Morgunblaðið - 09.01.2020, Side 62
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2020
veita náttúrulega vörn
gegn bakteríum í munninum
Tvíþætt sink
og arginín
Dregur úr
tannskán
Styrkir
glerunginn
Dregur úr
tannskemmdum
Frískari
andardráttur
Dregur úr
blettamyndun
Dregur úr
viðkvæmni
Dregur úr
tannsteini
Fyrirbyggir
tannholdsbólgu
NÝTT
Veruleg fækkun baktería á
tönnum, tungu, kinnum og
gómi eftir samfellda notkun
í fjórar vikur.
BYLTING FYRIR
ALLANMUNNINN
Heildarvörn fyrir tennur, tungu, kinnar og tannhold
Frábær
vörn í
12
tíma
Gleðilegt ár kæru lesendurog velkomin í HeilsuhornKaju. Áramótin eru að baki
og margir hafa sett sér markmið
á nýju ári. Algengustu markmiðin
eru að venju að létta sig, hætta
einhverju eða bæta einhverju inn í
sína daglegu rútínu. Markmiðin
tengjast oftar en ekki því að bæta
heilsu og vellíðan, sem er gott og
gilt, en þegar líða tekur á árið
renna markmiðin oftar en ekki út
í sandinn sennilega sökum þess að
þau voru of háleit og/eða of erfitt
að fylgja þeim.
Í þessum pistli ætla ég að gefa
nokkur góð ráð sem hafa það að
markmiði að minnka sykurneysl-
una, ekki hætta henni alveg. Með
því einu að velja hollari viðbættan
sykur geturðu stórbætt heilsu
þína og um leið minnkað syk-
urneyslu. Ef við byrjum á byrj-
unni ég legg til að þú lesir fyrstu
tvo pistlana mína um viðbættan
sykur til þess að þú verðir meðvit-
aður/meðvituð um hvað við-
bættur sykur er og hvaða heiti
hann hefur. Í framhaldi af þeim
lestri skaltu setja þér markmið
um hvaða viðbætta sykur þú ætl-
ar að útiloka úr mataræði þínu og
hvaða viðbætta sykri þú ætlar að
halda inni. Ég mæli með að halda
inni pálmasykri, hunangi og
hlynsírópi. Þetta þrennt er nátt-
úrulegur sykur sem inniheldur
næringu að einhverju leyti. Þessi
ákvörðun, þ.e. að henda út úr
mataræðinu öllum hinum við-
bætta sykrinum, kallar á mjög svo
breyttan lífsstíl en samt sem áður
geturðu gert þér glaðan dag með
pálmasykri, hunangi og/eða
hlynsírópi. Því að fá sér 70%
súkkulaði með hrásykri ætti einn-
ig að halda inni enda hefur það lít-
il áhrif á sykurpúkann. Skýr-
inguna tel ég vera að með neyslu
á 70% súkkulaði innbyrðir þú það
mikla næringu að líkaminn segir
sjálfkrafa stopp, þ.e. hátt hlutfall
kakómassa verður náttúrulegur
„sykurfíknarstoppari“.
Síðan er algjör skylda að lesa
innihaldslýsingar þegar farið er
að versla og sleppa þeim vörum
sem innihalda þann sykur sem er í
banni.
Þeir sem hætta í viðbættum
sykri fara oft í það að fá sér
þurrkaða ávexti og falla í þá
gryfju að borða óhóflega af þeim.
Til að koma í veg fyrir óhóf er
besta ráðið að borða ætíð hnetur
og/eða fræ með þurrkuðum
ávöxtum því prótínið og næringin
í hnetum og fræjum býr til þennan
líkamlega „sykurfíknarstoppara“.
Fyrir kökufíklana er mjög gott
ráð að nota heilhveiti 2⁄3 með hvíta
hveitinu og lífrænan reyrsykur
(hrásykur) í staðinn fyrir þann
hvíta. Næringin og trefjarnar sem
eru í heilhveitinu og að einhverju
leyti í reyrsykrinum verða að hin-
um náttúrulega „sykurfíknar-
stoppara“.
Lífrænar kveðjur
Kaja
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Leiðbeinir fólki Karen Jónsdóttir eða Kaja eins og hún er alla jafna
kölluð er mikil baráttukona fyrir bættum lífsstíl og rekur meðal ann-
ars Kaja Organic, Matbúr Kaju og Kaffi Kaja á Akranesi.
