Morgunblaðið - 29.02.2020, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. FEBRÚAR 2020
Superior herbergi
HVATAFERÐIR OG FUNDIR
Superior herbergi
Það fer vel um stóra og smáa hópa á fundum eða í hvataferð hjá okkur.
Við sérsníðum móttökurnar að þörfum hópsins. Hótel Örk er steinsnar
frá borginni í sannkallaðri náttúruparadís.
Pantanir í síma 483 4700
booking@hotelork.is
hotelork.is
Kórónuveirusmit á Íslandi
Ragnhildur Þrastardóttir
Sigurður Bogi Sævarsson
Hættustigi var lýst yfir á Íslandi í
gær eftir að íslenskur karlmaður á
fimmtugsaldri var greindur með já-
kvætt sýni fyrir kórónuveirunni.
Maðurinn, sem nú er í einangrun á
Landspítalanum, er ekki alvarlega
veikur en sýnir dæmigerð einkenni
veirunnar sem eru hósti, hiti og bein-
verkir. Þetta er fyrsta tilfelli kórón-
uveirunnar sem greinist á Íslandi, en
það var laust eftir klukkan 13 sem
niðurstaðan lá fyrir á veiru- og
sýklafræðideild Landspítalans.
Strax þá voru þær viðbúnaðaráætl-
anir sem fyrir liggja virkjaðar og síð-
degis var staða mála kynnt á blað-
mannafundi.
Rekja smitleiðirnar
Æ fleiri greinast nú með kórón-
uveiruna, sérstaklega í Evrópu, og
því þótti aðeins tímaspursmál hve-
nær hennar yrði vart hér á landi.
Maðurinn sem greindist var með
hópi Íslendinga, þar með talið eig-
inkonu sinni og dóttur í skíðaferð í
bænum Andalo á Norður-Ítalíu dag-
ana 15.-22. febrúar. Andalo er utan
skilgreinds hættusvæðis fyrir veir-
una.
Unnið er að því að greina sýni úr
eiginkonu mannsins og dóttur og
verið er að kanna hvaða Íslendingar
voru í þessari sömu ferð. Þannig á að
rekja smitleiðir. Aðrir þeir sem verið
hafa í tengslum við manninn að und-
anförnum verða sömuleiðis teknir í
rannsókn.
Ekki ferðatakmarkanir
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir sagði á blaðamannafundinum
í gær að maðurinn sem greindist
væri sem betur fer ekki alvarlega
veikur, en veikindi hans gerðu vart
við sig „nokkrum dögum“ eftir að
hann kom heim frá Norður-Ítalíu.
Alma D. Möller landlæknir sagði við
sama tilefni að fjölskylda mannsins
hefði öll tekið þessum tíðindum af
miklu æðruleysi og gefið afar grein-
argóðar upplýsingar til heilbrigðis-
yfirvalda sem gagnast muni vel í
starfi þeirra á næstunni.
Flug til Íslands frá Veróna í Ve-
netóhéraði á Ítalíu, þar sem maður-
inn sem nú hefur verið greindur með
krónuveiruna dvaldist, verður
hvorki takmarkað né stöðvað. Fólk
sem þaðan kemur til Íslands er ekki
skyldað í sóttkví þó að mælst sé til
þess, að sögn Þórólfs. Hann bætir
við að ferðatakmarkanir hafi ekki
skilað tilætluðum árangri í barátt-
unni við veiruna hingað til. Almennt
talað sé hvorki gerlegt né fyrirhugað
að setja ferðum til og frá landinu
takmörk.
„Ég bendi á að Ítalía hefur verið
það land í Evrópu sem beitt hefur
hvað hörðustu aðgerðum gegn ferða-
mönnum. Ferðir þeirra hafa verið
takmarkaðar víðsvegar um landið.
Þrátt fyrir það er Ítalía í verstu
stöðu í Evrópu,“ segir Þórólfur sem
bætir við að vissulega sé ástæða fyr-
ir Íslendinga til að hafa áhyggjur af
veirunni rétt eins og öðrum faröldr-
um. Þórólfur segir að nú þegar beiti
yfirvöld hörðum aðgerðum til þess
að varna frekari útbreiðslu veirunn-
ar. Mögulega þurfi þó að herða þær,
sem og aðrar aðgerðir. Þar nefnir
Þórólfur helst samkomubann.
Flestir veikjast vægt
„Ég held þó að það sé gott að hafa
í huga að það eru þrátt fyrir allt 80%
sem fá veiruna mjög vægt og það eru
þá 5 til 10% sem fá hana alvarlega.
Þá fer það bara eftir því hversu mikil
útbreiðslan er hversu margir lenda í
því,“ segir Þórólfur – og bætir við að
óhjákvæmilega falli til aukinn kostn-
aður í heilbrigðiskerfinu vegna veir-
unnar og þess sem af henni leiðir.
Sóttvarnalæknir segir ráðherra rík-
isstjórnarinnar hafa verið mjög já-
kvæða fyrir að bregðast við þeim
óvænta lið og gera það sem í þeirra
valdi stendur til að stemma stigu við
útbreiðslu veirunnar.
Samtalið sé vandað
„Hættustig almannavarna þýðir
að í landinu er ástand sem kallar á
öflug viðbrögð. Slíkt snýr helst að
aukinni samhæfingu og að fleiri en
áður eru virkjaðir til verka. Mörg
fyrirtæki og stofnanir hafa nú sér-
stakt hlutverk í viðbúnaði,“ segir
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn
hjá Ríkislögreglustjóra. Á blaða-
mannafundinum í gær brýndi hann
fólk til þess að vanda tal sitt um kór-
ónuveiruna.
