Morgunblaðið - 27.02.2020, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2020
„Meðan áskilið er að greitt sé gjald
fyrir aðgang að rafrænum hluta
Lögbirtingablaðsins er hætt við að
auglýsingar sýslumanna, sem oft
og tíðum varða fjárkröfur, komist
sjaldnast fyrir augu þeirra sem
þær beinast að og því að mati und-
irritaðs full ástæða til að auðvelda
aðgengi að þeim með því að fella
niður gjald fyrir aðgang þannig að
viðhafa megi hindrunarlausa upp-
flettingu.“
Þetta segir Jónas Guðmundsson,
sýslumaður á Ísafirði, í umsögn við
lagafrumvarp þingmanna Pírata
um að gjaldtöku fyrir aðgang að
rafrænni útgáfu Lögbirtingablaðs-
ins verði hætt.
Myndi stuðla að auknu
gegnsæi og jafnræði
Jónas bendir einnig á að þetta
yrði auk þess til mikillar einföld-
unar sem myndi stuðla að auknu
gegnsæi og jafnræði ,,og býður upp
á að áhugasamir geti, sér að kostn-
aðarlausu, fylgst með hvort þeirra
sé getið í auglýsingum í Lögbirt-
ingablaði t.d. undir áskoranir,“
segir í umsögninni.
Fram kemur í ítarlegri umsögn
Jónasar að embætti sýslumanns
þurfi með reglubundnum hætti að
auglýsa í Lögbirtingablaðinu s.s.
um fyrirtökur nauðungarsölumála,
kvaðningar til að mæta í fyrirtöku í
málum sem varða greiðslu meðlags
o.fl. gjalda. Í nýjum umferðar-
lögum sé kveðið á um álagningu og
innheimtu vanrækslugjalds og að
birta þurfi greiðsluáskorun í Lög-
birtingablaðinu ef ekki tekst að
birta honum hana beint með
stefnuvotti eða af póstmanni.
Birta greiðsluáskoranir fyrir
nokkur hundruð aðilum
„Í ljósi reynslunnar má gera ráð
fyrir að birta þurfi greiðsluáskor-
anir fyrir nokkur hundruð aðilum
ár hvert sem ekki næst til með
öðru móti þar sem fram kæmi
a.m.k. nafn viðkomandi, kennitala,
skráningarnúmer ökutækis o.s.frv.
og æskilegt að þær komist fyrir
augu viðkomandi með sem einföld-
ustum hætti (þar sem best væri að
nota island.is),“ segir í umsögn
sýslumanns við þingmál þingmanna
Pírata.
Full ástæða til að
auðvelda aðgengi
Tekur undir tillögu um að rafræn útgáfa
Lögbirtingablaðsins verði gjaldfrjáls
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
samlegt ka
nýmalað,
engin h lki.
á
y
–
Þjóðleikhúsið • Hverf isgata 19 • 101 Reykjavík • s. 551 1200 • leikhusid.is
Þjóðleikhúsið hyggst efla starfsemi leikhússins í þágu barna
og hvetja til ritunar nýrra, íslenskra barnaleikrita. Í þeim
tilgangi auglýsir leikhúsið eftir nýjum leikritum fyrir börn,
annars vegar fyrir Stóra sviðið og hins vegar fyrir Kassann
eða Kúluna. Óskað er eftir handritum í fullri lengd eða vel
útfærðum hugmyndum að leikritum.
Leikrit og hugmyndir að leikverkum skulu sendar á netfangið
leikritun@leikhusid.ismerktar „Leikrit fyrir börn“.
Tekið er við handritum og hugmyndum til
mánudagsins 23. mars 2020
Þjóðleikhúsið
auglýsir eftir
leikritum fyrir börn
Nánari upplýsingar á leikhusid.is
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Fulltrúar foreldra og starfsfólks
Fossvogsskóla hafa áhyggjur af því
að til standi að taka innan skamms í
notkun að nýju þann hluta skóla-
húsnæðisins sem nefnist Vesturland
án þess fullnaðarviðgerð hafi farið
fram. Hafa þeir óskað eftir því að
skóla- og frístundasvið Reykjavíkur-
borgar (SFS) veiti þeim upplýsingar
um áform sín og stöðu viðgerða á
skólahúsnæðinu. Að sögn Helga
Grímssonar, sviðsstjóra SFS, stóð
til að svara erindinu skriflega í gær
að hluta. Svör við nokkrum spurn-
ingum krefðust hins vegar tölu-
verðrar úrvinnslu og kæmu því
síðar.
