Morgunblaðið - 29.02.2020, Side 6
Sóttkví, sem fólk er kemur frá
áhættusvæðum kórónuveirunnar er
beðið að fara í, getur verið mjög
íþyngjandi en hún er bráðnauðsyn-
leg til að hindra útbreiðslu veir-
unnar. Þannig má einstaklingur í
sóttkví ekki fara út af heimili og á
aðra staði nema brýna nauðsyn beri
til, svo sem til að sækja heilbrigðis-
þjónustu og þá aðeins að höfðu sam-
ráði fyrirfram við heilsugæslu.
Heimilt er að fara út á svalir eða í
garð við heimilið. Ef aðrir eru þar
líka þarf sá sem er í sóttkví að halda
sig í a.m.k. 1-2 m fjarlægð. Ein-
staklingur í sóttkví má fara í göngu-
ferðir en þarf að halda sig í a.m.k.
1-2 m fjarlægð frá öðrum vegfar-
endum. Heimilt er líka að fara í bíl-
túr á einkabíl en ekki má eiga sam-
skipti við aðra í návígi, t.d. við
bílalúgur veitingastaða.
Einstaklingur í sóttkví má ekki
nota almenningssamgöngur eða
leigubíla og ekki fara til vinnu eða
skóla þar sem aðrir eru. Hann má
ekki fara á mannamót, hvort sem
þau varða starf hans, fjölskyldu eða
félagslíf. Ekki má dvelja í sameigin-
legum rýmum fjölbýlishúsa, svo sem
stigagöngum, þvottahúsum eða sam-
eiginlegum görðum / útivistar-
svæðum. Einstaklingur í sóttkví má
ekki taka á móti gestum á heimili
sínu.
Takmarka þarf til hins ýtrasta
umgengni við annað fólk. Þess vegna
getur einstaklingur þurft að fá að-
stoð við aðföng á heimilið. Um nán-
ari útfærslu þess og allar aðrar upp-
lýsingar um hegðun í sóttkví má lesa
á vef landlæknisembættisins.
gudmundur@mbl.is
Engar heimsóknir í sóttkví
Reglur settar um hegðun í sóttkví á íslenskum heimilum
Takmörkuð umgengni við aðra Gönguferðir leyfðar
AFP
Veiran Ferðalöngum sem koma frá skilgreindum áhættusvæðum kór-
ónuveirunnar er ráðlagt að fara í 14 daga sóttkví á heimilum sínum.
6
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. FEBRÚAR 2020
Golf
Sími 552 2018
info@tasport.is
Lumine Golf Club
Verð frá kr. 219.800
5 nætur í
Barcelona
28. mars – 2. apríl
Verð kr. 119.800 ámann í tvíbýli
Innifalið: Flug, skattar og gjöld.
20 kg innrituð taska og 10 kg handfarangur.
Gisting á 4* hóteli meðmorgunmat.
PGA Catalunya Resort
Verð frá kr. 244.800
Real Club de Golf El Prat
Verð frá kr. 269.800
Sjá allar okkar
ferðir og meiri
upplýsingar á
tasport.is
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Fimm svæði eru skilgreind með
mikla áhættu vegna kórónuveir-
unnar. Sóttvarnalæknir ráðleggur
gegn ónauðsynlegum ferðum þang-
að. Fólk sem verið hefur á þessum
svæðum er beðið að vera í sóttkví í
14 daga heima hjá sér frá dvöl á
áhættusvæði. Með dvöl á áhættu-
svæði er átt við að hafa gist þar.
Áhættusvæðin eru fjögur héruð á
Ítalíu, Lombardía, Venetó, Emilía
Rómanja og Píemonte, Kína, Suður-
Kórea og Íran.
Gæta þarf ýtrasta hreinlætis
Fimm önnur svæði eru skilgreind
með litla smitáhættu. Þetta eru önn-
ur svæði á Ítalíu en nefnd eru hér að
framan, Japan, Singapúr, Hong
Kong og Tenerife. Fólk sem er á
þessum svæðum eða hefur verið á
þessum svæðum á undanförnum
dögum er beðið að gæta ýtrasta
hreinlætis og huga að sýkinga-
vörnum. Það innifelur meðal annars
að þvo hendur oft og vel, hafa klút
fyrir andlitinu við hnerra/hósta eða
hnerra/hósta í olnbogabót og nota
handspritt. Handþvottur, það að
forðast að snerta augu, nef og munn
og það að forðast að heilsa með
handabandi eru lykilatriði til að
forðast smit og fækka smitleiðum.
Tilkynna þarf veikindi sem koma
upp innan 14 daga frá heimsókn á
ofangreind svæði í síma 1700 eða til
heilsugæslunnar og fara yfir ferða-
söguna.
Ferðamenn fylgist með fréttum
Þá segir í ráðleggingum sótt-
varnalæknis að Íslendingar á ferða-
lögum erlendis, sérstaklega þar sem
kórónuveiran hefur verið staðfest,
ættu að fylgjast vel með ferðatak-
mörkunum og fjöldasamkomu-
takmörkunum á þeim svæðum og
aðlaga ferðaáætlanir eins og þurfa
þykir.
