Morgunblaðið - 27.02.2020, Síða 45
MINNINGAR 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2020
✝ Lárus JónKarlsson fædd-
ist í Reykjavík 31.
mars 1948. Hann
lést á Landspít-
alanum við Hring-
braut 14. febrúar
2020.
Foreldrar hans
voru Karl Helgi
Vigfússon, f. 3.
október 1905, d. 11.
júlí 1969, og Gróa
Svava Helgadóttir, f. 3. mars
1913, d. 27. maí 2003.
Bræður hans eru Helgi Vig-
fús Karlsson, f. 22. maí 1943, d.
2. nóvember 2017, og Hallur
Ólafur Karlsson, f. 28. ágúst
1950.
Börn Lárusar eru Daði Lár-
usson, Hörður Vilberg Lárusson
og Hrafnhildur
Lárusdóttir. Barna-
börnin eru sex að
tölu.
Nám: Stúdent
frá Menntaskólan-
um í Reykjavík
1968, útskrifaðist
frá Háskóla Íslands
sem cand. med 25.
júní 1983 og fékk
sérfræðingsleyfi í
geðlækningum í
Noregi 1999. Lárus starfaði sem
læknir í Reykjavík, Ísafirði,
Hólmavík, Þingeyri, Tromsö,
Þrándheimi og lauk starfsferl-
inum á Sjúkrahúsinu á Akur-
eyri.
Útför Lárusar fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, 27. febr-
úar 2020, klukkan 13.
Elsku pabbi minn, Lárus Jón
Karlsson, er fallinn frá eftir
skammvinn veikindi.
Það var mjög sárt að þurfa að
kveðja pabba í hinsta sinn eftir
hetjulega baráttu hans í sínum
veikindum. Með stóískri ró og
festu tókst pabbi á við sín veik-
indi í góðu samstarfi við allt það
frábæra starfsfólk sem starfar á
gjörgæsludeild LSH, en því
miður höfðu veikindin yfirhönd-
ina.
Það er hægt að segja að
pabbi hafi helgað líf og krafta
sína lækningum og þvældist
hann víða á sinni lífsleið til að
sinna þeim sem áttu um sárt að
binda. Yndislegar minningar á
ég til að mynda með föður mín-
um frá þeim tíma sem hann
starfaði sem læknir á Þingeyri,
þá eru ævintýralegar ferðir sem
ég fór með honum í brjáluðum
veðrum að sinna hans læknavitj-
unum einkar minnisstæðar.
Þessar ferðir eru mér ennþá í
fersku minni og hvað ég var
stoltur af föður mínum þegar ég
sá þakklætið í augum þeirra
sem hann sinnti.
Pabbi fór of snemma og mér
fannst eins og það væri alltaf
nægur tími til stefnu til að verja
meiri tíma saman.
Við áttum þó margar dýr-
mætar stundir saman í mínum
ferðalögum til hans norður á
land í seinni tíð. Börnin mín
munu hugsa hlýtt til þeirra
stunda sem hann tók þau með í
leikhús, þar sem hann fékk við-
urnefnið Afi leikhús, og einnig
munu þau minnast ísgöngutúr-
anna um gamla miðbæinn á
Akureyri.
Mikill viskubrunnur var hann
faðir minn og fræddi hann mann
jafn mikið um allt það sem var
að gerast í heimsmálunum
hverju sinni og það nýjasta sem
var að gerast í heimi geðlækn-
inga.
En ljúfur og góður maður var
hann faðir minn, ávallt tilbúinn
að hjálpa til með það sem hann
gat og mun ég ylja mér við allar
þær góðu minningar sem við
áttum saman um ókomna tíð.
Gráttu ekki
yfir góðum
liðnum tíma.
Njóttu þess heldur
að ylja þér við minningarnar,
gleðjast yfir þeim
og þakka fyrir þær
með tár í augum,
en hlýju í hjarta
og brosi á vör.
