Morgunblaðið - 29.02.2020, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. FEBRÚAR 2020
Nikki Haley, fyrrverandi rík-isstjóri Suður-Karólínuríkis
og fyrrverandi sendiherra Banda-
ríkjanna við SÞ, ritaði í vikunni
grein í The Wall
Street Journal þar
sem hún færði ágæt
rök fyrir því að nú
mætti ekki tvístíga
með kapítalismann.
Hún benti á að mik-
ilvæg rökræða ætti
sér nú stað í
Bandaríkjunum um þrenns konar
viðhorf til heimsins. Í fyrsta lagi
væri viðhorfið að kapítalisminn
væri „besta og sanngjarnasta kerfi
sem heimurinn hefði nokkru sinni
séð“. Í öðru lagi væri uppi það við-
horf að „sósíalisminn væri svarið
við fjölda vandamála, allt frá lofts-
lagsbreytingum til ójöfnuðar“.
Loks væri viðhorf þeirra sem boði
útvatnaðan kapítalisma, sem væri
„hægfara leiðin til sósíalisma“.
Haley fyllir fyrsta flokkinn,segist hafa alist upp sem
dóttir innflytjenda frá Indlandi.
Móðir hennar hafi sett upp lítið
fyrirtæki og sýnt börnum sínum
hvernig eigi að lifa ameríska
drauminn.
Þá minnir Haley á ástandið þarsem sósíalisminn hafi verið
reyndur og afleiðingin sé hungur
og hörmungar. Hún furðar sig á
að sósíalismi sé að skjóta upp koll-
inum í Bandaríkjunum en nefnir í
því sambandi að heil kynslóð full-
orðins fólks í Bandaríkjunum sé of
ung til að muna þjáningar sósíal-
ismans.
En hún varar einnig við útvatn-aða kapítalismanum sem
meira að segja forkólfar viðskipta-
lífsins tali fyrir. Þeir viti betur en
séu undir þrýstingi pólitísks rétt-
trúnaðar. Hætt er við að sá þrýst-
ingur og sama eftirgjöf finnist
einnig utan Bandaríkjanna.
Nikki Haley
Ekki tíminn
til að tvístíga
STAKSTEINAR
Á fundi stjórnar Faxaflóahafna sf. í
gær var lagt fram bréf Gísla Gísla-
sonar hafnarstjóra þar sem hann
segir starfi sínu lausu.
„Undirritaður hefur gegnt starfi
hafnarstjóra í á fimmtánda ár og
tímans gangur sá að skynsamlegt
sé að huga að starfslokum. Því segi
ég undirritaður upp störfum með
umsömdum uppsagnarfresti sem er
sex mánuðir. Samkvæmt því verða
starfslok í lok ágústmánaðar,“ segir
Gísli í bréfinu.
Hafnarstjórnin bókaði að vegna
fyrirhugaðra starfsloka hafnar-
stjóra væri formanni falið að leggja
fram tillögu að auglýsingar- og
ráðningarferli á næsta fundi stjórn-
ar.
„Ég verð 65 ára gamall á árinu
og því góður tími til að taka loka-
sprettinn á vinnumarkaðnum,“ seg-
ir Gísli aðspurður. Hann sé búinn
að vera í þessu daglega ati í 35 ár
og því kominn
tími til að hægja
aðeins á.
Gísli fæddist í
Hafnarfirði 9.
júlí árið 1955.
Lauk lögfræði-
prófi árið 1981
og er héraðs-
dómslögmaður
frá árinu 1982.
Starfaði sem lögmaður á árunum
1981-1985, en tók þá við starfi bæj-
arritara á Akranesi. Var ráðinn
bæjarstjóri á Akranesi árið 1987 og
gegndi því starfi til loka árs 2005.
Hefur starfað síðan sem hafnar-
stjóri Faxaflóahafna sf. Hann hefur
búið á Akranesi frá árinu 1982.
Gísli hefur starfað mikið að
íþróttamálum. Hefur m.a. verið for-
maður Knattspyrnufélags ÍA og er
nú varafomaður Knattspyrnu-
sambands Íslands. sisi@mbl.is
Hafnarstjóri hefur
sagt starfinu lausu
Gísli Gíslason
Atvinna
Kristján Þór Júlíusson, sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra,
hefur undirritað reglugerð um grá-
sleppuveiðar árið 2020. Reglugerðin
heimilar veiðar í 25 daga á hvert
veiðileyfi en dagafjöldinn verður
endurskoðaður í ljósi ráðgjafar
Hafrannsóknastofnunar sem vænta
má fyrir 1. apríl. Þá mega veiðar
hefjast fyrr en verið hefur eða 10.
mars.
Fram kemur í tilkynningu frá
ráðuneytinu að meðafli spendýra og
fugla hafi um nokkurt skeið verið
vandamál við veiðar á grásleppu og
sé meðal annars helsta ástæða þess
að veiðarnar misstu vottun MSC ár-
ið 2018. Þar komi einkum til um-
talsverður meðafli sjófugla auk
landsels og útsels, sem eru á válista
Náttúrufræðistofnunar um teg-
undir sem eiga undir högg að
sækja. Reglugerðin um grá-
sleppuveiðar miði að því að draga
úr þessum meðafla og að ná sam-
þykktum stjórnunarmarkmiðum
fyrir landsel við Ísland. Ákveðið
hafi verið að stórauka eftirlit Fiski-
stofu með veiðunum sem og að fara
að tillögum starfshóps, sem skip-
aður var á síðasta ári. Í samræmi
við þær tillögur kemur fram í reglu-
gerðinni að í stað fjögurra daga áð-
ur skulu net nú ekki vera lengur í
sjó en þrjá daga áður en þeirra er
vitjað. Þá er 14 veiðisvæðum lokað.
Grásleppuveiðar leyfðar í 25 daga
Ný reglugerð á að stuðla að því að draga úr meðafla sela og fugla
Grásleppa Nýar reglur um veiðar.
Sótthreinsi-
þrif
Kleppsmýrarvegur 8 | 104 Reykjavík | 581 4000 | solarehf.is | solarehf@solarehf.is
Hafðu samband og við gerum fyrir þig
þarfagreiningu og tilboð í þjónustu
án allra skuldbindinga.
Fyrirbyggjandi aðgerðir
gegn inflúensusmiti
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/