Morgunblaðið - 09.01.2020, Page 43

Morgunblaðið - 09.01.2020, Page 43
43 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2020 Mannlíf í miðbænum Eftir snarpa sviptivinda og éljagang stytti upp um tíma í borginni í gær og þá lifnaði fljótlega yfir mannlífinu og sjá mátti ferðamenn og borgarbúa stinga saman nefjum. Eggert Hver áramót marka nýjan tíma. Nú ættu þau að vera hlaðin bjartsýni og krafti og vilja til að takast á við hvert það verkefni sem að höndum ber, mannkyninu og jörð- inni til blessunar. En tilfinningar og von- andi öfgaspár leiða okkur að helvegi svartra skugga, um að jörðin farist í tíð núverandi kynslóðar. Í umræðunni eru efasemd- armenn, sem einnig styðjast við vísindalegar forsendur, sagðir falsspámenn og um þá marga er rætt sem boðbera fáfræðinnar. Ef þú vilt hafa frið ferðu í umræðuna með kór „rétttrúnaðarins,“ og vel- ur þér að gráta og fylgja fjöldan- um og fullyrðingunni um að jörðin farist innan 30 ára og hamfarirnar séu manninum einum að kenna. Ég hef lifað af nokkrar harka- legar spár um heimsendi. Faðir minn sagði mér frá spámanninum, sem fór um Flóann bæ frá bæ fyr- ir eitt hundrað árum, og boðaði heimsendi haustið 1920 út af synd- um mannanna. Konur grétu og börn urðu hrædd og einn bóndi tók mark á spámanninum og setti ekki niður útsæðið sitt um vorið. Hann fékk engar kartöflur upp um haustið. Svo bætti gamli maðurinn við „Og enn snýst jörðin.“ Kjarnorkuspreng- ingin var stærsta ógn æsku minnar. Nú er upp runnin fjórða heimsendaspáin á 40 árum. Fyrst var það ósonlagið, svo var það súra regnið, síðan kom þúsaldarbylt- ingin eða 2000 vandinn. Og nú er það hamfarahlýnun af mannavöld- um. Dómsdagur er sem sé í nánd, en þessi fullyrðing hefur fylgt manninum frá örófi alda. Í gegn- um aldir var kenningin trúarlegs eðlis nú vísindalegs eðlis og henni fylgir reyndar öfgatrúin: „Vér ein- ir vitum.“ Ég tók eftir því í haust í Kastljósi RÚV um ógnina að kona vísindalærð efaðist um að svona væri komið og studdist við vís- indaleg rök. Hún var hreinlega of- sótt í þættinum sem hin „bersynd- uga.“ Auðvitað vissi veðurblíðan á Íslandi á endalok veraldarinnar af mannavöldum, hvað annað? Nú í hamfaraveðrinu fyrir jólin var það einnig sprottið af mannavöldum, endalok jarðarinnar blöstu við. Gamla fólkið sagði gjarnan: „Það er ekkert nýtt undir sólinni.“ Nú er ég gamall sem á grönum má sjá og ég hef lifað mörg svona veður, hlý sólskinssumur og harða storma vetrarvindanna. Páll Bergþórsson talar af visku öldungsins Ég vil þó fagna vakningu unga fólksins og baráttu Gretu Thun- berg. Sú barátta vinnur gegn brjálæðislegri græðgi og gegn öfg- um hamfaraflutninga og sóun samtímans, verði hún ekki að hamfarahræðslu. Okkur ber að draga úr of mikilli neyslu og margt er hægt að gera til að vinna gegn hlýnun jarðarinnar. Ég vil taka undir hógvær orð sem Páll Bergþórsson veðurfræðingur setti inn á „Fasbókina,“ sína, en Páll er dáður af þjóð sinni sem rökfastur og stilltur maður í öllum boðskap. Páll segir: „Hamfarahlýnun jarðar er vonandi markleysa.“ Svo rakti hann fjölgun mannkynsins úr 2 milljörðum, árið 1950, í 8 millj- arða, árið 2020. Með sömu þróun væri mannfjöldinn orðinn 14 millj- arðar, árið 2090. Og 20 milljarðar, árið 2160. Páll telur að fjölgunin sé að nálgast það sem jörðin ræður við og að hlýnunin fylgi hverri millj- arða aukningu fólks. „Þarna liggur hundurinn grafinn.