Morgunblaðið - 09.01.2020, Side 32

Morgunblaðið - 09.01.2020, Side 32
32 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2020 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Óperettur og valsar eftir Strauss hinn yngri, Franz Lehár, Pjotr Tsjaj- kovskíj, Mélanie Bonis og fleiri eru í öndvegi á Vínartónleikum Sinfóníu- hljómsveitar Íslands sem langri hefð samkvæmt eru haldnir nú í byrjun ársins. Tónleikarnir verða fernir og þeir fyrstu eru í Hörpu í kvöld. „Takt- urinn í völsunum er grípandi og lag- línan dansandi svo hver tónn fylgir þeim næsta rökrænt eftir. Þessi tón- list er ótrúlega heillandi,“ segir Bjarni Frímann Bjarnason hljóm- sveitarstjóri í samtali við Morgun- blaðið. Einsöngvarar með Sinfóníu- hljómsveit Íslands á Vínartónleik- unum að þessu sinni eru Jóna G. Kol- brúnardóttir og Garðar Thór Cortes auk þess sem fram koma dansararnir Þorkell Jónsson, Denise Margrét Yaghi, Gylfi Már Hrafnsson, María Tinna Hauksdóttir, Guðjón Erik Ósk- arsson og Eva Karen Ólafsdóttir. Byrjað á Leðurblökunni Margra á meðal er fastur liður að sækja Vínartónleikanna, en sú hefð að byrja árið á þessum tónleikum á rætur sínar að rekja suður til Austur- ríkis. Fyrir einni öld eða svo voru þar í Vínarborg gjarnan haldnir tónleikar í byrjun árs með völsum Straussfeðg- anna. Tónlistarmenn í öðrum löndum völdu að gera þennan sið að sínum og sjónvarpsupptökur frá svona tón- leikum njóta vinsælda. – Þessir nýárstónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands hefjast ávallt á forleik Jo- hanns Strauss að Leðurblökunni og þeim lýkur á Dónárvalsinum fræga. Tónlist með innistæðu Æfingar hljóðfæraleikara Sinfón- íuhljómsveitar Íslands að undanförnu hafa verið helgaðar vínartónlist. „Sveitin þekkir auðvitað þessa músík sem á sterk ítök í okkur öllum. Þetta er tónlist sem hefur mikla innstæðu og boðskap. Já, það er ekki alveg frítt við að maður komist ögn við þegar hljóðfæraleikur og söngur smella saman,“ segir Bjarni Frímann sem er aðstoðarstjórnandi Sinfóníuhljóm- sveitarinnar. Hann er jafnframt tón- listarstjóri Íslensku óperunnar, pían- isti og fiðluleikari. Grípandi taktur og laglínan dansar  Vinsælir vínarvalsar sem eiga sér langa hefð  Sinfóníuhljómsveit Íslands byrjar árið í Hörpu  Heillandi tónlist, segir stjórnandinn  Strauss hinn yngri og Tsjajkovskíj  Endað við Dóná Stjórnandi Bjarni Frímann Bjarnason sveiflar sprota á æfingu í vikunni. Morgunblaðið/Eggert Valsar Með bogann á þöndum stengjum. Bryndís Halla Gylfadóttir fjær. Söngvarar Garðar Thór Cortes og Jóna G. Kolbrúnardóttir sjást hér syngja á Vínartónleikunum. Nautakjöt, lambakjöt, svínakjöt, grillkjöt, lúxus hamborgarar, bacon og pylsur í brönsinn Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími 7.30-16.30 Sími 557 8866 pantanir@kjotsmidjan.is Komdu við eða sérpantaðu Gæða kjötvörur Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is Góð þjónusta byrjar með flottum fatnaði. Fatnaður fyrir fagfólk

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.