Morgunblaðið - 09.01.2020, Page 34
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Alls seldust 15.740 lítrar af kampavíni
í Vínbúðunum á liðnu ári. Jókst salan
um 1.351 lítra sem jafngildir 9,4%
aukningu.
Langmesta hlutdeild einstakra
framleiðenda hafði kampavínshúsið
Moët & Chandon sem seldi 6.849 lítra
af framleiðslu sinni undir vörumerkj-
unum Moët og Dom Pérignon. Það
jafngildir 43,5% hlutdeild sem verður
að teljast afar sterk. Fyrirtækið er
raunar stærsti kampavínsframleið-
andi í heimi og framleiðir um 35 millj-
ónir flaskna á ári á markaði sem telur
ríflega 300 milljónir flaskna. Salan hér
á landi svarar því til 0,03% af heildar-
framleiðslu Moët & Chandon.
Langvinsælasta einstaka varan í
flokki kampavíns í Vínbúðunum var
750 ml flaska af Moët Brut Imperial
og seldust 3.530 lítrar af því, sam-
anborið við 3.260 lítra í fyrra. Þetta
sama vín er hins vegar selt í tvenns
konar öðrum umbúðum, 1,5 lítra eða
magnum-flöskum og svo í 200 ml
flöskum. Þær raða sér í þrjú af sjö
efstu sætunum eftir mest seldu teg-
undirnar. Stóru flöskurnar seldust í
797 lítrum en þær litlu í 735 lítrum.
Aukningin í fyrrnefndu flöskunum
nam 17,5% milli ára en miklu meiri
aukning varð í síðarnefndu tegundinni
þar sem salan rauk upp um tæp 36%.
Er það kannski til marks um að sífellt
fleiri vilji geta gripið í eitt og eitt glas
af hinu gullna víni, án þess að þurfa að
opna heila 750 ml flösku til þess.
Aðrar tegundir frá Moët virðast
einnig hafa runnið ljúflega niður. Það
á við um Rosé sem seldist í 803 lítrum.
Jókst salan á því um ríflega 82% frá
fyrra ári. Hástökkvarinn hjá framleið-
andanum var hins vegar Moët Ice Im-
perial sem er eitt nýjasta vínið frá
fyrirtækinu. Það er markaðssett í
hvítum flöskum og er sérstaklega
hugsað sem svalandi drykkur sem
borinn er fram á ís (nafnið gefur það
til kynna). Sannkölluð sprenging varð
í sölu þess víns því árið 2018 seldist
það í 239 lítrum en í fyrra var salan
komin í 630 lítra. Raðar vínið sér því í
áttunda sætið yfir mest selda vínið og
hoppar úr 15. sætinu frá árinu á und-
an.
Ódýr nýjung slær í gegn
Ekkert kampavín jókst viðlíka
mikið í sölu á nýliðnu ári og Kirkland
Brut sem er hluti af vörulínu Costco
sem sett hefur nokkrar víntegundir í
sölu í Vínbúðunum í kjölfar opnunar
verslunarinnar í Kauptúni í Garðabæ.
Costco-kampavínið var 9. mest selda
vín ársins og stökk með því upp um
10 sæti frá fyrra ári. Seldust 586 lítr-
ar af víninu í fyrra og nam aukningin
milli ára 417%, hvorki meira né
minna.
Sennilega má rekja vinsældirnar
til þeirrar staðreyndar að flaska af
herlegheitunum kostar 3.929 krónur
eða 2.370 krónum minna en vinsæl-
asta kampavínið fyrrnefnda. Þá má
geta þess að vínið hefur komið ágæt-
lega út í blindsmökkunum. Ef hægt
væri að tala um kampavín sem
„hversdagsvín“ myndi Kirkland
skora hátt á slíkum lista, sökum verðs
og bragðgæða.
Pol Roger á talsverðri siglingu
Af þeim vínum sem koma ný inn í
vínbúðirnar á síðasta ári er það klár-
lega Pol Roger, uppáhald Sir Win-
stons Churchill, sem á sviðið. Brut-
vínið frá húsinu seldist í 357 lítrum á
síðasta ári og spennandi verður að
fylgjast með gengi þess á nýju ári.
Gula ekkjan gefur eftir
Nokkra forvitni vekur þegar sölu-
tölur eru skoðaðar að næstvinsælasta
kampavínið, sem kemur úr smiðju
Gulu ekkjunnar (Veuve Clicquot),
gefur nokkuð eftir milli ára. Þannig
var vinsælasta vínið frá því húsi, sem
er hið næststærsta í heiminum, selt í
ívið minna magni í fyrra en árið 2018.
Þá dregst salan í Veuve Clicquot Rosé
talsvert saman milli ára, fer úr 370
seldum lítrum í 209. Þá dregur einnig
úr sölu á Demi sec, eftirréttavíninu
frá þeim sem fer úr 70 seldum lítrum í
53. Ekki eru augljósar skýringar á
þessum samdrætti, enda er vöru-
merkið sterkt og gæðin jafnast á við
önnur vín í sama verðflokki.
