Morgunblaðið - 27.02.2020, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2020
Stjórnarandstaðan á þingi gerirsér oft leik að því að stríða
stjórnarliðum fyrir að stjórnar-
frumvörp berist þinginu seint og illa
og afgreiðsla mála
tefjist um of. Afköst-
in séu sem sagt ekki
næg á þinginu. Þor-
steinn Víglundsson,
þingmaður Við-
reisnar, hélt eina
slíka ræðu á Alþingi
í fyrradag og tók að
auki upp á þeim
sniðugheitum að
„lýsa eftir ríkis-
stjórninni“. Þá reis
Oddný G. Harðar-
dóttir, þingmaður
Samfylkingarinnar,
úr sæti sínu og lýsti
stuðningi við um-
kvartanir flokkshálf-
bróður síns Þorsteins um að of fá
mál kæmu frá ríkisstjórninni.
Við þetta tók til máls Birgir Ár-mannsson, þingflokksformaður
Sjálfstæðisflokksins, og benti á að
magn væri ekki sama og gæði „og
mælikvarði á árangur og gæði þing-
starfanna felst ekki endilega í fjölda
samþykktra mála og heldur ekki í
fjölda framlagðra mála“.
Birgir lýsti þeirri skoðun sinni aðbesta ríkisstjórnin væri ekki
endilega sú sem léti afgreiða flest
frumvörpin, en það skipti máli að
málin horfðu til framfara.
Það er mikið til í þessu og oft ermeiri ástæða til að hafa áhyggj-
ur af því að mál séu lögð fram en að
það sé látið ógert. Og svo má spyrja,
miðað við hvernig stjórnarand-
staðan tekur almennt í mál ríkis-
stjórnarinnar: Hvers vegna er þing-
mönnum hennar slíkt kappsmál að
ríkisstjórnin komi sem flestum mál-
um í gegnum þingið? Er hugsanlegt
að ekki séu full heilindi á bak við
þann málflutning?
Þorsteinn
Víglundsson
Ótrúverðug gagn-
rýni andstæðinga
STAKSTEINAR
Birgir
Ármannsson
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Glæsilegar danskar
innréttingar í öll
herbergi heimilisins
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is
Mán. – Fim. 10–18
Föstudaga. 10–17
Laugardaga. 11–15
„Öflugt samkeppnisumhverfi er
mjög þýðingarmikið fyrir okkur sem
samfélag,“ segir Þórdís Kolbrún
Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-,
iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, en
á fundi ríkisstjórnarinnar á þriðju-
dag var afgreitt frumvarp hennar
um breytingu á samkeppnislögum.
Frumvarpið felur í sér afmark-
aðar breytingar á nokkrum ákvæð-
um laganna sem hafa það markmið
að einfalda framkvæmd þeirra og
auka skilvirkni í þágu atvinnulífsins
og Samkeppniseftirlitsins, að því er
fram kemur á vef Stjórnarráðsins.
Þær breytingar sem lagðar eru til
með frumvarpinu eru meðal annars
þær að heimild Samkeppniseftirlits-
ins til íhlutunar án brots verði felld
brott, komið verði á sjálfsmati fyrir-
tækja á því hvort skilyrði séu upp-
fyllt fyrir undanþágum frá bann-
ákvæðum laganna, veltumörk
tilkynningaskyldra samruna verði
hækkuð um 50% og málsmeðferð
samrunamála bætt. Þá verði fellt
brott það skilyrði að úrskurður
áfrýjunarnefndar samkeppnismála
þurfi að liggja fyrir áður en heimilt
verði að höfða dómsmál til ógild-
ingar á ákvörðunum Samkeppnis-
eftirlitsins, en þannig geta máls-
aðilar sjálfir metið hvort þeir kæra
ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til
áfrýjunarnefndar eða höfða mál fyr-
ir dómstólum.
Kynna breytingar á samkeppnislögum
Einfalda á framkvæmd og auka skilvirkni laganna Styttri málsmeðferð
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Boðar breytingar Þórdís Kolbrún.
Fjölmiðlafyrirtækið Sýn, sem rekur
meðal annars Stöð 2, Bylgjuna og
Vísi, undirbýr nú höfðun dómsmáls
vegna rúmlega 1,1 milljarðs króna
kröfu á hendur hjónunum Ingi-
björgu Pálmadóttur, Jóni Ásgeiri
Jóhannessyni, og fyrirtæki Ingi-
bjargar, 365. Útgáfufélaginu Torgi,
sem gefur út Fréttablaðið, hefur
jafnframt verið stefnt. Þetta er
meðal þess sem fram kemur í árs-
reikningi Sýnar sem birtur var í
gær.
Sýn keypti Stöð 2, Bylgjuna og
Vísi í mars 2017 og telur fyrirtækið
að samkeppnisákvæði í kaupsamn-
ingi Sýnar við 365 hafi verið brotin,
til dæmis að tilteknir þættir í starf-
semi vefmiðilsins frettabladid.is
samrýmist ekki þeim skuldbinding-
um sem fram komi í þeim samningi.
Jón Ásgeir og Ingibjörg fengu bréf
þess efnis sent 17. desember síðast-
liðinn.
Sýn krefst fimm milljóna króna
dagsekta vegna brotanna, alls
hljóðar krafa um greiðslu upp á
1.140 milljónir króna auk verðbóta.
Jón Ásgeir, Ingibjörg og 365 mót-
mæltu kröfunni 20. desember og
því hefur Sýn falið lögmanni að
undirbúa höfðun dómsmáls.
Í yfirlýsingu frá 365 hf. í gær er
staðfest að kröfubréf hafi borist frá
Sýn.
„365 hafnar algerlega ásökunum
Sýnar, enda eru þær fjarstæðu-
kenndar og eiga sér ekki nokkra
stoð í samningi aðila. Hvergi er
hægt að benda á að 365 hafi staðið í
samkeppni við Sýn á sviði sjón-
varps, útvarps eða fjarskipta, eða á
annan hátt sem félaginu var ekki
heimilt samkvæmt umræddu sam-
keppnisákvæði,“ segir í yfirlýsing-
unni. Þess er einnig getið að for-
svarsmenn 365 íhugi að gagnstefna
Sýn.
Sýn stefnir Ingibjörgu
og Jóni Ásgeiri
Krefjast 1,1 milljarðs vegna brota
Morgunblaðið/Eggert
Dómsmál Ingibjörgu Pálmadóttir
og Jóni Ásgeiri Jóhannessyni stefnt.