Morgunblaðið - 09.01.2020, Page 69

Morgunblaðið - 09.01.2020, Page 69
EM 2020 Kristján Jónsson kris@mbl.is Eyjamaðurinn Erlingur Rich- ardsson er mættur með hollenska landsliðið til Noregs en í dag mætir Holland liði Þýskalands þegar EM karla í handknattleik hefst. Um tímamót er að ræða hjá Hollend- ingum því karlaliðið er í fyrsta skipti á EM og hefur aðeins einu sinni áður komist í lokakeppni stórmóts en það var á HM 1961. Kvennalandslið Hol- lands hefur hins vegar látið að sér kveða á undanförnum árum og er nú- verandi heimsmeistari. „Þetta er stórt skref fyrir þennan hóp því þetta er í fyrsta sinn sem þeir fara á stórmót. Þetta er því nýtt fyrir alla mína leikmenn og við erum í riðli með sigurvegurum síðustu tveggja Evrópumóta: Spáni og Þýskalandi. Þetta er því stórt verk- efni en við verðum að nota tækifærið og njóta þess að vera hérna á stóra sviðinu,“ sagði Erlingur þegar Morg- unblaðið náði tali af honum í gær. Eftirvæntingin er skiljanlega mikil og tilfinningarnar flæddu um fund- arherbergið þegar Erlingur tilkynnti hverjir skipa leikmannahópinn á EM. „Þegar ég tilkynnti hópinn eftir vináttuleiki í Sviss á sunnudaginn þá grétu menn bara til skiptis á öxlinni hver á öðrum. Sumir vegna vegna þess að þeir fengu þær fréttir að þeir færu ekki á EM og svo aðrir vegna þess að þeir höfðu beðið eftir þessu tækifæri nánast allan sinn feril. Þarna voru miklar tilfinningar og það lýsir því kannski best hversu mikla þýðingu þetta hefur. Þarna sá maður hversu stórt þetta er fyrir þessa stráka.“ Markið var sett á EM Liðum hefur verið fjölgað í loka- keppni EM og Erlingur segir að markið hafi verið sett á að komast á EM þegar undankeppnin hófst. Jafn- vel þótt Holland hafi aldrei komist á EM og aðeins einu sinni á HM. Hann nefnir hins vegar að eftir því sé tekið að Holland sé nú með bæði landslið sín á stórmóti og kvennaliðið í fremstu röð. „Þau skilaboð sem ég fékk voru að markmiðið væri að liðið kæmist á EM. Einnig spilaði inn í að liðum væri fjölgað í keppninni. Við vorum í hörkukeppni í riðlinum og töpuðum til að mynda gegn Slóveníu á heima- velli með eins marks mun í leik þar sem við vorum lengi vel yfir. Setti það okkur í þá stöðu að þurfa að vinna Letta heima með nokkrum mun. Þá var nokkur pressa en okkur tókst að vinna leikinn og komast áfram,“ sagði Erlingur sem áður þjálfaði erlendis þegar hann stýrði Füsche Berlín í Þýskalandi. Í ein- hverjum tilfellum ræðir hann við hol- lensku leikmennina á þýsku ef þeir kjósa það frekar en enskuna. Hins vegar er enskan ríkjandi í sam- skiptum Erlings við Hollendingana. „Já, ég tala ensku en nokkrir leik- menn vilja frekar tala þýskuna við mig maður á mann. Ég reyni þá að klóra mig í gegnum það en annars er enskan notuð bæði á gólfinu og á fundum. Því fylgja engin vandamál.“ Sex leikmenn í Þýskalandi Lið Hollands er ekki komið á stór- mót að ástæðulausu. Í leikmanna- hópnum eru sex leikmenn sem leika í þýsku bundesligunni. Fimm þeirra eru innan um Íslendinga hjá Nord- horn, Lemgo og Bergischer. Eru þeir einnig með menn í efstu deild í Frakklandi, Danmörku og Póllandi. Spurður út í hollenska liðið sagði hann það vera blöndu af hávöxnum leikmönnum og lágvaxnari. „Miðju- maðurinn okkar [Luc Steins] er mjög lágvaxinn og spilar mjög hratt. Hann hefur svakalega þekkingu á íþróttinni varðandi taktík og fleira. Hann var leikmaður októbermán- aðar í Frakklandi. Á hinn bóginn fengum við inn tvo unga stráka í miðja vörnina en þeir byrjuðu að spila með okkur í haust. Þeir eru stærri og sterkari. Ég myndi því segja að þetta sé mjög blandað lið og líkamlega