Magnum nýtur vinsælda
Þrátt fyrir fyrrnefndan samdrátt
hjá Gulu ekkjunni er ein vara frá
fyrirtækinu sem sækir mjög í sig
veðrið á árinu. Það eru magnum-
flöskur af hinu hefðbundna brut-víni
sem er hið næstmest selda í Vínbúð-
unum. Hinar stóru 1,5 lítra flöskur
seldust í 182 lítrum og jókst salan um
163% milli ára.
Sú aukning vitnar um meiri vin-
sældir þessara stóru flaskna en líkt og
áður sagði jókst salan á risunum einn-
ig hjá Moët.
Moët með mikla yfirburði
Vínrisinn með 43,5% markaðshlutdeild í kampavíni hjá Vínbúðunum Kirkland frá Costco eykur söl-
una um hundruð prósenta Pol Roger kemur sterkur inn Stærri flöskur njóta sífellt meiri vinsælda
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2020
Sölutölur síðasta árs benda
sterklega til að Íslendingar séu
að uppgötva hið bleika afbrigði
kampavínsins, Rosé. Það er vel
enda oft um afar skemmtileg
vín að ræða. Moët fann fyrir
þessum auknu vinsældum á
árinu en hið sama má segja um
Bollinger sem seldi 81 lítra, en
29 lítra ári fyrr. Síðarnefnda
vínið hefur raunar verið að
koma afar vel út úr smökkunum
og svíkur engan – ekki einu
sinni James Bond. Sennilega
mun Rosé frá fleiri framleið-
endum sjást í Vínbúðunum á
nýju ári.
Rosé aflar
sér vinsælda
BLEIKI LITURINN VINSÆLL
Vinsælt Það var tómlegt um að litast í kampavínsrekkanum í Vínbúðinni í
Smáralind nú eftir áramótin. Sumar tegundir voru einfaldlega uppseldar.
Söluhæstu kampavínstegundirnar í Vínbúðunum
Sæti Lítrar
2019 2018 Magn 2018 2019 Breyting
1 1 Moët & Chandon Brut Imperial 750 ml 3.260 3.530 8,3%
2 2 Veuve Clicquot Brut 750 ml 2.576 2.508 -3,0%
3 3 Bollinger Brut Special Cuvee 750 ml 1.494 1.425 -5%
4 9 Moët & Chandon Rosé Imperial 750 ml 440 803 82,5%
5 5 Moët & Chandon Brut Imperial 1500 ml 678 797 17,5%
6 6 Taittinger Brut Reserve 750 ml 548 740 35%
7 7 Moët & Chandon Brut Imperial 200 ml 541 735 36%
8 15 Moët & Chandon Ice Imperial 750 ml 239 630 163%
9 19 Kirkland Champagne Brut 750 ml 113 586 417%
10 8 Gosset Brut Excellence 750 ml 534 470 -12%
11 4 Charles Ellner Brut 750 ml 968 386 -60%
12 - Pol Roger Reserve Brut 750 ml - 357 Nýtt
13 13 Moët & Chandon Nectar Imperial 750 ml 254 272 7%
14 10 G. H. Mumm Demi Sec 750 ml 410 270 -34%
15 12 Drappier Brut Nature Pinot Noir 750 ml 362 249 -33%
www.hitataekni.is | S: 5886070 | Smiðjuvegur 10 | 200 Kópavogi
HITABLÁSARAR
ertu tilbúin í veturinn?
Þegar aðeins
það besta kemur
til greina
Tilnefningarnefnd VÍS óskar eftir
framboðum til stjórnar
Tilnefningarnefnd VÍS auglýsir eftir framboðum eða tilnefningum til stjórnar VÍS
vegna aðalfundar félagsins sem haldinn verður fimmtudaginn 19. mars 2020.
Frestur til að skila inn framboðum og tilnefningum sem hljóta eiga umfjöllun tilnefningar-
nefndar er til föstudagsins 31. janúar 2020.
Tilkynning um framboð skal vera á sérstöku eyðublaði sem unnt er að nálgast á vef félagsins
á slóðinni www.vis.is/media/174900/frambod-til-stjornarsetu.pdf og skal skila á
netfangið tilnefningarnefnd@vis.is.
Almennur framboðsfrestur til stjórnar samkvæmt samþykktum VÍS er fimm dögum fyrir
aðalfund. Starfsemi tilnefningarnefndar takmarkar ekki heimild frambjóðenda til að skila inn
framboðum til stjórnar allt fram að því tímamarki, en um þau framboð verður ekki fjallað í
tillögu tilnefningarnefndar.
Rökstudd tillaga tilnefningarnefndar um bestu samsetningu stjórnar verður birt samhliða
aðalfundarboði
Vátryggingafélag Íslands | Ármúla 3 | 108 Reykjavík | Sími 560 5000 | vis@vis.is | vis.is
Þessi grein er hluti 14 greina
flokks um kampavín sem að-
gengilegur er innskráðum not-
endum á mbl.is.