Nýtt ár – ný markmið
Heilsuhorn Kaju
Bátur
2x bátabrauð (fást í Hag-
kaupum, t.d.)
rauðkál (mæli með frá
Beauvais)
súrar gúrkur (mæli með
frá Beauvais)
1 laukur
25 g smjör
steiktur laukur
tilbúið roastbeff ca. 250 g
ef á að gera 2 báta (fæst í
kjörbúð sem álegg)
aromat-krydd
Sinnepssósa:
250 g majónes
3 msk. sætt sinnep (mæli
með frá Bähncke)
2 msk. hunang
smá aromat-krydd
Byrjið á að skera lauk í
ræmur og steikja með
smjörinu á pönnu, passið
að steikja við mjög vægan
hita, meira svona sjóða
hann í smjörinu en
steikja þar til hann er
mjúkur
Byrjið svo á sinn-
epssósunni en þar er öllu
bara hrært saman sem á
að vera í henni.
Setjið svo bátabrauðið
á pönnuna við vægan hita
og ristið að innan og utan,
ekki skera brauðið alveg í
sundur, heldur leyfið því
að hanga saman á annarri
hliðinni.
Takið af pönnunni og
setjið þá roastbeef, lauk-
inn sem þið voruð að
mýkja, súru gúrkurnar
og rauðkálið á pönnu við
vægan hita og leyfið því
svona að léttsteikjast
saman (athugið hér er
magnið eftir smekk en ég
set alveg 5-6 sneiðar af
roastbeef á hvern bát og
vel af gúrkum, rauðkáli
og lauk).
Kryddið með smá aro-
mat.
Setjið svo sósu á brauð-
ið og vel af henni.
Raðið svo öllu á milli
sem var á pönnunni og
stráið steiktum lauk (þá
svona pylsusteiktum
lauk) yfir allt og sósu aft-
ur.
Lokið bátnum og hitið
smá aftur á pönnunni.
Gott er svo að vefja
honum inn í smjörpappír
til að borða hann.
Sveittur bátur með roastbeef,
sinnepssósu, súrum gúrkum,
rauðkáli, steiktum og svissuðum lauk
Þessi fyrirsögn myndi auðveldlega
flokkast sem ómótstæðileg enda er
flest það sem María Gomez á Paz.is
gerir í þeim flokki. Það var hún sjálf
sem notaði orðið „sveitt“ og við tök-
um bara undir það heilshugar enda
fátt meira viðeigandi í janúarlægð-
unum. María segir að lykilatriðið hér
sé gott hráefni og þá ekki síst rauð-
kálið og sósan sem sé það sem mestu
máli skipti. Rétturinn sé óhemju-
vinsæll á hennar heimili þar sem hann
er reglulega galdraður fram við mik-
inn fögnuð viðstaddra.
Ljósmynd/María Gomez
Matarmikill og æðislegur
Hvað er betra en bragð-
mikill bátur sem ærir
bragðlaukana?
Jordan Green Clean var valinn besti umhverfisvæni tann-
burstinn í Politiken í lok nóvember. Dómarar voru Michael
René, hreinlætissérfræðingur hjá University College Co-
penhagen, og Louise Thustrup frá tímaritinu SustainDaily,
sem einbeitir sér að því að hjálpa lesendum að lifa um-
hverfisvænna lífi. Þau sögðu meðal annars að gripið á
Green Clean væri þægilegt en burstinn væri þéttur og
breiður. Auðvelt er að ná til allra tanna vegna lögunar
hans.
Green Clean, umhverfisvænu tannburstarnir frá Jordan,
hafa slegið í gegn hér á landi síðan þeir komu í verslanir í
byrjun árs og hafa viðtökurnar verið framar björtustu von-
um að sögn Andreu Björnsdóttur, markaðsstjóra Linday,
sem flytur tannburstana inn.
Jordan Green Clean er unninn úr endurunnu plasti,
tannhárin eru lífbrjótanleg og umbúðirnar úr endurunnum
pappa þannig að hann tikkar í öll box auk þess sem hann
er fáanlegur í einstaklega fallegum litum.
Valinn besti umhverfis-
væni tannburstinn
Umhverfisvænn Nýi tannburstinn frá Jordan hef-
ur fengið fádæma góðar viðtökur enda umhverf-
isvænn og í takt við nútímaþarfir neytenda.