Gæta þarf vel að almennu hrein-
læti, sérstaklega handþvotti með
sápu og vatni. Handspritt má nota
ef ekki er hægt að þvo hendur. Þó
skyldi alltaf þvo hendur með sápu
og vatni ef þær eru sýnilega óhrein-
ar.
Forðast villt dýr
Forðast á náið samneyti við ein-
staklinga sem eru með almenn kvef-
einkenni/hósta. Fólk er beðið að
snerta ekki munn, nef eða augu með
óþvegnum höndum. Nota skal papp-
ír fyrir vit við hnerra og hósta og
þvo hendur reglulega. Henda skal
pappír eftir notkun.
Loks er ráðlagt að forðast sam-
neyti við villt dýr eða dýr á almenn-
um mörkuðum.
Forðast ber áhættusvæði veirunnar
Varað við ferðum á fimm aðaláhættusvæði kórónuveirunnar Önnur fimm svæði með minni
áhættu en þörf á aðgæslu Mikilvægt að fylgja leiðbeiningum og fylgjast með tilkynningum
Ekki snerta munn,
nef eða augu
með óþvegnum
höndum.
Nota pappír fyrir vit við hnerra
og hósta og þvo hendur
reglulega.
Henda skal pappír eftir notkun.
Ráðleggingar til ferðamanna
Ef þeir fá einkenni frá öndunarfærum, sérstaklega með
hita, skulu þeir hafa samband við Læknavaktina í síma
1700 eða sína heilsugæslu símleiðis en ekki mæta
óboðaðir á sjúklingamóttökur.
Fylgjast vel með ferðatakmörkunum
og takmörkunum á fjöldasamkomum.
Gæta vel að almennu hreinlæti,
sérstaklega handþvotti með
sápu og vatni.
Handspritt má nota ef ekki er
hægt að þvo hendur. Þó skyldi alltaf
þvo hendur með sápu og vatni ef þær
eru sýnilega óhreinar.
Forðast náið
samneyti við
einstaklinga sem
eru með almenn
kvefeinkenni/hósta.
Svæði með mikla smitáhættu
Kína
Eftirfarandi héruð á Ítalíu:
Lombardía, Venetó,
Emilía-Rómanja og Píemonte
Suður-Kórea
Íran
Ráðlagt er gegn ónauðsynlegum
ferðum á ofangreind svæði. Þeir
sem hafa dvalið á þessum svæðum
eru beðnir um að vera í sóttkví í 14
daga frá dvöl.
Svæði með litla
smitáhættu
Önnur svæði á Ítalíu
Japan
Singapúr
Hong Kong
Tenerife
Þeir sem eru á eða hafa verið á
þessum svæðum á undanförn-
um dögum eru beðnir um að
gæta ýtrasta hreinlætis og
huga að sýkingavörnum.
Mælt er með að ferðamenn sleppi ónauðsynlegum ferðalögum til áhættu-
svæða þar sem kórónuveirufaraldur er í gangi og smit er talið útbreitt.
Einstaklingar, með búsetu á Íslandi, sem hafa verið á áhættusvæðum
og snúa heim eru hvattir til að halda sig heima í 14 daga.
Sóttvarnalæknir hvetur einstaklinga á
ferðalögum erlendis, sérstaklega þar sem
kórónuveirusmit hefur verið staðfest að:
Forðast samneyti við
villt dýr eða dýr á
almennum mörkuðum.
Heimild: Embætti landlæknis
Íslensk stjórnvöld telja enn að ekki
séu við lýði þær aðstæður sem kalli
á lokun landsins vegna kórónuveir-
unnar. Núverandi áhættumat bend-
ir ekki til þess að upptaka tíma-
bundins landamæraeftirlits myndi
bera árangur við að hefta út-
breiðslu veirunnar. Snúið er að
banna fólki að koma hingað til
lands vegna alþjóðlegra skuldbund-
inga en heimildir til að loka landinu
með vísan til almannaheilbrigðis
eru þó taldar ótvíræðar. Í þeim efn-
um koma til skoðunar t.d. ákvæði
laga um sóttvarnir, um loftferðir og
ákvæði laga um útlendinga.
Ef landinu er lokað komast Ís-
lendingar sem staddir eru erlendis
ekki heim (án sérstaks heimflutn-
ings) og aðföng og útflutningur
raskast. Möguleikinn á þessu úr-
ræði er í stöðugri endurskoðun í
samræmi við áhættumat á hverjum
tíma.
Innanlands hafa lögregluyfirvöld
miklar valdheimildir komi til
hættuástands og gildir einu um
hvers konar hættu er að ræða. Lög-
reglustjóri getur gefið fyrirmæli
sem öllum er skylt að hlíta, m.a. um
að banna dvöl eða umferð á
ákveðnum svæðum og að vísa fólki
á brott eða fjarlægja fólk. Þótt
ferðamenn fengju inngöngu í land-
ið á Keflavíkurflugvelli væri hægt
að loka fyrir umferð til nærliggj-
andi byggðarlaga.
Ótvíræðar heimildir
til að loka landinu
Ekki talin þörf á því að svo stöddu
Morgunblaðið/Sverrir
Landamæri Lögreglan hefur víð-
tækar heimildir til að stöðva fólk.
Kórónuveirusmit á Íslandi