mætti kannski segja að það sé líkt því íslenska. En við erum ekki með leikmann eins og Aron Pálmarsson sem getur dregið lið langt með sinni einstaklingsfærni. Við þurfum að treysta á liðsheild- ina,“ sagði Erlingur og gat þess einn- ig að hann nær ekki að tefla fram reyndum leikmanni, Fabian van Olp- hen, sem leikur með Lemgo og var áður hjá Magdeburg. Van Olphen var ekki með Hollendingum í und- ankeppninni er var tilbúinn til að taka slaginn á EM. Hann meiddist hins vegar á hné á dögunum og er úr leik. Njóta augnabliksins Riðill Hollendinga er svolítið und- arlegur. Þar eru annars vegar tvær elítuþjóðir í handboltanum: Þjóð- verjar og Spánverjar, en hins vegar Hollendingar og Lettar sem hafa litla reynslu af stórmótum. „Það verður dálítið fróðlegt að sjá hvernig þetta fer af stað hjá okkur. Við erum með þrjá leikmenn sem hafa spilað færri en tíu A-landsleiki. Eins og ég sagði þá ætlum við að njóta augnabliksins og spila eins góð- an handbolta og við getum. Kannski getum við sett þessar stóru þjóðir í erfiða stöðu,“ sagði Erlingur Rich- ardsson í samtali við Morgunblaðið. „Verður fróðlegt“  Erlingur Richardsson mun glíma við Þjóðverja og Spánverja á EM  Stór áfangi fyrir Hollendingana  Leikmenn grétu þegar hópurinn var valinn Holland Erlingur Richardsson verður fyrsti þjálfarinn til að leiða hollenskt karlalandslið á EM í handbolta. ÍÞRÓTTIR 69 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2020 Við hverju eigum við að búast af íslenska karlalandsliðinu í Evr- ópukeppninni í handbolta sem hefst í dag? Afrek á borð við silfrið í Pek- ing og bronsið í Vínarborg eru ekki í sjónmáli hjá „strákunum okkar“ að þessu sinni. Við sáum í vináttuleiknum við Þjóðverja um síðustu helgi að bilið á milli okkar liðs og þeirra bestu er of mikið eins og sakir standa. Auðvitað gæti allt smollið saman þegar í mótið er komið. Annað eins hefur gerst þegar Guðmundur Guðmundsson er annars vegar. En í fyrsta lagi þarf varnar- leikurinn að vera með allra besta móti og þar virðist liðið enn eiga talsvert í land. Óvissuþættirnir þar eru margir. Í öðru lagi þarf markvarslan að vera mjög góð og stöðug en hún hefur því miður verið hálfgerður akkilesarhæll hjá liðinu í seinni tíð. Í þriðja lagi þarf Aron Pálm- arsson að eiga sitt besta stórmót og draga félagana með sér. Gangi þetta þrennt upp gæti liðið skákað Rússum og Ungverj- um og þar með endað í hópi tólf bestu liðanna. Hugsanlega komist í baráttu um sæti í undankeppni Ólympíuleikanna. Það yrði frábær árangur. Ég er spenntastur fyrir því að sjá hvort hinir kornungu Viktor Gísli Hallgrímsson og Haukur Þrastarson, 19 og 18 ára gamlir, nái að taka stór skref á þessu móti. Viktor er efnilegasti markvörð- ur sem við höfum eignast um ára- bil og Haukur getur náð afar langt í íþróttinni. Þeir munu öðlast dýr- mæta reynslu í Malmö. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is EM 2020 Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Danir eru fyrstu andstæðingar Ís- lendinga á Evrópumótinu í hand- knattleik karla á laugardaginn og þeir mæta til leiks með eitt mark- mið: Að verða Evrópumeistarar, og þar með að verða handhafar allra þriggja stóru titlanna í handbolt- anum. Þeir eru ríkjandi ólympíu- meistarar frá 2016 og heimsmeist- arar frá 2019. Aðeins Frakkar hafa áður unnið þetta afrek, í tvígang, en nú fá Danir tækifærið. Norðmenn, Frakkar og Þjóð- verjar komust með Dönum í undan- úrslitin á HM fyrir sléttu ári. Spán- verjar eru ríkjandi Evrópumeistarar og Króatar eru alltaf líklegir til að fara langt á stórmótunum en hafa sérhæft sig í