“ Jörðin ber ekki aukinn mannfjölda og alls ekki þegar Asíu- og Afríkulöndin fara að gera sömu kröfur til lífs- nautnar og við gerum í dag. Ætla má að Ísland beri eina milljón manna með góðu en veröldin átta til tíu milljarða manna. Stóri ger- andinn er auðvitað iðnbyltingin og óhófið, kolin, jarðolían og gasið, plastið og gerviefnin. Nú nær sjór og gróður að taka upp helming þess koltvísýrings sem berst inn í andrúmsloftið. Hinn helmingurinn safnast fyrir í lofthjúpi jarðar og eykur gróðurhúsaáhrifin. Því er ástand loftslagsmálanna verkefni, sem þarf að leysa, en ekki dauða- dómur yfir jörð og mannkyni. Ég á mér engan betri vísinda- mann eða spámann til að fylgja í þessu efni en Pál Bergþórsson, sem enn sendir okkur veðurspár við ris sólar á hverjum morgni og veltir vöngum yfir vanda jarð- arinnar. Verkefnið er hinsvegar eitt, að bjarga jörðinni fyrir kom- andi kynslóðir. Mikilvægt er að brauðfæða og mennta allt fólk jarðarinnar og framleiða matinn sem næst hverjum munni. Í því sambandi ber að minna á að land- búnaðarvörurnar framleiðist hér heima en komi ekki til okkar er- lendis frá með flugvélum. Draga þarf úr öllu bruðli og muna að sjórinn tekur ekki endalaust við. Þetta er verkefni hverrar fjöl- skyldu, atvinnulífsins og ríkis- stjórna þjóðanna. En stærsti sig- urinn mun vinnast ef Sameinuðu þjóðirnar koma sér saman um markvissar reglur og þeim verði fylgt. Lögmálin um köld og hlý veðurtímabil munu engu að síður halda áfram. Páll segir hinsvegar að nú fari að kólna á ný og mann- kyni jarðar hætti að fjölga. Þar liggur ákveðin lausn. En gerum það sem við getum gert. Gerum það með bjartsýni og trú. Við bú- um við hita og rafmagn úr end- urnýjanlegum orkulindum og get- um bætt okkar stöðu til sjávar og sveita. Heimurinn á tækifæri í sól- arorku, vindorku og sjávar- fallaorku og Kínverjar eru að farnir að virkja jarðvarmann. Þannig mætti áfram telja. Það er lúxusvandi sem tröllríður háttalagi okkar eins og annarra efnaðra þjóða og gerviefnin og ruslahaugarnir vitna um það. „Grátur í nútíð er framtíðarböl.“ Eftir Guðna Ágústsson » Fyrst var það óson-lagið, svo var það súra regnið, síðan kom þúsaldarbyltingin eða 2000 vandinn. Og nú er það hamfarahlýnun af mannavöldum. Guðni Ágústsson Höfundur er fv. alþingismaður og ráðherra. Hamfarahlýnun – Dómsdagur eða blekking? Í fréttum ríkis- útvarpsins fimmtu- daginn 2. janúar var sagt frá viðbrögðum Khameneis æðsta- klerks í Íran við loft- árás Bandaríkja- manna á skæruliðasveitir Hez- bollah-samtakanna í Írak. Khamenei lýsti gremju sinni og hneykslun á framferði Bandaríkjamanna í twitterfærslu. Var ekki laust við að hlustanda þætti fréttamaður ríkisútvarpsins taka undir með Khamenei, sem fordæmdi Bandaríkjamenn og árásir þeirra. Daginn eftir, 3. janúar, var svo einum af æðstu ráðamönnum Ír- ans, hershöfðinganum Qasem So- leimani, grandað í drónaárás Bandaríkjahers á bílalest hans við alþjóðaflugvöllinn í Bagdad. So- leimani var mjög náinn samstarfs- maður Khameneis og yfirmaður sérsveitarinnar „Quad Force“, sem er hluti af Byltingarvarðliðinu. Sveitinni er aðallega ætlað að styðja baráttu skæruliðahópa vin- veitta Íransstjórn í nágrannalönd- unum. Fréttir af drápi Soleimanis voru um margt hógværari og að- ilar hvattir til að gæta stillingar, en Khame- nei lýsti strax yfir að vígis Soleimanis yrði grimmilega hefnt. Soleimani var að mati flestra sem til þekkja rakið illmenni með dráp þúsunda samborgara sinna á samviskunni. Væri það efni í aðra grein að lýsa öllum ill- virkjum hans. Hins vegar verður að telj- ast óráðlegt að ráða menn af dög- um án dóms og laga með þessum hætti, þótt Obama forseti hafi vissulega gert það sama við Osama bin Laden. Betra væri að hafa hendur í hári svona manna og afhenda þá Alþjóðadómstólnum í Haag, þar sem réttað væri yfir þeim, en báðir þessir menn hefðu eflaust verið fundnir sekir um glæpi