Morgunblaðið - 27.02.2020, Page 48
48 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2020
Ísfélag Vestmannaeyja auglýsir laust starf:
Aðalbókari
Ísfélag Vestmannaeyja auglýsir laust til umsóknar starf aðalbókara á
skrifstofu félagsins. Helstu verkefni eru hefðbundið bókhald, gerð uppgjöra
og undirbúningur ársreikninga, þátttaka í áætlanagerð félagsins ásamt
öðrum tilfallandi verkefnum.
Góðir eiginleikar fyrir aðalbókara eru fyrst og fremst góð reynsla af bókhaldi og uppgjörum.
Snyrtilegur frágangur á skýrslum og vinnuskjölum, gott vald á íslensku, stærðfræðiskilningur
ásamt góðri tölvu- og upplýsingatækniþekking er nauðsynleg.
Áhugasamir geta haft samband við Örvar Guðna Arnarson, fjármálastjóra, til að fá nánari
upplýsingar í síma 488 1105 eða 892 6680 og/eða sent tölvupóst á orvar@isfelag.is. Umsóknir
sendist eigi síðar en 16. mars n.k. á ofangreint netfang. Farið verður með allar umsóknir sem
trúnaðarmál og öllum umsóknum verður svarað. Persónuverndaryfirlýsing til umsækjenda um
störf má sjá á heimasíðu félagsins, www.isfelag.is.
Ísfélag Vestmannaeyja hf. er eitt af stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins með um 250
starfsmenn til sjós og lands. Það rekur frystihús og fiskimjölsverksmiðjur í Vestmannaeyjum og
á Þórshöfn og gerir út fimm skip. Ísfélag Vestmannaeyja hf. var stofnað árið 1901 og er elsta
starfandi hlutafélag landsins.
Ráðgjafar okkar búa
capacent.is
Við gætum verið
með næsta starfsmann
mánaðarins á skrá