Morgunblaðið - 27.02.2020, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 27.02.2020, Blaðsíða 37
37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2020 Bláfjöll Vissara er að hafa lýsinguna í lagi þegar fólk rennir sér á skíðum á kvöldin. Og detta ekki úr staurnum. Kristinn Magnússon „Ég held að þetta sé kerfi sem gróflega séð er þannig að síðasti bóndinn slekkur ljós- ið.“ Þetta voru inn- gangsorð Daða Más Kristóferssonar, um- hverfis- og auðlinda- hagfræðings, í þætt- inum Kveik á RÚV. Daði Már er að auki bú- fræðingur frá Hvann- eyri og menntaður í búvísindum frá Ási í Noregi. Hann hefur mest allra manna af þeirri gráðu sem hann er menntaður kynnt sér landbúnað og landbúnaðarkerfið. Í sama þætti sagði þáttastjórnandi Sigríður Haga- lín: „Landbúnaðarkerfið bregst illa við breytingum.“ Og Eymundur Magnússon, kornræktar- og lífrænn bóndi, botnaði setninguna: „Þú ert bara glataður.“ Og var þar að tala um reynslu sína af því hvernig nýjungum hefur verið mætt og búháttabreyt- ingum. Guðrún Tryggvadóttir, for- maður Bændasamtakanna, sagði í sínum upphafsorðum: „Ekkert í boði annað en við förum í breytingar.“ Þessi þáttur sagði aðeins eitt um það hvernig komið er fyrir landbún- aðinum í kerfinu, ekki að hann sé dauðadæmdur. Og ég vil túlka orð Daða Más svo, að verði ekki ný stefna mótuð og víðtækari landbún- aðarsýn mörkuð til langs tíma, deyr landbúnaðurinn drottni sínum. „Það er fleira landbúnaður en ær og kýr.“ Hér er komin spurningin hvað viljum við sjálf sem þjóð og hvað getum við gert til að þessi fullyrðing Daða Más gangi ekki eftir? Gangi hún eftir er stærstur hluti sveitanna að fara í eyði og heilu þorpin og bæirnir á landsbyggðinni bíða mikinn hnekki. Annað sem flestir Íslendingar eru sammála um er að matvælin frá bændunum okkar skara fram úr. Og læknavísindin segja að heilbrigðis- lega séð séu þau einstök og móður- moldin er án allra eiturefna, frjó og mjúk. Er landbúnaðurinn að fara norður og niður? Sú spurningin vaknar eftir þáttinn hvort það sé kerfið sem valdi þessu? Hvað vilja bændur gera? Hvað vilja neytendur gera? Og langstærsta spurningin er hvað vilja stjórn- málamennirnir gera? Vísindin efla alla dáð og án vísindanna þróast eng- inn framtíðaratvinnuvegur. Allir inn- viðir landbúnaðarins hafa verið lam- aðir eða lagðir niður á síðustu árum. Það þarf mikla þekkingu og menntun til að reka nú- tímalandbúnað. Ekkert er jafn mikilvægt eftir þennan þátt og að setj- ast yfir stöðuna og spá í framtíðina. Hvað þarf að gera og hver á stefn- an að vera til að öflugar greinar landbúnaðar og auðlinda landsins vaxi og dafni? Það þarf nýja umgjörð og að núverandi kerfi fái sólarlag en ný umgjörð og nýtt hag- sældarkerfi taki við og innspýtingin gefi sveitunum og matvælalandinu Íslandi bjarta framtíð. Staðan er sú að af opinberu fé fara um 14 millj- arðar í stuðning við landbúnað, eða um 0,5% af vergri landsframleiðslu og gerist vart lægri í á vesturlöndum. Þetta mun vera sama upphæð og Landsbankinn áformar í byggingu nýrra höfuðstöðva. Nú ætla stjórn- málamenn t.d. að láta 200 milljarða í borgarlínu og ómælt fé í varnir gegn loftslagsbreytingum. Það er ekkert bruðl að láta aukið fé í að tryggja lif- andi og öfluga landsbyggð og land- búnað og matvæli af bestu gerð. Eða er þetta allt bara búið? Það styðja til- viljanakenndar ákvarðanir og ekki síður vondar ákvarðanir og aðgerða- leysi ráðamanna landsins síðustu ár- in. En ég ætla þeim ekki að þeir séu þeirrar skoðunar að landbúnaðurinn megi fara norður og niður. Nú er það ríkisstjórnar og alþingis í samráði við bændur að fara yfir allar hliðar þessa máls. Framtíðin krefur þá um svör við mörgum spurningum sem vökn- uðu við þáttinn. Eitt sinn fyrir þrjátíu árum sagði merkur stjórnmálamaður: „Sjávar- útvegurinn er að fara norður og nið- ur og beint til helvítis.“ Nú er það okkar að frelsa landbún- aðinn frá þeim örlögum sem og lágu í orðum Daða Más að síðasti bóndinn muni að óbreyttu slökkva ljósin. Eftir Guðna Ágústsson » Það þarf mikla þekk- ingu og menntun til að reka nútímalandbún- að. Ekkert er jafn mikil- vægt eftir þennan þátt og að setjast yfir stöð- una og spá í framtíðina. Guðni Ágústsson Höfundur er fv. alþingismaður og ráðherra. „Síðasti bóndinn slekkur ljósið“ Þessa dagana er tekist á um mikla hagsmuni Íslendinga í deilu Rio Tinto og Landsvirkjunar. Ég er með raunveruleik- ann alveg á hreinu. Skynsamleg auð- lindanýting hefur verið undirstaða allra þeirra ríkja í heim- inum sem hefur í gegnum söguna vegn- að vel. Ef ríkjum hefur