Í lok síðasta árs uppgötvuðust nýr
leki og rakaskemmdir í skólanum,
en í fyrrasumar fóru þar fram viða-
miklar viðgerðir vegna myglu-
skemmda og kostuðu þær um hálfan
milljarð króna. Fulltrúar foreldra og
starfsfólks segja að eftir að nýi lek-
inn kom í ljós hafi upplýsingar borg-
aryfirvalda til foreldra og starfsfólks
verið af mjög skornum skammti.
Börn og starfsfólk skólans hafi
veikst eða fundið fyrir óþægindum í
kjölfarið. Engin tilraun hafi verið
gerð til að sefa áhyggjur starfsfólks
og foreldra varðandi það hvort hús-
næðið sem taka á í notkun að nýju sé
heilnæmt, til hvaða aðgerða hafi ver-
ið gripið, hvort sýni hafi verið tekin
né greint frá niðurstöðum þeirra.
Helgi segir að úttektir og fram-
kvæmdir vegna loftgæðavandamála
í Fossvogsskóla hafi verið í gangi í
rúmt ár. Þrír almennir foreldrafund-
ir hafi verið haldnir vegna málsins á
vegum SFS og umhverfis- og skipu-
lagssviðs borgarinnar (USK). Hafi
fulltrúar USK og SFS komið á all-
nokkra fundi skólaráðs og skóla-
stjóri eigi fast sæti á öllum fram-
kvæmdafundum sem fulltrúi
skólasamfélagsins. Allar aðgerðir og
framkvæmdir séu kynntar í fram-
kvæmdasjá á opnum vef borgar-
innar. „Við höfum því lagt áherslu á
gott upplýsingastreymi,“ segir
Helgi, „en hitt er alveg ljóst að
margir hafa viljað tíðari og um-
fangsmeiri upplýsingar. Unnið er að
því aðverða við því ákalli og þá í
gegnum skólaráð.“
Helgi segir að á verktímanum hafi
komið fyrir tvö ófyrirsjánleg atvik
sem töfðu framvindu verksins. Ann-
ars vegar að þak Vesturlands reynd-
ist í mun verra ásigkomulagi en út-
tektir höfðu sýnt fram á og eins að
þakgluggi í Vesturlandi lak í þrí-
gang í veðrum í desember og janúar.
Nú sé búið að komast fyrir lekann
og þegar veður fara að mildast verði
skipt um þennan glugga í heild sinni.
Þessar tafir hafi valdið miklum von-
brigðum og því miður haft í för með
sér endurskipulagningu á skóla-
starfinu.
Morgunblaðið/Hari
Fossvogsskóli Þrátt fyrir miklar viðgerðir á húsnæðinu í fyrra uppgötvuðust nýjar rakaskemmdir í desember.
Ófyrirsjáanleg atvik
hafa tafið viðgerðir
Foreldrar og kennarar Fossvogsskóla vilja svör um áform
Síðasti formlegi fundurinn í verk-
efnisstjórn Brothættra byggða í
Hrísey var haldinn síðastliðinn
mánudag. Að honum loknum dró
Byggðastofnun sig í hlé frá verk-
efninu.
Unnið hefur verið að verkefninu
frá árinu 2015 og hafa mörg af
þeim markmiðum sem unnið hefur
verið að náðst, að því er fram kem-
ur í fréttatilkynningu frá Byggða-
stofnun. Að auki hafa verið veittir
styrkir til fjölmargra frumkvæðis-
verkefna í samfélaginu og hafa
flest þeirra skilað áhugaverðum
niðurstöðum og árangri.
Íbúar sem sátu fundinn voru ein-
huga um að byggja á þeim grunni
sem kominn er og munu undir for-
ystu hverfisráðs Hríseyjar móta
framhaldið í samvinnu Akureyrar-
bæ og samtaka á svæðinu.
Hrísey útskrifuð úr Brothættum byggðum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sjávarþorp Verkefnið Brothættar byggðir
skilaði góðum árangri í Hrísey.