Morgunblaðið - 27.02.2020, Side 58
58 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2020
75 ára John er fæddur í
Plymouth í Englandi en
ólst upp í Wakefield og
fluttist til Íslands í ágúst
1972. Hann er menntað-
ur söngvari og tónskáld
frá Guildhall School of
Music & Drama í Lond-
on. John er tónskáld og hefur samið um
200 tónverk, frá einleikshljóðfærum og
upp í fimm sinfóníur og tvær óperur.
Maki: Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir, f. 1943,
pianóleikari.
Synir: Sveinn Vilhjálmur Speight, f. 1973,
og Einar Ólafur Speight, f. 1975. Barna-
börnin eru 6.
Foreldrar: John Speight, d. 2001, og
Annie Speight, d. 1983, síðast bús. í
Wakefield.
John A. Speight
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Nú er tími til þess að þú lyftir lokinu af
verkefni sem þú hefur verið að vinna að í leyni.
Nýttu þér þetta og skapaðu ánægjulegar minn-
ingar fyrir framtíðina.
20. apríl - 20. maí
Naut Þögn er ekki bara það að tala ekki eða
skortur á hávaða, hún er viðhorf sálarinnar. Þú
þarft ekki að bregðast illa við, þótt menn sam-
þykki ekki allt sem þú segir.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú munt fá fleiri tækifæri til að afla
peninga á næstunni en um leið færðu líka fleiri
tækifæri til að eyða þeim.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Ef þú þarft að taka ákvörðun fyrir fleiri
en sjálfan þig verðurðu að hugsa um allra hag
en ekki bara þinn eigin. Gakktu hiklaust til
verks.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þótt þú getir sett mál þitt fram með
skemmtilegum hætti er ekki þar með sagt að
allir gleypi við skoðunum þínum. Íhugaðu
vandlega allar beiðnir sem þú færð um aðstoð.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Vinnan er þér leikur einn og þú nýtur
hverrar stundar svo að það hefur hvetjandi
áhrif á vinnufélagana. Vertu frekar jákvæður og
brostu framan í heiminn.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þér hættir til að leita langt yfir skammt og
það á við núna í því máli sem þú þarft aðallega
að fást við. Sættu þig við það sem þú færð ekki
breytt.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú getur átt von á líflegum og
óvæntum samræðum við vini og félaga í dag.
Notaðu tækifærið og gefðu tíma til að setjast
niður og ræða málin.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Viskan kemur úr ólíklegustu átt
og ekki alltaf í svo ýkja skemmtilegum búningi.
Láttu aðra ekki teyma þig út í einhverja vit-
leysu.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Annaðhvort ert þú í slæmu skapi
eða þú dregur til þín fólk sem er það. Gefðu
þér góðan tíma til þess að kanna alla málavexti
og líka til að velta þeim fyrir þér.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Láttu ekki viðfangsefnið ná of
sterkum tökum á þér og mundu að þú átt að
vera herra atburðarásarinnar.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú átt það á hættu að dragast inn í
valdabaráttu á vinnustað þínum. Þú færð til-
boð sem vekja með þér bæði undrun og
ánægju.
nema síðustu þrettán árin eftir að
kennslu lauk. Organistar voru engir í
fullu starfi fyrr en 1982 að stærstu
söfnuðirnir riðu á vaðið.“
Kjartan var organisti í kirkjum
sem skólastjóri 10 ár, Víðistaðaskóla
Hafnarfirði 1 ár og loks við Austur-
bæjarskólann í Reykjavík í 13 ár og
lauk þá kennaraferlinum. „Organ-
istastörfin voru jafnan aukastörf
K
jartan Sigurjónsson er
fæddur 27. febrúar
1940 á fæðingarheim-
ilinu Sólheimum að
Tjarnargötu 39 í
Reykjavík. Hann ólst upp í foreldra-
húsum víðs vegar í Reykjavík, lengst
á Bollagötu 9.
Kjartan hóf skólanám í Ísaksskóla
sem þá var til húsa í Grænuborg og
var þar til 9 ára aldurs. Eftir það var
hann í Austurbæjarskólanum þar til
fjölskyldan fluttist í Vogahverfið og
var í fyrsta árganginum sem útskrif-
aðist úr hinum nýja Langholtsskóla.
Þá tók við unglingadeild Laugarnes-
skólans þar sem aðalkennari var
Ingólfur Guðbrandsson, eftir það tók
við landsprófið í Vonarstræti. Jafn-
framt þessu námi var Kjartan í
píanónámi hjá Gunnari Sigurgeirs-
syni og síðan í Söngskóla Þjóðkirkj-
unnar þar sem kirkjuorganistar voru
menntaðir.
„Orgelið var svo mitt aðalfag
ásamt söngstjórn enda hafði ég
ákveðið með sjálfum mér að gerast
organisti við einhverja kirkjuna. Að-
standendur mínir gerðu mér ljóst að
organistastörf væru aðeins auka-
vinna og enginn væri eingöngu í fullu
starfi við það, sem var raunin þá.“
Vegna þessa innritaðist Kjartan í
Kennaraskólann 1958 og útskrifaðist
með kennararéttindi vorið 1962.
Samhliða kennaranáminu var hann í
Tónlistarskólanum í Reykjavík hjá
dr. Páli Ísólfssyni til ársins 1966.