gegn mannkyni. Víkjum nú sögunni að innan- landsátökum í Íran, þar sem al- menningur hefur búið við ógn- arstjórn morðóðu klerkanna í 40 ár. Miklar óeirðir brutust út í mörgum borgum Írans í nóvember síðastliðnum. Hressileg verðhækk- un (300%) á eldsneyti í Íran varð kveikja að fjölmennum mótmælum almennings í öllum stærstu borg- um Írans. Mótmælendur kröfðust umbóta, meira frelsis til athafna og bætts efnahags, en atvinnuleysi í landinu er mjög mikið, einkum meðal ungs fólks, og almenn fá- tækt mikil. Voru hrópuð slagorð á götum úti: dauði yfir Khamenei, dauði yfir Rouhani, við höfum grátið blóðugum tárum í 40 ár. Það er komið nóg, nú stöndum við upp. Klerkunum, sem öllu ráða í landinu, er skítsama um kjör al- mennings. Það er einkennandi fyr- ir stjórn þeirra, að þeir fjármunir sem voru á reikningum írönsku stjórnarinnar í útlöndum, um 90 milljarðar bandaríkjadala, og höfðu verið frystir þar til efna- hagsþvingunum var aflétt í kjölfar kjarnorkusamnings vestur- veldanna og Írans, hafa nær ein- göngu verið notaðir til þess að styrkja skæruliðahópa í nágranna- ríkjunum. Þannig hefur klerka- stjórnin kynt undir áframhaldandi átökum í Mið-Austurlöndum frek- ar en styrkja efnahags landsins og bæta kjör almennings í Íran. 17. nóvember keyrði um þver- bak. Miklar mótmælagöngur fóru fram í Teheran og öðrum borgum í Íran. Khamenei skipaði Bylting- arvarðliðinu þá að ráðast gegn mótmælendum af fullri hörku. Er ekki ólíklegt að Soleimani, helzti trúnaðarmaður hans, hafi skipu- lagt mótaðgerðirnar. Þær fólust m.a. í því að skjóta vopnlausa mót- mælendur unnvörpum og fangelsa þúsundir þeirra án dóms og laga. Samtök frjálsra Írana í Evrópu telja að yfir 1.500 manns hafi verið skotnir til bana af byltingar- varðliðum í nóvembermótmæl- unum. Amnesty International hef- ur rannsakað ástandið og staðfest dauða 304 mótmælenda, og Sam- tök frjálsra Írana í Evrópu hafa safnað saman upplýsingum og myndum af 647 mótmælendum sem hafa verið drepnir af bylting- arvarðliðum. Þing fjölmargra Evrópuþjóða (Þýskaland, Holland, Frakkland og Portúgal) svo og fulltrúadeild bandaríska þingsins og Evrópu- þingið í Strassborg hafa samþykkt harðorðar ályktanir gegn þessari meðferð klerkastjórnarinnar á eig- in þegnum og mannréttinda- brotum hennar, en aðrar Evr- ópuþjóðir látið þetta að mestu afskiptalaust. Það er athyglisvert, að lítill sem enginn fréttaflutningur hefur verið af þessum mótmælum í Íran í evr- ópskum fjölmiðlum, nema þá helzt í enskumælandi fjölmiðlum, BBC og Washington Post, svo að dæmi séu nefnd. Það þykja engin tíðindi að yfir 1.500 saklausir borgarar séu brytjaðir niður á götum úti í borgum Írans fyrir það eitt að mótmæla bágum kjörum sínum. Greinarhöfundur minnist þess ekki að hafa heyrt eina einustu frétt um þessi mótmæli í íslensk- um fjölmiðlum. Yfirleitt gætir mik- ils tómlætis í garð ástandsins í Ír- an hjá valdhöfum og fréttamiðlum í Evrópu. Menn virðast sáttir við klerkastjórnina og mannréttinda- brot hennar. Vilja fremur reyna að hagnast á viðskiptum við hana. Ekkert kemur klerkunum betur en þetta tómlæti Vesturlanda, sem er ekkert annað en fullur stuðn- ingur við harðstjórn þeirra. Hins vegar eru flestir fjölmiðlar mjög uppteknir af því, að íranskur djöf- ull í mannsmynd hafi verið drep- inn og halda vart vatni yfir því. Eftir Júlíus Sólnes » Það þykja engin tíð- indi að yfir 1.500 saklausir borgarar séu brytjaðir niður á götum úti í borgum Írans fyrir það eitt að mótmæla bágum kjörum sínum. Júlíus Sólnes Höfundur er prófessor emerítus og fv. umhverfisráðherra. Átök í Íran og Írak

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.