Morgunblaðið - 27.02.2020, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2020 47
Garðyrkjufræðingur
Tæknideild Snæfellsbæjar óskar eftir að ráða starfsmann í
tímabundið starf við garðyrkju frá apríl nk. út september eða
eftir samkomulagi. Starfshlutfall er 100% á starfstímanum.
Viðkomandi sér m.a. um að sinna öllum gróðri á opnum
svæðum og lóðum stofnana sveitarfélagsins.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Að skipuleggja verkefni í garðumhirðu
og hreinsun opinna svæða
• Verkstjórn smærri garðyrkjuhópa vinnuskólans
• Aðstoð við þjálfun og fræðslu flokkstjóra er snýr að
garðyrkju
• Klippingar, grisjun og útplöntun á tjrám, runnum
og sumarblómum
• Öll umhirða á beðum, bekkjum og blómakerum
sveitarfélagsins
• Ásamt öðrum tilfallandi verkefnum er snýr að hreinsun
og fegrun umhverfis sveitarfélagsins
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Menntun á sviði skrúðgarðyrkju, garðyrkju, skógfræði
eða tengdum greinum er æskileg
• Reynsla af garðyrkjustörfum er skilyrði
• Reynsla af verkstjórn er kostur
• Frumkvæði, áræðni og röggsemi til verka
• Góð hæfni í mannlegum samskiptum
• Reglusemi og stundvísi
• Almenn ökuréttindi
Umsóknarfrestur er til og með 15. mars nk.
Laun eru greidd skv. kjarasamningi Sambands íslenskra
sveitarfélaga við Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu.
Frekari upplýsingar veitir Davíð Viðarsson, skipulags- og
byggingarfulltrúi Snæfellsbæjar, í síma 433-6900 eða á
david@snb.is.
Vinsamlega sendið umsóknir á netfangið david@snb.is.
Umsóknum skal fylgja starfsferilsskrá og kynningabréf þar
sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir
hæfni viðkomandi í starfið.
Snæfellsbær | Klettsbúð 4 | 433 6900 | snb.is
w w w.heilsustofnun.is
ENDURHÆFINGARLÆKNIR
Endurhæfingarlæknir óskast
á Heilsustofnun í Hveragerði
Heilsustofnun veitir árlega um 1350 einstaklingum
endurhæfingarþjónustu skv. samningi við
Sjúkratryggingar Íslands. Helstu meðferðarlínur
eru geð, streita, verkir, offita, sykursýki, bæklun,
gigt, krabbamein, hjarta og öldrun.
Læknar með aðra sérfræðimenntun sem
myndi henta starfseminni eru einnig hvattir
til að sækja um.
Um er að ræða fullt starf en hlutastarf kemur til
greina. Starfsmannarúta til og frá Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir G. Birna Guðmundsdóttir
framkvæmdastjóri lækninga,
birna@heilsustofnun.is, í síma 4830300.
Starfið veitist frá 1. júní nk.
Umsóknarfrestur er til 15. mars 2020.
Umsóknir sendist til mannauðsstjóra
aldis@heilsustofnun.is
Leitað er eftir einstaklingi sem hefur
leiðtogahæfileika, er framsýnn í hugsun,
hefur sýnt hæfni í samskiptum og sam-
vinnu og hefur metnað til að ná árangri
í þágu almennings og atvinnulífs til að
stýra starfsemi Fiskistofu á Akureyri.
Hjá Fiskistofu starfa rúmlega 60 manns.
Verkefnið er að stuðla að ábyrgri nýtingu
auðlinda hafs og vatna.
Starfsemin er fjölbreytt og krefjandi.
Fiskistofa sinnir meðal annars eftirliti
með veiðum og vinnslu sjávarafurða,
fiskeldi og tekur þátt í alþjóðasamstarfi.
Allar nánari upplýsingar um starfið má
finna á Starfatorgi.
Umsóknarfrestur er til og með
28. febrúar 2020
FISKISTOFUSTJÓRI
ÖRYGGISVÖRÐUR
SECURITY GUARD
Sendiráð Bandaríkjanna auglýsir stöðu
öryggisvarðar lausa til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar
2020. Frekari upplýsingar er að finna á
heimasíðu sendiráðsins:
https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/
Umsóknir skulu sendar í gegnum Electronic
Recruitment Application (ERA)
The U.S. Embassy in Reykjavik is seeking
an individual for the position of Security
Guard. The closing date for this postion is
February 28, 2020. Application
instructions and further information can be
found on the Embassy’s home page:
https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/
Applications must be submitted through
Electronic Recruitment Application (ERA)
Blaðberar
Upplýsingar veitir í síma
Morgunblaðið óskar eftir
blaðbera