Morgunblaðið - 27.02.2020, Side 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2020
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Árangurinn sem margt afþví unga fólki sem leitar tilokkar nær er frábær,“ segir Elín Gestsdóttir,
félagsráðgjafi og ráðgjafi Virk hjá
Eflingu – stéttarfélagi. „Stundum
koma hingað krakkar með brotna
sögu en ná svo, á til þess að gera
skömmum tíma, að snúa taflinu sér í
vil. Eru óvirkir og glíma við veikindi
en fá svo stuðning og lausnir í sam-
ræmi við stöðu sína. Markmiðið er að
sem flestir verði komnir með fulla
getu til náms og starfa á einu ári.“
Valdefling til sjálfshjálpar
Margt fróðlegt var til frásagnar
á Félagsráðgjafaþingi 2020 sem hald-
ið var í síðustu viku. Þar má nefna er-
indið Starfsendurhæfing í stað
óvirkni – sem fjallar um nýja lausn
sem býðst ungu fólki sem er utan
vinnumarkaðar og hefur ekki fundið
sína fjöl. Verkefnið var stofnað að
beiðni félagsmálaráðuneytisins og
var tilgangurinn að mæta ungu fólki
sem velferðarkerfið hafði ekki náð að
mæta. Hjá Virk hlaut verkefnið heitið
UNG 19 enda stofnað á árinu 2019.
Tilgangurinn með verkefninu var að
mæta ungu fólki í vanda sem velferð-
arkerfið hafði ekki náð að mæta.
„Ef til vill höfum við ekki gefið
erfiðri stöðu unga fólksins okkar
nægan gaum. Alltaf er fólk sem þarf
hjálp og jákvæðan stuðning. Valdefl-
ing til sjálfshjálpar er lykilatriði,“
segir Gunnhildur Kristjánsdóttir,
iðjuþjálfi hjá Virk, sem ásamt Elínu
og Önnu Lóu Ólafsdóttur, náms- og
starfsráðgjafa, kynnti verkefnið á
þingi félagsráðgjafa. Anna Lóa hefur
sem atvinnulífstengill stutt fólk í því
að finna vinnu og nám við hæfi.
Starfið er þá í raun hluti af endurhæf-
ingu.
Stofnanirnar sem koma að verk-
efninu eru auk félagsmálaráðuneytis,
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins,
Tryggingastofnun ríkisins, velferðar-
svið Reykjavíkurborgar, Vinnu-
málastofnun og Virk – starfsendur-
hæfingarsjóður. Verkefnið er byggt
upp á þann máta að ungu fólki á aldr-
inum 19-29 ára, sem leitað hefur ásjár
heilsugæslunnar, er vísað til Virk ef
læknir telur slíkt gagnast.
„Þegar unga fólkið kemur til
okkar byrjum við á að kortleggja
vanda þess. Ekki er óalgengt að þetta
sé fólk sem hefur verið í neyslu, glímt
við félagslega erfiðleika, verið lítið
eða takmarkað á vinnumarkaði eða í
skóla og glími við algenga andlega
kvilla, svo sem þunglyndi, kvíða og
lágt sjálfsmat. Með punkta úr þess-
um viðtölum tala ráðgjafarnir við við-
eigandi fagaðila hjá Virk og í samein-
ingu er fundið út hvað hentar
hverjum og einum,“ segir Gunnhildur
og heldur áfram:
Kerfið verði einfaldara
„Sumt af þessu unga fólki þarf
sjúkraþjálfun, aðrir sálfræðiviðtöl
eða hvatningu til að koma lífi sínu í
takt. Ráðgjafa er að greina áhuga-
hvöt og benda viðkomandi á færar
leiðir, eins og gert er í viðtölum á
tveggja til þriggja vikna fresti. Mikil-
vægast er að fólk öðlist sjálfstraust
og marki sér stefnu til framtíðar. Ef
slíkt gerist koma lítil kraftaverk.“
Í dag njóta alls 349 manns í þjón-
ustu Virk í UNG 19 og síðan því var
hleypt af stokkunum hafa 49 útskrif-
ast. „Markmið okkar er að minnst
fimm manns í mánuði fari frá okkur
annaðhvort í nám eða vinnu,“ segir
Gunnhildur og bætir við að meðan á
endurhæfingu standi sé mörgum
þátttakendum tryggð framfærsla frá
Tryggingastofnun ríkisins og stund-
um komi Vinnumálastofnum, svo sem
við atvinnuleit.
„Ungt fólk veigrar sér stundum
við að leita sér aðstoðar í velferðar-
kerfunum. Þröskuldurinn þar virðist
of hár fyrir suma. Velferðarkerfið er
líka um margt flókið, oft er erfitt fyrir
fólk að átta sig á því hvar hægt sé að
nálgast einstaka þjónustuþætti.
Kerfið þarf að vera einfaldara, en það
er okkar ráðgjafa að benda fólki á
réttar leiðir,“ segir Gunnhildur.
Öðlist sjálfstraust og marki stefnu
Félagsráðgjafaþing Frá vinstri talið Anna Lóa Ólafsdóttir, Gunnhildur
Kristjánsdóttir og Elín Gestsdóttir sögðu frá starfi sínu og áherslum.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hjólað Útivera getur verið margra meina bót þegar koma á lífinu á rétt ról.
Lykilatriði í UNG19
» Mæta fólki á þess for-
sendum. Oft er sagan brotin
og erfiðleikar viðvarandi.
» Kortleggja vandann og
bjóða sveigjanlegan stuðning.
» Valdefling og horft á
styrkleika. Samstarf við vel-
ferðarkerfið.
» Tenging við nám og
vinnu sem fyrst. Allir eru
gjaldgengir.
» Ráðgjöf um framfærslu
og atvinnuleit.
Verkefnið UNG 19 gefur
góða raun og fólkið finn-
ur sína fjöl. Vandinn er
greindur og stuðningur
til virkni í lífi og starfi.
Byltingarkennd nýjung
í margskiptum glerjum
50–65%
stærra
lessvæði
Sjónmælingar
Tímapantanir:
Optical Studio í Smáralind, 5288500
Optical Studio Hafnartorgi, 5288505
Optical Studio í Keflavík, 4213811
Optical Studio í Leifsstöð, 4250500