Morgunblaðið - 27.02.2020, Qupperneq 63
MENNING 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2020
Það er stórkostlegt þegar útkoma vandaðar barnaplöt-ur á Íslandi. Svo virðistsem þær séu of fáar og of
langt á milli þeirra til að hægt sé að
tala um eiginlega barnaplötu-útgáfu
á Íslandi síðustu ár. Ef til vill hefur
internetið og ofgnótt barnaefnis í
formi kvikmynda, þátta og sagna
haft einhver áhrif, en einmitt þess
vegna ber að fagna rækilega þegar
vel heppnuð plata, á allan hátt gerð
fyrir börn, kemur út. Bland í poka
inniheldur 11 lög, öll sungin og flutt
á þann hátt að hlustandinn finni fyr-
ir þeim mikla metnaði sem þar hefur
legið að baki. Textarnir eru
blanda af frumlegum og
klassískum barnastefjum.
Þarna eru þekkt þemu um
nammi, um kisu og um sveit-
ina og hve allt er aðeins
skemmtilegra þar. Svo er
einnig sungið um barn sem
fílar ekki Kringluna, og ægi-
legt vesen fjölskylduföður við að
setja saman Ikea-hillur. Semsagt
minni sem sum hafa heyrst oft en
sum hreinlega aldrei áður!
Það er einhver andi áttunda ára-
tugarins sem svífur yfir
vötnum í spilamennsku og
útsetningum og blástur,
strengir og ljúft kassa-
gítarspil miðar allt að því
að skapa notalega og ekki
of þunga heildarmynd. Ef
til vill virkar þessi upp-
skrift sérstaklega vel í ís-
lensku umhverfi, en vel heppnaðar
barnaplötur sem á undan eru komn-
ar og feta svipaðar slóðir eru án efa
Abbababb Dr. Gunna og félaga,
Eniga meniga Olgu Guðrúnar, Gilli-
gill Braga Valdimars og Memfis-
mafíunnar og Lög unga fólksins
Hrekkjusvína.
Bland í poka skartar frábærum
söngvurum í öllum hlutverkum,
Bubbi Morthens, Sigríður Thorla-
cius, Valdimar Guðmundsson og
Snorri Helgason sjálfur eru auðvitað
öll pottþétt en sú sem kemur mest á
óvart er Saga Garðarsdóttir sem
barnið sem fílar ekki Kringluna. Það
lag, „Kringlubarnið“, og „Nammi-
nef“ sem Snorri syngur eru mín
uppáhaldslög og hið síðarnefnda er
með eitthvert heilalím sem virkar að
minnsta kosti ansi vel á minn heila.
Geisladiskurinn er hluti af bók
með myndum og gítargripum sem er
prýðilegur vinkill á útgáfuna og
reyndar alls ekki algengt að slíkt
fylgi. Útlit og teikningar eru í hönd-
um Bobbys Breiðholts og Elínar El-
ísabetar Einarsdóttur og það verður
að segjast að ég man bara varla eftir
eins spennandi, litríkum og barn-
vænum pakka. Það er einnig mjög
gleðilegt að textar eru vel samdir og
auðvelt að syngja með textablöðum
(eða spila smá á gítar, ef fólk er til í
enn meiri ævintýri).
Það er bara ekki hægt annað en
að þakka fyrir þennan frábæra
pakka sem gleður augljóslega börn á
ÖLLUM aldri.
Fyrir börn á öllum aldri
Morgunblaðið/Eggert
Þakkir Rýnir segir ekki annað hægt en að þakka fyrir pakkann frá Snorra.
Barnaplata
Snorri Helgason – Bland í poka
bbbbm
Lög og textar eftir Snorra Helgason,
nema „Litla kisa“, lag Caetano Veloso,
texti Snorri Helga, „Lilla gumman“, lag
Snorri Helga og Hugleikur Dagsson,
texti Hugleikur, og „(Það er orðið)
Framorðið“, lag og texti Snorri Helga og
Sandra Barilli. Útgefandi: Hin íslenzka
plötuútgáfa, 2019.
Tekið upp í stúdíó Masterkey í byrjun
október 2018 af Sturlu Mio Þórissyni,
og í Studíó Sjampó á tímabilinu janúar-
október 2019 af Guðmundi Óskari. Um
hljóðblöndun sáu Styrmir Hauksson og
Addi 800, sem einnig hljómjafnaði.