Því brosið
færir birtu bjarta,
og minningarnar
geyma fegurð og yl
þakklætis í hjarta.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Takk fyrir allt, pabbi minn.
Þinn
Daði.
Ég, utanbæjarmaðurinn,
kynntist Lalla fyrst haustið
1964, þegar við hófum nám í 3.
bekk MR. Kennslustofan nefnd-
ist 3N og var á efstu hæð í
gamla skólahúsinu með góðu út-
sýni yfir Lækjargötuna. Þar og
víðar um skólann áttum við svo
samleið næstu 4 ár eða til vors-
ins 1968, þegar skólagöngu okk-
ar lauk með stúdentsprófi.
Þeir í bekknum sem höfðu
þekkt Lalla lengur vissu að
hann væri rétti maðurinn til að
vera umsjónarmaður bekkjar-
ins, sjá um kladdann og töfluna,
enda var hann stundvís og sam-
viskusamur en líka hógvær og
kurteis í allri framgöngu. Fljót-
lega varð mér líka ljóst, að hann
var afburðanámsmaður. Hann
var sérstakur áhugamaður um
tungumál, lék sér meðal annars
að því að fara með faðirvorið á
nokkrum tungumálum.
Einna eftirminnilegast í mín-
um huga var þegar hann fór
með það á gelísku. Hann var
jafnframt mjög liðtækur í
stærðfræðigreinum og lauk
stúdentsprófi úr stærðfræði-
deild með mjög hárri fyrstu ein-
kunn.
Síðan fórum við saman í
Læknadeild HÍ. Fyrsta árið þar
varð mörgum Þrándur í Götu en
ekki Lalla.
Engin próf voru síðan haldin
í deildinni fyrr en eftir tvö ár.
Það tilheyrði náminu í líffæra-
fræði að fara á 4 vikna nám-
skeið í krufningum í Glasgow
þangað sem við læknanemar
héldum sumarið 1970. Við Lalli
vorum þarna herbergisfélagar á
stúdentagarðinum MacBrayne
Hall. Þetta var skemmtilegur og
lærdómsríkur tími.
Í lok námskeiðs tókum við þá
ákvörðun að fara á stúdenta-
miðum með lestum um París til
Kaupmannahafnar, þaðan sem
við tókum svo Gullfoss heim.
Við höfðum víst bara einn dag í
París, sem varð að nýta vel og
man ég að við ráðstöfuðum einni
klukkustund í Louvre til að sjá
Mónu Lísu. Aðalfæðan í París
var vatn og náttúrlega franskt
brauð. Svo kláruðust prófin í
fyrsta hluta og við sigldum inn í
miðhluta námsins. Eins og
stundum vill verða í lífinu þá
fóru að falla til ýmis krefjandi
verkefni og atvik, sem urðu til
þess að Lalla gafst ekki tími til
að undirbúa sig nægilega vel, að
eigin mati, til að skrá sig í mið-
hlutaprófin. Þannig fór að hann
tók þau ekki og rann út á tíma.
Þegar hann leitaði eftir því
nokkru síðar að fá að halda
áfram námi í deildinni með ein-
hverjum hætti, þá vakti það
nokkra furðu, að hann fékk ekk-
ert viðurkennt af þeim prófum
sem hann hafði áður lokið í
Læknadeild.
Lalli starfaði lengst af sem
geðlæknir á Akureyri. Við hitt-
umst helst á árgangaafmælum,
síðast á 50 ára stúdentsafmæli
okkar.
Þá eins og oft áður fengum
við hann til að fara með, utan
bókar að sjálfsögðu, skemmti-
sögu á þýsku, svonefnda þýska
endursögn.
Að þessu sinni gerði hann
það úr ræðupúlti yfir allan hóp-
inn. Hann flutti hana með sér-
stökum þýskum framburði á
mjög fyndinn hátt. Þá var mikið
hlegið.