„Þá var mér boðið að taka að mér
að leika við messur í Landakots-
kirkju og gegndi ég organistastarfi
þar í átta ár. Því fylgdi frábær æf-
ingaaðstaða og voru mér fengnir
lyklar að kirkjunni og gat ég því æft
hvenær sem var. Að loknu námi í
Kennaraskólanum voru byrjunar-
laun kennara afar lág og ég réðist því
til annarra starfa þar sem launin
voru næstum helmingi hærri. Að ári
liðnu féll fyrsti kjaradómurinn sem
hækkaði kennaralaunin. Þá datt mér
í hug að reyna við kennsluna í eitt ár.
Þau urðu þrjátíu og sjö.“
Kennsluferill Kjartans hófst í
Kópavogsskóla og var hann þar í 3
ár, þá í Reykholtsskóla í Borgarfirði í
9 ár, Gagnfræðaskólanum á Ísafirði
Reykholtsprestakalls og Ísafjarðar-
prestakalls og eftir að suður var
komið starfaði hann við Kópavogs-
kirkju, sem annar organisti í 2 ár,
Seljakirkju í 10 ár og í Digranes-
kirkju í 13 ár í fullu starfi. Einnig var
hann um árabil staðgengill Marteins
H. Friðrikssonar í Dómkirkjunni.
Kjartan hefur stjórnað Karlakór Ísa-
fjarðar og Karlakórnum Ægi í Bol-
ungarvík, seinna Karlakórnum
Þröstum í Hafnarfirði og að síðustu
eldri félögum Karlakórs Reykja-
víkur. Hann hefur haldið marga ein-
leikstónleika á orgel, bæði hérlendis
og erlendis, og gefið út tvo hljóm-
diska með orgelleik.
„Þegar ég varð sjötugur sagði ég
öllu þessu af mér og geri aðeins það
sem mig langar til en það er reyndar
mikið, við eigum hús í Súðavík þar
sem við dveljum á sumrin og njótum
fegurðarinnar vestur á fjörðum. Ég
stunda ennþá hestamennsku og hef
gert frá árinu 1966.“
Frá 1968 hefur Kjartan verið fé-
lagi í Rotary og frá 1976 í Oddfellow-
reglunni og árið 1985 þegar fjöl-
skyldan var aftur flutt suður fór
hann að starfa í Félagi íslenskra org-
anleikara og var formaður félagsins í
19 ár. „FÍO var á þessum tíma stétt-
arfélag og kom það í hlut formanns-
ins að leysa margs konar kjaramál.
Þessu fékk ég breytt á formannsferli
mínum með því að félagið gerðist að-
ili að FÍH, sem sá síðan um þann
þátt.“ Árin 1986-1991 stundaði
Kjartan nám í guðfræði við Háskóla
Íslands en lauk ekki prófi.
Fjölskylda
Eiginkona Kjartans frá 22.9. 1962
er Bergljót Svanhildur Sveinsdóttir,
ritari bæjarstjórans í Kópavogi síð-
ustu 20 árin á vinnumarkaðnum, en
stundar nú vatnslitamálun í frí-
stundum, en þau kynntust í Tón-
listarskólanum þar sem hún var
nemandi hjá Páli Ísólfssyni í orgel-
leik. Kjartan og Bergljót eru búsett í
Kópavogi. Foreldrar Bergljótar voru
Sveinn Jónsson, f. 9.10. 1910, d. 9.11.
1977, skrifstofumaður hjá SÍS, og
Hlín Magnúsdóttir, f. 7.5. 1921, d.
27.8. 2006, húsmóðir.
Dóttir Kjartans með Sigríði Vil-
Kjartan Sigurjónsson, fyrrverandi organisti og skólastjóri – 80 ára
Börnin Sveinn, Kristín María, Sigurjón og Sindri Páll.
Orgelið varð að lokum aðalstarfið
Hjónin Bergljót og Kjartan.
50 ára Sólrún Lilja er
fædd og uppalin í
Kópavogi en býr á
Hvolsvelli. Hún er
kennari og jógakennari
að mennt og er grunn-
skólakennari á Hellu og
frístunda- og ferða-
þjónustubóndi á Dægru í Rangárþingi
eystra. Hún er í Vörðukórnum á Flúðum
og í Sönghópnum Marteinn, þar sem eru
fyrrverandi félagar í Dómkórnum.
Maki: Gunnar Guðmundsson, f. 1966,
jarðverktaki.
Sonur: Bjarki Páll Eymundsson, f. 2005.
Foreldrar: Klara Guðmundsdóttir, f. 1935,
húsmóðir, og Páll Valmundsson, f. 1931, fv.
leigubílstjóri og gjaldkeri hjá BYKO. Þau
eru búsett í Kópavogi.
Sólrún Lilja Pálsdóttir
Til hamingju með daginn
Hafnarfjörður Ingólfur Darri Ólafs-
son fæddist 15. ágúst 2019 kl. 4.31.
Hann vó 3.520 g og var 52 cm langur.
Foreldrar Ingólfs Darra eru Auðbjörg
Ólafsdóttir og Óli Örn Eiríksson.
Bræður hans eru Eiríkur Skorri (10
ára), Ólafur Flóki (8 ára) og Þorfinnur
Torfi (2 ára).
Nýr borgari
HELENA Dúnúlpa
Áður Kr. 49.990.-
Nú Kr. 24.995.-
50% afsláttur
af dúnúlpum Helen
a og Hinrikl l i
ri
HINRIK Dúnúlpa
Áður Kr. 49.990.-
Nú Kr. 24.995.-