RAGNHEIÐUR
EIRÍKSDÓTTIR
TÓNLIST
Bandaríski tónlistarmaðurinn
Blackbear, finnska söngkonan
Alma og breski rappdúettinn
Pete & Bas eru meðal þeirra
listamanna og hljómsveita sem
bæst hafa í hóp þeirra sem koma
fram á tónlistarhátíðinni Secret
Solstice í Laugardalnum í sumar.
Af öðrum sveitum sem þegar
hafa verið kynntar til sögunnar
má helstar nefna Cypress Hill,
TLC, Primal Scream, Lil Pump
og Meduza. Hátíðin hefst 26. júní
og stendur yfir í þrjá daga. Af
innlendum listamönnum og sveit-
um má nefna Ensími, Nýdönsk,
Une Misere, Bríeti og Emmsjé
Gauta.
Frekari upplýsingar má finna á
secretsolstice.is.
Blackbear og Alma
á Secret Solstice
Alma Kemur fram á Secret Solstice.
Norðmaðurinn Jahn Teigen lést á
mánudaginn, sjötugur að aldri, á
sjúkrahúsi í Svíþjóð. Teigen var
söngvari, tónlistarmaður og grín-
isti og var fulltrúi Noregs í Euro-
vision í þrígang, á árunum 1978,
1982 og 1983. Varð hann þekktur
um alla Evrópu fyrir flutning sinn
árið 1978 en þá hlaut Noregur ekk-
ert stig í atkvæðagreiðslu að
keppni lokinni.
Teigen fæddist í Tønsberg og hóf
feril sinn á seinni hluta sjöunda ára-
tugarins, gaf þá frá sér nokkrar
stuttskífur og svo hljómplötu með
hljómsveitinni Enemies. Vin-
sældum náði hann þá ekki fyrr en á
fyrri hluta áttunda áratugarins
með rokksveitinni Popol Vuh þar
sem hann gegndi stöðu söngvara.
Breytti sveitin nafninu síðar í Popol
Ace. Teigen var líka liðsmaður í
vinsælu gríntríói, Prima Vera.
Allur Jahn Teigen á sviði árið 2011.
Listamaðurinn
Jahn Teigen látinn
Ljósmynd/Bamble kommune
Þjóðleikhúsið auglýsir eftir leik-
ritum fyrir börn og vill með því efla
starfsemi leikhússins í þágu barna,
að því er fram kemur í tilkynningu,
og hvetja til ritunar nýrra íslenskra
barnaleikrita. Auglýst er eftir nýj-
um leikritum annars vegar fyrir
Stóra sviðið og hins vegar Kassann
eða Kúluna. Verða höfundarlaun
greidd samkvæmt samningi Þjóð-
leikhússins við Rithöfundasamband
Íslands og hlutfallsgreiðsla verður
greidd vegna styttri verka. Óskað er
eftir handritum í fullri lengd eða vel
útfærðum hugmyndum að leikritum
með sýnishorni af leiktexta og skal
stutt lýsing á verkinu á einni til
tveimur blaðsíðum fylgja með og
þarf að koma fram persónufjöldi, at-
burðarás og ætlunarverk höfundar.
Þá skal einnig fylgja stutt ferilskrá
höfundar. Leikrit og hugmyndir að
leikverkum skulu sendar á netfangið
leikritun@leikhusid.is merktar
„Leikrit fyrir börn“ og er umsóknar-
frestur til og með 23. mars 2020.
Gaman Börn á sýningu í Þjóðleikhúsinu.
Auglýst eftir leik-
ritum fyrir börn
Velska tónlistar
konan Duffy
greindi frá því á
Instagram í
fyrradag að
ástæðan fyrir því
að hún dró sig í
hlé fyrir tæpum
tíu árum hefði
verið sú að henni
hefði verið hald-
ið nauðugri marga daga og
nauðgað. Duffy hafði þá notið mik-
illar velgengni og hlotið Grammy-
verðlaun árið 2009.
Var haldið nauð-
ugri og nauðgað
Duffy árið 2009
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
Rás 2
FBL
m.a.
ÓSKARSVERÐLAUN3
BESTA KVIKMYNDATAKAN
BESTA MYNDIN
m.a.
ÓSKARSVERÐLAUN4
ÓSKARSVERÐLAUN
BESTI LEIKARINN: Joaquin Phoenix
BESTA TÓNLISTIN: Hildur Guðnadóttir2