svo tekist að bæta þar ofan á fjölbreyttum leið- um til verðmætasköpunar, í gegn- um nýsköpun og aðra snilli, þá hef- ur þeim áfram vegnað vel og lífsskilyrði borgaranna hafa verið stöðug og góð. Það sem er merkilegt er að Hörð- ur Arnarson, forstjóri Landsvirkj- unar, virðist standa einn í brúnni til að vernda þjóðarhag með því að standa fastur fyrir og verja samn- inga sem þjóðin á, sem skylda Rio Tinto til umsamins verðs til næstu 10 ára. Það væri gaman að sjá fleiri taka undir með stjórn Landsvirkj- unar og forstjóra. Sú var tíðin að InDefence og stjórnmálamenn þeim tengdir börðust gegn arðráni er- lendra kröfuhafa og tóku upp hanskann fyrir almenning til þess að verja innstæður hans í bönkum. Það væri óskandi að það sama ætti við nú. Þjóðin á Lands- virkjun. Hvað þurfum við að varast? Nú berast fregnir af því í gegnum Mining Journal að Rio Tinto og Glencore séu í sameiningarhug. Glen- core er meirihlutaeig- andi Century Alumin- ium. Það gæti þýtt að Landsvirkjun stæði frammi fyrir því að semja aðeins við tvo stóra aðila um meiri- hluta allrar raforku á Íslandi. Það er ekki góð samnings- staða fyrir Íslendinga. Þeir gætu því áfram pínt verðið niður á kostn- að íslenskra hagsmuna. Hvað er þá til ráða? Hvaða stöðu höfum við til að geta látið Rio Tinto standa við að borga umsamið verð? Stjórnmálamenn sem vilja (og eiga) að tala til fólks um störf og önnur lífsskilyrði mega horfa til þess að stórfyrirtæki á við Rio Tinto starfar á fjármálamörkuðum sem fókusera á ESG sem lykilatriði í allri sinni verðmætasköpun fyrir hluthafa. ESG stendur fyrir Environment, Social and Governance og skiptir höfuðmáli þegar fyrirtæki leitar nýrra fjárfesta á mörkuðum. Stórir sjóðir í heiminum eru ekki að taka þátt í fjárfestingum nema ESG- gildi séu í lagi. Það er, hvernig fyrirtæki koma fram við nærsam- félagið, hvernig er staðið að umhverfismálum og hvernig er komið fram við starfsfólk og stofn- anir. Nýlega bárust fréttir af því að Rio Tinto hefði aukið veg kvenna í stjórn hjá sér til þess að mæta ein- mitt þessu. Fjármagnið krefst þess. Það hefur því miklu meiri áhrif á Rio Tinto að fara fram af rudda- skap við Íslendinga, sem lætur þá líta illa út í öllu samstarfi (lækkar þeirra ESG) en að lækka raforku- samning hér. Verkefni stjórnmál- anna hlýtur því að vera það að styðja við þá Hörð Arnarson og Jónas Þór Guðmundsson til að standa fast á okkar. Stjórnmála- menn og hagsmunasamtök geta ein- mitt gert gagn með því að að láta þau skilaboð berast skýrt til þeirra erlendu aðila á mörkuðum sem Rio Tinto reiðir sig á, í miklu stærra samhengi en bara á litla Íslandi. Svo væri lag að ræða um framtíð- ina, hvernig ætlum við að halda áfram að auka verðmætasköpunina fyrir auðlindina okkar. Eftir Björt Ólafsdóttur » Verkefni stjórnmál- anna hlýtur því að vera það að styðja við þá Hörð Arnarson og Jón- as Þór Guðmundsson til að standa fast á okkar. Björt Ólafsdóttir Höfundur er fv. umhverfisráðherra. Landsvirkjun og Rio Tinto Fram er nú komið að áhrifa- mikli hæstaréttardómarinn hafi tapað að minnsta kosti um átta milljónum króna í hruninu. Getur verið að hann hafi þá orðið reiður og viljað ná sér niðri á þeim sem hann taldi bera ábyrgðina á þessu tapi? Getur verið að hann hafi ákveðið sjálfur að setjast sem dómari í mál þeirra sem hann átti viðskiptin við til þess að geta hefnt sín á þeim? Getur verið að hann hafi þá talið að enginn myndi frétta um þetta framferði hans? Getur verið að hann hafi stað- ið fyrir þeirri „lögskýringu“ Hæstaréttar að refsa fyrir auðg- unarbrot án þess að auðgunar- tilgangur hefði sannast? Getur verið að hinum dóm- urunum hafi verið svo mikið í mun að þóknast honum, að þeir hafi fylgt honum til þessara verka, þó að þeim hafi verið ljóst að ekki voru uppfyllt lagaskilyrði til þess? Getur verið að fjöldi manna hafi orðið að sæta sviptingu á frelsi sínu á framangreindum grundvelli og því hafi heilu fjöl- skyldurnar verið sviptar lífsham- ingju sinni? Getur verið að hann hafi stað- ið fyrir því að undanþiggja sjálf- an sig þegar settar voru reglur um birtingu upplýsinga um fjár- tjón dómaranna í hruninu? Getur verið að hann hafi tekið ákvörðun um að segja starfi sínu lausu til að forða því að verða vikið úr embætti, þegar ljóst yrði hvernig hann hefði hagað sér? Getur verið að við hin ættum bara að láta sem þetta komi okk- ur ekki við? Ég veit auðvitað ekkert um þetta og spyr því bara. Jón Steinar Gunnlaugsson Getur verið? Höfundur er fyrrverandi dómari.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.