En allt hefur sinn tíma. Lalli
lést eftir bráð veikindi. Genginn
er góður vinur og skólabróðir.
Blessuð sé minning hans.
Bekkjarbræður í 6T senda
aðstandendum hans og vinum
innilegar samúðarkveðjur.
Gestur Þorgeirsson.
Lárus Jón
Karlsson
Guðjón. Þær
voru ófáar dýr-
mætu stundirnar
sem við eyddum
saman í barnæsku
og á unglingsárunum. Enginn
getur tekið þær frá okkur, vinur.
Hins vegar hrifsaði heimurinn
þig nú úr veruleikanum, allt of
snemma. Þegar ég fékk fréttirn-
ar fann ég fyrir mikilli tómleika-
Guðjón Ingi
Sigurðarson
✝ Guðjón Ingifæddist í
Reykjavík 20. júlí
1988. Hann lést 13.
febrúar 2020.
Útförin fór fram
24. febrúar 2020.
tilfinningu. Í minni
heimsmynd er Guð-
jón traustur vinur,
alltaf til staðar, tilbú-
inn að hittast og
spjalla um heima og
geima. Ég er enn þá
ekki fullbúinn að
samþykkja þennan
sannleik, það er ein-
faldlega ómögulegt
að trúa honum.
Megir þú hvíla í friði.
Þín sál í lífi ljómar,
þú lýstir okkar braut.
Þín vera endurómar
í okkar lífsins þraut.
Hafsteinn Einarsson.
Megi gæfan þig geyma,
megi guð þér færa sigurlag,
megi sól lýsa þína leið,
megi ljós þitt skína sérhvern dag.
Og bænar bið ég þér,
að ávallt geymi
þig guð í hendi sér.
(Bjarni Stefán Konráðsson)
Takk fyrir allt, elsku amma.
Árni Kristófer.
Guðríður Árnadóttir
✝ Guðríður Árnadóttir fæddist 22. október 1930. Hún andaðist 14.febrúar 2020.
Útför Guðríðar fór fram 21. febrúar 2020.
✝ Þórlaug JónaGuðmunds-
dóttir fæddist í
Reykjavík 13. nóv-
ember 1936. Hún
lést á Hjúkrunar-
heimilinu Grund í
Reykjavík 21. febr-
úar 2020.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin Guð-
mundur Ingvi Vil-
hjálmsson verka-
maður, f. 31. júlí 1905, d. 9.
ágúst 1983 og Þórný Jónsdóttir
húsfreyja, f. 17. júlí 1904, d. 6.
nóvember 1983.
Eiginmaður Þórlaugar var
Hörður Sigmunds-
son sjómaður, f. 9.
júní 1937, d. 26.
október 1983.
Þau eignuðust
tvær dætur. Þórný,
f. 27. mars 1960.
Maki Guðjón
Hauksson. Eiga
þau tvö börn og sex
barnabörn. Helga,
f. 8. september
1962. Hún á tvö
börn.
Útför Þórlaugar Jónu fer
fram frá Fríkirkjunni í Reykja-
vík í dag, 27. febrúar 2020,
klukkan 14.
Í dag kveðjum við þig elsku
amma Þórlaug. Þú hefur alltaf
verið stór partur af lífi okkar,
litlu fjölskyldunnar. Í huga
okkar koma upp margar góðar
minningar sem við munum
varðveita vel. Það var alltaf
notalegt að kíkja til þín í Lækj-
arsmárann og fá kaffi og með
því. Tókst þú á móti okkur opn-
um örmum og var gott að leita
til þín.
Þú varst rík að langömmu-
börnum og hafðir mikla ánægju
af að fá þau og okkur í heim-
sókn til þín á hjúkrunarheimilið
Grund sem var heimilið þitt
síðustu tvö ár. Nú vitum við að
þú ert komin á góðan stað en
við söknum þín mikið.
Hvíldu í friði elsku amma.
Þín barnabörn,
Hörður Þór, Hrafnhildur,
Sandra Kristín og
Guðmundur Karl.