bronsverðlaunum und- anfarinn áratug. Að viðbættum Sví- um, undir stjórn Kristjáns Andrés- sonar, ættu þetta að vera þjóðirnar sem berjast um verðlaunin á þessu sérstaka Evrópumóti sem haldið er í þremur löndum, Noregi, Svíþjóð og Austurríki, en þetta er í fyrsta sinn sem mótið er leikið í meira en einu landi. Stærsta keppnin og Ísland í ellefta sinn í röð Keppnin er stærri en nokkru sinni fyrr því liðum var fjölgað úr 16 í 24. Ísland er með í ellefta skiptið í röð en íslenska liðið hefur verið þátttak- andi í lokakeppninni samfleytt frá árinu 2000. Einu sinni hefur liðið komist á verðlaunapall en það var í Austurríki árið 2010 þegar það hreppti bronsverðlaunin og þá komst Ísland í undanúrslitin árið 2002 þegar það hafnaði í fjórða sæti eftir tap gegn Dönum í leik um bronsið. Guðmundur Þ. Guðmundsson var þjálfari Íslands í bæði skiptin sem það hefur komist í undanúrslitin. Liðin 24 leika í sex riðlum þar sem A- og B-riðlarnir eru leiknir í Graz og Vín í Austurríki, C- og D-riðlarnir í Þrándheimi í Noregi og E- og F- riðlarnir í Malmö og Gautaborg í Svíþjóð. Riðlarnir eru þannig skip- aðir: A-riðill: Króatía, Hvíta-Rússland, Svartfjallaland og Serbía. B-riðill: Tékkland, Norður- Makedónía, Austurríki og Úkraína. C-riðill: Spánn, Þýskaland, Lett- land og Holland. D-riðill: Frakkland, Noregur, Portúgal og Bosnía. E-riðill: Danmörk, Ungverjaland, Ísland og Rússland. F-riðill: Svíþjóð, Slóvenía, Sviss og Pólland. Milliriðillinn líka í Malmö Tvö efstu liðin í A-, B- og C-riðlum fara í milliriðil I sem verður leikinn í Vín en tvö efstu lið í D-, E- og F- riðlum fara í milliriðil II sem verður leikinn í Malmö. Keppnin er því hagstæð fyrir ís- lenska liðið sem verður um kyrrt í Malmö, takist því að komast áfram úr E-riðli keppninnar. Þá myndi Ís- land væntanlega mæta Frakklandi, Noregi, Svíþjóð og Slóveníu í milli- riðlinum og taka með sér þangað úr- slitin úr leiknum við Dani, að því gefnu að það yrðu Danmörk og Ís- land sem færu áfram úr E-riðlinum. Ekki er leikið um sæti 13 til 24 þannig að þau lið sem enda í þriðja og fjórða sæti riðlanna sex hafa þar með lokið keppni eftir þrjá leiki. Ísland mætir Danmörku í fyrsta leik sínum á laugardaginn, Rúss- landi mánudaginn 13. janúar og Ungverjalandi miðvikudaginn 15. janúar. Allir leikirnir hefjast klukk- an 17.15 að íslenskum tíma. Leikir dagsins á EM: A: Hv.Rússland – Serbía kl. 17.15 C: Þýskaland – Holland kl. 17.15 A: Króatía – Svartfjallal. kl. 19.30 C: Spánn – Lettland kl. 19.30 Danir stefna á magnað afrek  EM í handbolta hefst í dag  Verða Danir handhafar allra þriggja titlanna? Rúnar Krist- insson og læri- sveinar hans í KR hefja titilvörnina á Íslandsmóti karla í knatt- spyrnu næsta vor með útileik gegn erkifjendunum í Val. KR-ingar urðu Íslands- meistarar á Hlíð- arenda í haust og eiga því góðar minningar þaðan. Leikurinn fer fram síðasta vetrardag, miðvikudags- kvöldið 22. apríl, og þetta verður fyrsti leikur mótsins, sem aldrei hef- ur byrjað jafn snemma. Grótta leikur sinn fyrsta leik í efstu deild á Kópavogsvelli, gegn Breiðabliki, og mætir því Óskari Hrafni Þorvaldssyni, sem kom Sel- tirningum upp um tvær deildir áður en hann tók við þjálfun Breiðabliks í vetur. Í fyrstu umferð mætast líka HK – FH, ÍA – KA, Víkingur R. – Fjölnir og Stjarnan – Fylkir en þeir leikir fara fram 23. og 24. apríl. Fimm af heima- liðunum sex eru með gervigras á sín- um heimavelli en Skagamenn kepp- ast nú við að gera sinn grasvöll kláran fyrir 23. apríl. vs@mbl.is KR-ingar byrja á Hlíðarenda Rúnar Kristinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.