„Það er mjög mikilvægt að við öll
saman sem þjóð stöndum saman í
þessu og tölum skynsamlega, sinn-
um leiðbeiningum og tökum öll
ábyrgð á okkar eigin gerðum og fjöl-
skyldu. Vinnum saman að því sem
ein heild að takast á við þetta verk-
efni,“ sagði Víðir og ítrekaði að fara
yrði að öllu með gát í umræðunni nú
þegar hætta steðjaði að vegna veir-
unnar. Þessi orð lét hann falla eftir
að hafa orðið var við að í fjölmiðlum
væru sýndar myndir af veirunni „illa
útlítandi“ sem jafnvel vektu ótta og
ýmiskonar hræðslu meðal barna og
ungmenna.
Hættustig kallar á öflug viðbrögð
Íslendingur nýkominn frá Ítalíu með kórónuveiruna Í einangrun en ekki alvarlega veikur Kerfið
bregst við Samkomubann möguleg ráðstöfun til varnar Fólk tali skynsamlega og taki ábyrgð
Vinnustaður íslenska karlmannsins
sem var færður í einangrun á Land-
spítalanum í gær eftir að sýni úr hon-
um reyndist jákvætt fyrir kórón-
uveirunni var settur í sóttkví í gær.
Guðrún Sigmundsdóttir, yfirlæknir á
sóttvarnasviði hjá landlækni, stað-
festi þetta í samtali við mbl.is í gær-
kvöldi. Ákvörðun um þetta var tekin
síðdegis í gær. Þá er fjölskylda
mannsins sömuleiðis í sóttkví en í
gærkvöldi kom í ljós að eiginkona
hans er ekki sýkt af veirunni.
Guðrún gat ekki gefið upp hversu
margir hefðu verið settir í sóttkví
vegna tengsla sinna við manninn, en
það ætti eftir að koma í ljós.
Fréttir af útbreiðslu kórónuveir-
unnar eru þegar farnar að hafa ýmis
áhrif. Í gærkvöldi var tilkynnt að
leikjaframleiðandinn CCP hefði
ákveðið að aflýsa hátíðinni EVE Fan-
fest, sem fara átti fram í Hörpu í
Reykjavík 2.-4. apríl nk., vegna kór-
ónuveirunnar. Þetta hefði verið í 15.
sinn sem EVE Fanfest færi fram.
Hátíðin nýtur mikilla vinsælda um
heim allan og var búist við um þúsund
spilurum alls staðar að úr heiminum
hingað til lands. Skipuleggjendur há-
tíðarinnar segja ákvörðunina erfiða
en hún sé nauðsynleg í ljósi aðstæðna.
Í fréttatilkynningu segir að hjá ýms-
um alþjóðlegum fyrirtækjum séu nú í
gildi takmarkanir á lengri ferðalögum
starfsmanna. „Eftir ítarlega grein-
ingu á áhrifum þessara ráðstafana á
skráða þátttakendur á Fanfest, sem
og þeirri staðreynd að margir spilar-
ar EVE sem sæki hátíðina komi um
langan veg og frá öllum heimshorn-
um, hafi verið ljóst að óhjákvæmilegt
væri að hætta við hátíðina í ár.
Ákvörðunin hafi verið tekin að vand-
lega íhuguðu máli.“
Mikil eftirspurn hefur verið eftir
spritti að undanförnu og hefur t.d.
orðið tíföldun á sölu spritts á síðasta
mánuði hjá fyrirtækinu Rekstrarvör-
um. Í síðustu viku seldist jafn mikið
spritt í almennri sölu og venjulega
selst á þremur mánuðum.
Morgunblaðið/Eggert
Viðbúnaður Eitt tilfelli kórónuveir-
unnar hefur greinst á Íslandi.
Fjölskylda og vinnu-
staður eru í sóttkví
Eiginkona manns-
ins er ekki smituð
Nokkrir Íslendingar sem hafa
verið í sóttkví vegna kórónuveir-
unnar á H10 Costa Adeje Pal-
ace-hótelinu á Tenerife eru
væntanlegir til Íslands á morg-
un, sunnudag. Koma með al-
mennu farþegaflugi og fara svo
í sóttkví á heimilum sínum.
Fólk þetta hefur verið á eigin
vegum á hótelinu. Sjö aðrir Ís-
lendingar sem hafa verið á hót-
elinu á vegum Vita hafa ekki
fengið leyfi til heimfarar.
„Fólkið sem kemur heim á
sunnudag er ekki veikt og sýnir
engin einkenni slíks,“ segir
Kjartan Hreinn Njálsson, tals-
maður landlæknis.
Aðrir farþegar í fluginu heim
frá Tenerife þurfa ekki í sóttkví
við heimkomuna. Kjartan
Hreinn ítrekar að sáralitlar líkur
séu á að fólk sem sýnir væg ein-
kenni veirunnar smiti aðra svo
lengi sem fylgt er fyrirmælum
um hreinlæti og haldið fyrir vit
ef hóstað er.
Beint í sóttkví
HEIM FRÁ TENERIFE
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Tíðindi F.v. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn, Alma Möller landlæknir og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.