Okkur systrum er bæði ljúft
og skylt að minnast frænku
okkar Þórlaugar Jónu, sem
verið er að kveðja í dag. Mæð-
ur okkar voru systur og var
alla tíð mikill kærleikur og
samgangur milli fjölskyldna
þeirra. Þórlaug frænka var
glæsileg og falleg kona sem við
systur litum upp til og var hún
okkur alltaf innan handar, þeg-
ar við áttum erindi til Reykja-
víkur. Fjölskyldan var henni
allt, dæturnar tvær og þeirra
fjölskyldur, barnabörn og
barnabarnabörn voru hennar
augasteinar og veittu henni
ómælda gleði. Undurfagra
sveitin hennar var Fljótshlíðin
en þar dvaldi hún fjölmörg
sumur í sveit sem barn og ung-
lingur hjá frændfólki á Grjótá
og hélt alla tíð tryggð við það
heimili. Þórlaug var alltaf mik-
ill göngugarpur.
Það var henni því mikið áfall
þegar hún veiktist og gat ekki
lengur komist ferða sinna fót-
gangandi. Fallegt var að sjá
hvað dætur hennar sýndu móð-
ur sinni mikinn kærleik og um-
hyggju þegar svona var komið.
Ég kveð þig, hugann heillar minning
blíð
hjartans þakkir fyrir liðna tíð
lifðu sæl á ljóssins friðarströnd
leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir)
Frænku okkar þökkum við
samfylgdina og sendum fjöl-
skyldunni samúðarkveðju.
Halla, Þórlaug, Áslaug og
Guðrún Guðbjörnsdætur.
Þórlaug Jóna
Guðmundsdóttir
Sálm. 14.2
biblian.is
Drottinn horfir á
mennina af himnum
ofan til þess að sjá
hvort nokkur sé
hygginn, nokkur
sem leiti Guðs.
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Jón G. Bjarnason,
umsjón útfara
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Við þökkum innilega auðsýnda samúð,
hlýjar kveðjur og kærleika við andlát og
útför okkar elskulega
KARLS K. BERNDSEN,
hárgreiðslu- og förðunarmeistara.
Einnig langar okkur að senda kærar þakkir
til starfsfólks Landspítalans deild 11G/11E, starfsfólks
Hjúkrunarheimilis Höfða, Akranesi, og til starfsfólks
Hjúkrunarheimilis Seltjarnar með þökk fyrir alúð og hlýju
sem þið sýnduð Kalla í veikindunum.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir
Laufey og Ernst K. Berndsen
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru
vinsamlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Smellt á
Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi
liður, „Senda inn minningar-
grein,“ valinn úr felliglugg-
anum. Einnig er hægt að slá
inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef út-
för er á mánudegi eða þriðju-
degi).
Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skila-
frestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu
ekki lengri en 3.000 slög. Ekki
er unnt að senda lengri grein.
Lengri greinar eru eingöngu
birtar á vefnum. Hægt er að
senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur.
Ekki er unnt að tengja við-
hengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar
koma fram upplýsingar um
hvar og hvenær sá sem fjallað
er um fæddist, hvar og hvenær
hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram.
Þar mega einnig koma fram
upplýsingar um foreldra,
systkini, maka og börn. Ætlast
er til að þetta komi aðeins
fram í formálanum, sem er
feitletraður, en ekki í minn-
ingargreinunum.
Undirskrift | Minningar-
greinahöfundar eru beðnir að
hafa skírnarnöfn sín en ekki
stuttnefni undir greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa not-
uð með minningargrein nema
beðið sé um annað. Ef nota á
nýja mynd skal senda hana
með æviágripi í innsendikerf-
inu. Hafi æviágrip þegar verið
sent er ráðlegt að senda mynd-
ina á netfangið minning-
@mbl.is og láta umsjónarmenn
minningargreina vita.
Minningargreinar