Morgunblaðið - 29.02.2020, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. FEBRÚAR 2020
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fjárfestar hafa sett í sölu 35 íbúðir í
Síðumúla 39. Um er að ræða fyrsta
nýja íbúðarhúsið í endurnýjun Múla-
hverfisins í Reykjavík.
Verð íbúðanna er frá 32 til 59,9
milljónir króna en þær eru tveggja
og þriggja herbergja. Íbúðirnar eru
frá 44,7 fermetrum og upp í 91 fer-
metra. Bílastæði í kjallara fylgja 13
íbúðum.
Meðalstærð íbúðanna er 71 fer-
metri og meðalverðið 48,34 milljónir.
Meðalverð á fermetra er því um 680
þúsund. Íbúðir með bílastæðum eru
dýrari sem hækkar meðalfermetra-
verðið.
Óvenjumikil lofthæð er í vestur-
byggingunni. Loftin eru tekin niður í
stofum og eru inndregin ljós með-
fram veggjum. Margar íbúðanna
hafa útbyggða glugga í stofu, ásamt
svölum, sem hleypir inn birtu.
Endurbyggt sem íbúðarhús
Síðumúli 39 er fjögurra hæða
lyftuhús á horni Fellsmúla og Síðu-
múla. Vestari hluti byggingarinnar
var áður atvinnuhúsnæði en hefur
verið endurbyggður sem íbúðir. Á
jarðhæð er atvinnuhúsnæði en þar er
nú hárgreiðslustofan Unique hár og
spa. Til austurs er svo nýbygging
með 10 íbúðum.
Á þaki nýbyggingarinnar verða
stórar sameiginlegar svalir fyrir
íbúa. Þaðan er ágætt útsýni austur
að Bláfjöllum. Austan við nýbygg-
inguna er Oddsson-hótelið en það
hús var einnig endurgert og stækk-
að. Á hótelinu eru 77 herbergi í
tveimur byggingum.
Garðar Hólm, löggiltur fast-
eignasali hjá fasteignasölunni
Trausta, segir staðsetninguna mjög
góða. Fjöldi vinnustaða sé í nágrenn-
inu og margvísleg þjónusta. Þá séu
greiðar almenningssamgöngur í
hverfinu.
„Það er mikið atvinnulíf á svæðinu.
Íbúðirnar henta því fólki vel sem sér
hagræði í að búa nærri vinnustaðn-
um. Þá erum við loksins að fá íbúðar-
hús með lyftu á þetta svæði. Það seg-
ir sitt um vinsældir hverfisins að hér
skuli vera svo mikil eftirspurn eftir
íbúðum á fjórðu hæð í lyftulausum
húsum. Þetta er enda svo mið-
svæðis,“ segir Garðar.
Fyrstu íbúðirnar í Síðumúla 39
verða afhentar í byrjun apríl.
Garðar B. Sigurjónsson, löggiltur
fasteignasali hjá fasteignasölunni
Trausta, segir íbúðirnar henta vel
fyrstu kaupendum og þeim sem eru
að kaupa sína aðra íbúð.
Sérsmíðaðar innréttingar
Þær afhendist fullbúnar með sér-
smíðuðum innréttingum frá Formus/
Völke en án gólfefna í meginrými.
Baðherbergi afhendist flísalögð og
með skápum fyrir þvottavél og
þurrkara. Með hliðsjón af staðsetn-
ingu íbúðanna henti þær til dæmis
þeim sem kjósa bíllausan lífsstíl.
Húsið teiknaði Jakob Líndal, arki-
tekt hjá Alark arkitektum, en innan-
hússarkitekt var Hallgrímur Frið-
geirsson hjá Studio H.
Mynddyrasími fylgir öllum íbúð-
um og er húsið klætt að utan með ál-
plötum.
Borgaryfirvöld hafa kynnt hug-
myndir um uppbyggingu hundraða
íbúða í Múlahverfinu.
Sú uppbygging mun meðal annars
fela í sér umbreytingu á skrifstofu-
húsnæði í íbúðarhúsnæði. Nokkrum
skrifstofuhúsum í hverfinu hefur ver-
ið breytt í hótel en áform um fleiri
hótel hafa verið sett til hliðar í bili.
Þá er áformað að umbreyta Skeif-
unni í íbúðarhverfi.
Setja á sölu íbúðir í Síðumúla
Fjárfestar setja 35 íbúðir í Síðumúla 39 í sölu Meðalverð íbúðanna er 48,34 milljónir króna
Fasteignasali segir um að ræða fyrsta lyftuhúsið í gamalgrónu hverfi sem hafi mikla þjónustu
Síðumúli 39 Svalir snúa til suðurs. Frágangur utanhúss er langt kominn.
Morgunblaðið/Eggert
Horft til vesturs Þaksvalir eru ofan á nýbyggingunni fyrir íbúa hússins.
Fasteignasalar Garðar B. Sigurjónsson, til vinstri, og Garðar Hólm. Mikil lofthæð Loft eru tekin niður í stofum og ljós eru meðfram veggjum.
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
Kjörstjórn Eflingar-stéttarfélags auglýsir framboðsfrest
vegna kosningar hluta stjórnar félagsins fyrir kjörtímabilið
2020-2022.
Að þessu sinni skal kjósa um formann, gjaldkera og 6
aðalmenn í stjórn til tveggja ára.
Tillögur skulu vera um 8 stjórnarmenn til tveggja ára
samkvæmt 10. gr. laga félagsins. Þá skal kjósa tvo
skoðunarmenn reikninga fyrir kjörtímabilið og einn
varamann.
Listi uppstillingarnefndar og trúnaðarráðs liggur frammi á
skrifstofu félagsins frá og með mánudeginum
2. mars 2020.
Öðrum listum ber að skila á skrifstofu félagsins fyrir kl.
16.00 föstudaginn 6. mars nk.
Fylgja skulu meðmæli 120 félagsmanna.
Kjörstjórn
Eflingar-stéttarfélags
EFLING-stéttarfélag auglýsir
FRAMBOÐSFREST