Morgunblaðið - 09.01.2020, Síða 30
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2020
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Úrval af rafdrifnum
hvíldarstólum
Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15
N Ý F O R M
H Ú S G A G N A V E R S L U N
Komið og skoðið úrvalið
100% Merino ull
Flott og þægileg
ullarnærföt
við allar aðstæður
Frábært verð
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík | Sími 561 9200 | run@run.is | runehf.is
OLYMPIA
Sölustaðir:
Hagkaup • Fjarðarkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslun Guðsteins
Eyjólfssonar • Heimkaup • Verslunin Bjarg, Akranesi • JMJ, Akureyri Lífland,
Hvolsvelli og Blönduósi • Verslunin Blossi, Grundafirði Efnalaug Vopnafjarðar
Kaupfélag Skagfirðinga • Smart, Vestmannaeyjum • Verslun Grétars Þórarinns-
sonar, Vestmannaeyjum • Kaupfélag V-Húnvetninga • Borgarsport, Borgarnesi
Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík • Verslun Dóru, Hornafirði
Þernan, Dalvík • Siglósport, Siglufirði • Vaskur, Egilsstöðum
Skóbúð Húsavíkur • Efnalaug Suðurlands, Selfossi • Run.is
Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn
Á nýársdegi fyrir einni öld, árið 1920,
var veðurlýsing bóndans Kristjáns
Halldórssonar á Syðri-Brekkum á
Langanesi heldur óblíð, „norðvestan
hroða stormur með grimmdarfrosti og
renningi en bjart. Allar skepnur inni.“
Í gamalli kommóðu á bænum Syðri-
Brekkum 2 eru gömlu dagbækur
Kristjáns bónda varðveittar en hann
hóf dagbókarskrif fyrst á nýársdegi
árið 1903.
Í þeim bókum er mikill fróðleikur
um störf sauðfjárbóndans, veðurfar,
gestakomur og aðra viðburði. Eftir
dag Kristjáns tók eiginkona hans, Sól-
veig Indriðadóttir við dagbókarskrif-
unum, oft í félagi við Kristínu dóttur
þeirra en síðar tók Kristín alveg við
keflinu.
Núna á nýársdag 2020 byrjaði
Kristín á dagbók nr. 70 og veðurlýsing
þess nýársdags var öllu meinlausari
en hjá föður hennar fyrir hundrað ár-
um: „Hægviðri, bjartviðri, 5 stiga hiti
fyrst í morgun en 3 stig kl. 17. Tókum
bíltúr í góða veðrinu, einkum að horfa
eftir fé, töluverðar snjófannir á
Brekknaheiði.“
Kristín segir að nokkuð sé um það
að fólk hafi samband við hana í leit að
upplýsingum frá fyrri tíð og oftar en
ekki finnst eitthvað um málið í gömlu
dagbókunum. Hún nefnir dæmi um
að þar hafi verið að finna dagsetningu
á því hvenær bærinn Hávarðsstaðir í
Hvammsheiði brann en sá tími var
eitthvað á reiki.
Mestar eru heimildir um sveita-
störfin og það sem að sauðfjárbúskap
snýr; snjóalög, ástand túna og bit-
haga, hvenær fé er sleppt á vorin og
veðurfarið.
Fyrr á árum skipti veður og tíðar-
far bændur miklu og ekki var þá mik-
ið af tækjum til að létta bústörfin eins
og nú á dögum. Í dagbókum Krist-
jáns er því að finna margvíslegar veð-
urlýsingar og orðaforða sem lítt er
notaður í dag enda ná dagbækurnar
nú yfir 117 ár eða rúma öld sem telst
langur tími. „Stundum finnst mér
kvöð að halda þessum skrifum áfram
en ég tel það vera skyldu mína, hver
vill slíta þessa löngu frásögn?“ sagði
Kristín Kristjánsdóttir á Syðri-
Brekkum sem heldur ótrauð áfram
því verki sem faðir hennar hóf árið
1903.
Kristján Halldórsson fæddist 10.8.
árið 1884 og dó 21.11. 1957. Eig-
inkona hans var Sólveig Indriðadóttir
frá Ytra-Fjalli í Aðaldal, fædd 13.5.
1910, d. 16.9. 2000. Jörðin Syðri-
Brekkur á Langanesi er búin að vera
í eigu og ábúð sömu ættar óslitið frá
árinu 1795 og eru þar rekin tvö sauð-
fjárbú.
Við búinu tóku sonar- og dóttur-
sonur þeirra Kristjáns og Sólveigar,
þeir Kristján Indriðason og Þórður
Úlfarsson en þeir tóku við af for-
eldrum sínum, sem einnig búa þar á
bæjunum og taka virkan þátt í bú-
störfunum með sonum sínum.
Veðurlýsingar Austan hroði með örgustu stórrigningu...
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Dagbók Kristín Kristjánsdóttir með fyrstu dagbók föður síns, frá árinu 1903.
Dagbókarritarinn Kristján Hall-
dórsson bóndi frá Syðri-Brekkum.
Norðvestan hroða storm-
ur með grimmdarfrosti
Veðrið á nýárs-
dag fyrir einni öld
Smátt Pappír fór að skorta 1922 og varð þá skriftin smærri.Aldargömul Veðurlýsing í dagbók frá nýársdegi 1920.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
HVAR ER
NÆSTA
VERKSTÆÐI?