Morgunblaðið - 29.02.2020, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. FEBRÚAR 2020
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Búbblur og pallíettur er þema árlegs
kvennakvölds hestamannafélagsins
Fáks í Reykjavík sem haldið verður í
félagsheimili félagsins í kvöld.
Kvennakvöldið er eftirsótt skemmt-
un og munu 240 konur skemmta sér
saman í pallíettukjólum og með
kampavín. Og Páll Óskar lofar að
trylla lýðinn á dansgólfinu.
Alltaf góð stemning
Ragnhildur Matthíasdóttir,
einn skipuleggjenda, segir að aðsókn
að kvennakvöldinu hafi verið slík að
þótt bætt hafi verið við borðum eins
og salurinn þolir hafi einhverjar orð-
ið frá að hverfa. Hún kveðst ekki ótt-
ast þrengslin því þröngt megi sáttir
sitja.
Ragnhildur segir að góð stemn-
ing sé ávallt á kvennakvöldunum.
Hópar komi saman í heimahúsum
síðdegis til að undirbúa sig fyrir
kvöldið og sumar hittist í hádeginu.
Hittingurinn er meðal annars not-
aður til skrýðast pallíettum eða við-
eigandi fatnaði, eftir smekk hverrar
og einnar. Hópurinn sem Ragnhild-
ur tilheyrir undirbýr kvöldið í kvöld.
Hún viðurkennir að þetta sé mikið
verk en skemmtilegt. Þær missi þó
ekki af útreiðartúrum þess vegna,
nema þennan eina dag.
Þótt Fákskonur haldi kvenna-
kvöldið koma einnig konur úr öðrum
hestamannafélögum. Þær verða
ekki alveg karlmannslausar því eig-
inmennirnir fá að koma síðar um
kvöldið. „Við leyfum þeim að koma á
miðnætti,“ segir Ragnhildur.
Koma sterkar inn í sportið
Konur eru að sækja sig í hesta-
mennskunni. „Þær eru að koma
sterkt inn í sportið, ekki síst úti í
Evrópu þar sem þær eru meira
áberandi en strákarnir. Við höfum
ekki enn náð því hér heima en við
eigum mikið af öflugum konum í
keppnum hér,“ segir Ragnhildur
Matthíasdóttir.
Búbblur og pallíettur á
kvennakvöldi hjá Fáki
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Riðið út Auglýsing um kvennakvöldið fór ekki fram hjá konunum sem eru að viðra hestana í Víðidal.
Konurnar leyfa eiginmönnunum að koma um miðnættið
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
VOR 2020
30% afsláttur
Opið 11-15 í dag
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
túnikur
Str. 40/42-56/58
í dag
Skipholti 29b • S. 551 4422
Fylgið okkur á facebook
Fisléttir
VOR-
JAKKAR
í fallegum litum
Elías Pétursson, sem undanfarin
sex ár hefur verið sveitarstjóri
Langanesbyggðar, hefur verið ráð-
inn bæjarstjóri Fjallabyggðar. Tek-
ur hann við nýja starfinu 9. mars
næstkomandi.
Sveitarstjórn Langanesbyggðar
tilkynnti í gær að fallist hefði verið
á ósk Elíasar um að hann láti af
störfum fyrir sveitarfélagið, þar
sem hann væri að hefja störf á nýj-
um vettvangi. Í kjölfarið tilkynnti
Fjallabyggð, að hann hefði verið
ráðinn bæjarstjóri þar. Gunnar
Birgisson lét af störfum bæjar-
stjóra Fjallabyggðar 1. desember
sl. af persónulegum og heilsufars-
legum ástæðum.
Áður en Elías
tók við starfi
sveitarstjóra
Langanesbyggð-
ar var hann sjálf-
stætt starfandi
ráðgjafi, meðal
annars hjá Mos-
fellsbæ. Hann
fæddist á Þórs-
höfn 1965. Á vef
Langanesbyggðar segir Elías:
„Undanfarin að verða sex ár hafa
verið á stundum krefjandi en ákaf-
lega lærdómsrík, þroskandi og
ánægjuleg, fyrir það allt þakka ég.“
Frá Langanesbyggð til Fjallabyggðar
Elías Pétursson