Morgunblaðið - 29.02.2020, Side 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. FEBRÚAR 2020
29. febrúar 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 127.0 127.6 127.3
Sterlingspund 163.58 164.38 163.98
Kanadadalur 95.23 95.79 95.51
Dönsk króna 18.589 18.697 18.643
Norsk króna 13.533 13.613 13.573
Sænsk króna 13.15 13.228 13.189
Svissn. franki 130.67 131.41 131.04
Japanskt jen 1.1525 1.1593 1.1559
SDR 173.83 174.87 174.35
Evra 138.91 139.69 139.3
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 170.7608
Hrávöruverð
Gull 1646.6 ($/únsa)
Ál 1670.5 ($/tonn) LME
Hráolía 53.18 ($/fatið) Brent
● Vöxtur lands-
framleiðslu var
4,7% að raungildi á
fjórða ársfjórðungi
ársins 2019 borið
saman við sama
tímabil árið 2018.
Þetta kemur fram í
tölum frá Hag-
stofu Íslands. Þar
segir einnig að
vöxtur einkaneyslu
hafi mælst 1% á
tímabilinu, vöxtur samneyslu 3,8% en
3% samdráttur hafi mælst í fjár-
munamyndun.
Hagstofan segir að vöxtur landsfram-
leiðslu skýrist af jákvæðum áhrifum ut-
anríkisviðskipta en innflutningur dróst
saman um 10,2% á tímabilinu á meðan
útflutningur jókst um 0,5%.
Hagstofan áætlar að lands-
framleiðslan hafi aukist um 1,9% að
raungildi á árinu 2019 í heild frá því
sem var á fyrra ári. Það er mun meiri
vöxtur en vænst hafði verið, eins og
bent er á í Hagsjá Landsbankans.
Þá segir í frétt Hagstofunnar að
landsframleiðsla á mann hafi dregist
saman um 0,3% að raungildi á síðasta
ári að teknu tilliti til mannfjöldaaukn-
ingar, sem nam 2,2% á árinu 2019, en
1,1% vöxtur var árið 2018.
Landsframleiðsla jókst
um 4,7% á lokafjórðungi
Framleiðsla Vöxt-
ur var meiri en
vænst var.
STUTT
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Í kröfubréfi dagsettu 17. desember
2019, sem sagt er frá í nýbirtum árs-
reikningi fjarskiptafyrirtækisins Sýn-
ar, er lýst þeirri skoðun að tilteknir
þættir í starfsemi vefmiðilsins
Frettabladid.is samrýmist ekki þeim
skuldbindingum sem fram komi í
kaupsamningi Sýnar hf. við 365 hf., frá
árinu 2017.
Þá er vísað til þess að umrædd
ákvæði feli í sér rétt Sýnar hf. til að
krefjast févítis/dagsekta að fjárhæð 5
milljónir króna á dag að viðbættum
verðbótum. Segir um málið í ársreikn-
ingnum að á þeim grundvelli sé svo
gerð krafa um greiðslu á 1.140 millj-
ónum króna auk verðbóta. Einnig seg-
ir á sama stað að af hálfu Ingibjargar
Pálmadóttur eiganda 365 hf., eigin-
manns hennar Jóns Ásgeirs Jóhann-
essonar, og 365 hf. hafi kröfunni verið
mótmælt með bréfi 20. desember
2019, en Sýn hf. hafi falið lögmanni að
undirbúa höfðun dómsmáls til heimtu
þessarar kröfu og megi búast við að
málið verði höfðað á næstu vikum.
Málið er tvíþætt
Einar Þór Sverrisson, stjórnarfor-
maður 365 hf., segir að enn hafi ekki
borist stefna frá Sýn. Krafa sem fjar-
skiptafyrirtækið Sýn segist munu
gera á 365 hf., Torg ehf, Ingibjörgu og
Jón Ásgeir á grundvelli samkeppnisá-
kvæða í kaupsamningi Sýnar hf. við
365 hf. (áður 365 miðlar hf.), sé fjar-
stæðukennd og virðist tengjast að-
komu nýs eiganda að Torgi, Helga
Magnússyni.
„Eins og ég skil þetta þá er þetta
tvíþætt. Það lá fyrir þegar Sýn keypti
eignir 365 að 365 tók á sig samkeppn-
isbann um að fara ekki í samkeppni í
sama rekstri og var seldur. Eftir að
Helgi Magnússon eignast Torg út-
gáfufélag Fréttablaðsins þá kaupir
Torg sjónvarpsstöðina Hringbraut.
