaðarins. Helgastaðavitinn var ekki raf- lýstur og talsverð vinna að annast hann. Pétur Pétursson vitavörður lýsti starfi sínu þannig: „Fyrst í stað þurfti ég að fara í vitann á hverjum degi, nema björtustu sum- armánuðina. Það var vandasamt á vetrum að halda glerjunum auðum, það var verst þegar var mikið frost og byljir. Ég þurfti ekki aðeins að gæta vitans vel, þegar veður voru slæm, heldur varð ég að sjálfsögðu að sjá um að alltaf væri nóg af gasi.“ Aftur verður viti við Vitastíginn  Viti mun prýða framhlið hins nýja og glæsilega Radisson RED-hótels, sem til stendur að reisa á horni Skúlagötu og Vitastígs  Viti var á svæðinu árin 1897-1927 og af honum dregur gatan nafn sitt Teikning/Kettle Collective Radisson RED-hótels Vitinn mun setja svip á anddyri hótelsins og vitna um fyrri tíma þegar viti var á svæðinu. Helgastaðaviti Timburturn, 4-5 metrar í ummál og 10-12 metra hár.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.