Morgunblaðið - 29.02.2020, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 2 9. F E B R Ú A R 2 0 2 0
Stofnað 1913 51. tölublað 108. árgangur
USSSSSSS ÞURFUM
VIÐ AÐ RÆÐA ÞETTA
EITTHVAÐ?
HEKLA · Laugavegur 170 · Sími 590 5000 · Mitsubishi.is
Frá aðeins
5.490.000
Grjótharður Mitsubishi L200
kr.
FERTUGUR Á
TÍUNDA AFMÆL-
ISDEGINUM
BÆÐI RÓLEG
OG DANSVÆN
Í BLAND
NÝ PLATA GDRN 42HLAUPÁRSDAGUR 14
Hrossin voru samtaka um að snúa sér undan stormi og hímdu
í höm við krapablá austur undir Eyjafjöllum einn kaldan vetr-
ardaginn nú í vikunni. Dimmar hryðjur gengu yfir en leið-
að lengja en allra veðra er þó von ennþá. Oft eru talsverðir
umhleypingar í marsmánuði og því allur varinn góður, eins
og stundum er sagt.
indin í veðrinu nú í vikunni hafa valdið margvíslegri röskun á
samgöngum og í þjóðlífinu almennt. Febrúar með ábót hlaup-
ársdagsins er nú rétt að renna út og daginn því verulega farið
Morgunblaðið/RAX
Í dimmum hryðjum við krapablá undir Eyjafjöllum
Ragnhildur Þrastardóttir
Sigurður Bogi Sævarsson
Hættustigi var lýst yfir í gær og víðtækar var-
úðarráðstafanir eru gerðar í kjölfar þess að
fyrsti maðurinn á Íslandi hefur verið greindur
með kórónuveiruna. Þar á í hlut maður á fimm-
tugsaldri sem verið hafði á skíðum með fleirum
á Ítalíu, en þar í landi hefur veiran náð að breiða
úr sér. Um vika er síðan maðurinn kom að utan
og þegar rannsóknir höfðu verið gerðar lá fyrir
að hann væri smitaður af veirunni. Maðurinn er
ekki alvarlega veikur en verður í einangrun á
Landspítalanum. Ættingjar mannsins sem voru
með honum ytra hafa gefið heilbrigðisyfirvöld-
um greinargóðar upplýsingar, t.d um aðra Ís-
lendinga sem voru nærri honum á Ítalíu og
þannig á að rekja slóð þeirra sem hugsanlega
eru smitaðir. Sýni sem tekið var til greiningar
frá eiginkonu mannsins reyndist vera neikvætt,
þannig að hún er ekki smituð af veirunni.
Ekki þykir koma til greina að setja ferðabann
til og frá landinu vegna veirunnar enda hafa
slíkar ráðstafanir ekki gagnast gegn útbreiðslu
hennar hingað til, að sögn Þórólfs Guðnasonar
sóttvarnalæknis. „Hættustig almannavarna
þýðir að í landinu er ástand sem kallar á öflug
viðbrögð,“ segir Víðir Reynisson, yfirlögreglu-
þjónn hjá Ríkislögreglustjóra, sem hvetur til
ábyrgrar umræðu um málin.
Vinnustaður mannsins sem greindist með
kórónuveiruna var settur í sóttkví síðdegis í
gær.
Mesta hrun á markaði í 12 ár
Hröð útbreiðsla veirunnar um heiminn olli í
þessari viku stærstu dýfu á hlutabréfamarkaði á
heimsvísu síðan í fjármálakreppunni árið 2008.
Hrun hefur orðið á hlutabréfamörkuðum bæði
hérlendis og erlendis. Íslenska hlutabréfavísi-
talan OMX10 hefur lækkað um 10,9% frá 21.
febrúar.
Kórónuveiran greind á Íslandi
Karlmaður í einangrun á Landspítala Eiginkonan ekki sýkt af veirunni Öflug viðbrögð
MHættustig kallar á … »4, 6, 23 og 24