Sýn vill meina að það hafi falið í sér
brot á samkeppnisbanninu. Það liggur
samt fyrir að hvorki Torg né Helgi
Magnússon voru aðilar að þessu sam-
keppnisbanni,“ segir Einar í samtali
við Morgunblaðið.
Hann bætir við að í samningi aðil-
anna sé hvergi skuldbinding um að ef
365 selji Fréttablaðið sé sá sem taki
við keflinu bundinn af einhverju sam-
keppnisbanni. „Það er ekki stafkrókur
um það, enda væri það væntanlega
eitthvað sem ég tel að Samkeppniseft-
irlitið hefði verulegar athugasemdir
við og mun sennilega gera athuga-
semdir við ef Sýn gerir alvöru úr þess-
um boðaða málatilbúnaði.“
Vefurinn áþekkur The Times
Einar bendir á til viðbótar að hitt
sem Sýn geri athugasemdir við sé
starfræksla á vefnum Frettabladid.is,
en það sé alveg skýrt í samningi aðila
að Fréttablaðið mátti halda úti vefsíðu
sem styðji við útgáfu Fréttablaðsins.
Þar var sérstaklega tilgreint að sá vef-
ur mætti vera sambærilegur við vef
breska dagblaðsins The Times.
„Fréttablaðið.is er bara mjög áþekkur
vef The Times, og því er ekkert brot
þar á ferðinni. Stóra málið var að vef-
ur Fréttablaðsins yrði ekki alhliða af-
þreyingarvefur, og eins og segja má
að vefurinn Vísir.is er. Við það hefur
verið staðið, enda stóð aldrei neitt
annað til.“
Krafa Sýnar virðist tengj-
ast kaupum á Hringbraut
Morgunblaðið/Hari
Deila Sýn hf. hefur falið lögmanni að undirbúa höfðun dómsmáls til heimtu 1,1 milljarðs króna.
Samruni
» Sýn gerir kröfu um
greiðslu rúmlega eins millj-
arðs króna.
» Sýn keypti allar eignir og
rekstur 365 miðla, að und-
anskildum eignum er varða
útgáfu Fréttablaðsins og
tímaritsins Glamour haustið
2017.
» Sýn var rekið með 1,7 millj-
arða króna tapi á síðasta ári.
» Helgi Magnússon fjárfestir
keypti Fréttablaðið og sjón-
varpsstöðina Hringbraut 2019.
Samkvæmt samningi mátti Fréttablaðið.is vera eins og vefur The Times
Vínheildsalan Vínnes hyggst end-
urtaka leikinn frá því í fyrra þegar
fyrirtækið bauð landsmönnum upp
á belgíska Stella Artois-bjórinn á
tilboði.
Eins og fjallað var um í Morg-
unblaðinu á sínum tíma lækkaði
Vínnes verð á bjórnum í Vínbúð-
unum um tæplega 40% eftir að
heildsalan Costco gerði svokallað
verðboð í bjórinn, í tilraun til að
komast inn á markaðinn.
Tilboð Vínness í fyrra hljóðaði
upp á 219 krónur fyrir hverja 330
ml flösku af Stella Artois, en hún
hafði kostað 359 krónur áður. Núna
í mars mun flaskan kosta 249 krón-
ur út úr Vínbúðinni. Segir Birkir
Ívar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Vínness, að afslátt-
urinn nemi 31% og sú tala sé valin í
tilefni af 31 árs afmæli sölu bjórs á
Íslandi, en bjórdagurinn svokallaði
er 1. mars nk. „Það verður gaman
að sjá viðtökurnar. Þær voru mjög
góðar í fyrra,“ segir Birkir, en
fluttir voru inn tugir gáma af bjórn-
um til að anna eftirspurn. Tilboðið
stóð í þrjá mánuði, frá mars til loka
maí.
„Við þurftum að hafa okkur öll
við í pöntununum, en eftirspurnin
var slík að birgðastaða okkar var
ekki orðin eðlileg fyrr en um miðj-
an júlí. Við erum enn betur birg
núna og eigum von á frekari birgð-
um í mars. Það er bara vonandi að
boðað verkfall starfsmanna Toll-
stjóra hafi ekki áhrif.“
Birkir segir að salan í fyrra, og
umfjöllunin, hafi orðið til þess að
styrkja vörumerkið Stella Artois í
huga neytenda. Þó svo að minni
framlegð hafi verið á hverjum seld-
um bjór, hafi áhrifin verið mjög já-
kvæð til lengri tíma. tobj@mbl.is
Bjór Birkir segir að vörumerkið
hafi styrkst til lengri tíma.
Bjóða aftur
afslátt af Stellu
31% afsláttur í
mars í tilefni af 31
árs afmæli bjórsins