Morgunblaðið - 29.02.2020, Qupperneq 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. FEBRÚAR 2020
ÖRYGGI ÖLLUM STUNDUM
ÖRYGGISHNAPPUR
SECURITAS
Hringdu í síma 580 7000 eða farðu á heimavorn.is
SAMSTARFSAÐILI
ÖRYGGISHNAPPUR SECURITAS
09:41 100%
BROTINN
SKJÁR?
Við gerum við
allar tegundir
síma, spjaldtölva,
og Apple tölva
Bolholti 4, 105 • Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is
s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin WHO
hækkaði í gær áhættumat sitt vegna
kórónuveirunnar upp í hæsta stig.
Tedros Adhanom Ghebreyesus,
framkvæmdastjóri stofnunarinnar,
sagði sérstakt áhyggjuefni að tilfell-
um veirunnar væri enn að fjölga og
hennar yrði nú vart í sífellt fleiri
löndum.
Tedros taldi þó enn möguleika á
að halda aftur af frekari útbreiðslu
lungnabólgufaraldursins en til þess
þyrfti samstillt átak til að greina til-
felli snemma, einangra og huga að
sjúklingum.
Auk Íslands voru tilkynnt fyrstu
tilfelli veirunnar í Hvíta-Rússlandi,
Danmörku, Litáen, Mexíkó og á
Nýja-Sjálandi í gær. Hennar hefur
nú orðið vart í meira en fimmtíu ríkj-
um og í öllum heimsálfum nema Suð-
urskautslandinu.
Sunnan Sahara í fyrsta sinn
Þá bættist Nígería í hóp þeirra
ríkja þar sem veirunnar hefur orðið
vart, og varð landið þar með fyrsta
Afríkuríkið sunnan Sahara-eyði-
merkurinnar þar sem faraldurinn
kemur upp. Um var að ræða Ítala
búsettan í höfuðborginni Lagos, sem
virðist hafa smitast á Norður-Ítalíu.
Meira en 83.000 manns hafa nú
smitast af kórónuveirunni og rúm-
lega 2.800 látist af hennar völdum.
Langflest tilfellin hafa komið upp í
Kína, þar sem faraldursins varð
fyrst vart, en tilfellum þar hefur
fækkað að undanförnu, á sama tíma
og tilfellum utan Kína hefur fjölgað
hratt. Svissnesk stjórnvöld ákváðu í
gær að fresta öllum viðburðum þar
sem von væri á fleiri en þúsund
manns fram til 15. mars.
Verðbréfamarkaðir héldu áfram
að vera í frjálsu falli í gær og bendir
ýmislegt til að undanfarin vika verði
sú versta á mörkuðunum frá alþjóð-
legu fjármálakreppunni 2008. Olíu-
verð féll um 4% í gær og hefur ekki
verið lægra í rúmt ár.
Þá vara sérfræðingar við því að
áhrif veirunnar á Kína og lægra
framleiðslustig þar í kjölfar farald-
ursins muni geta haft mikil og nei-
kvæð áhrif á efnahag annarra ríkja á
næstu vikum.
Áhættumat WHO
komið á hæsta stig
Hraði útbreiðslunnar áhyggjuefni Markaðir falla enn
AFP
Faraldur Starfsmaður í franskri verksmiðju pakkar niður grímum, sem mikil eftirspurn er eftir vegna faraldursins.
Stjórnvöld í Kreml sögðu að Vladim-
ír Pútín Rússlandsforseti og Recep
Tayyip Erdogan myndu mögulega
funda í Moskvu í næstu viku vegna
ástandsins í Sýrlandi, en leiðtog-
arnir ræddust við í síma í gærmorg-
un eftir að 33 tyrkneskir hermenn
féllu í árás sýrlenska stjórnarhers-
ins á bækistöðvar uppreisnarmanna
í Idlib-héraði.
Mannfallið hefur leitt til mikillar
spennu í samskiptum Rússlands og
Tyrklands, en Tyrkir hafa stutt við
bakið á uppreisnarmönnum á meðan
Rússar hafa veitt stjórnarhernum
aðstoð, einkum í formi loftárása.
Tyrkir hafa sakað stjórnarherinn
um að hafa með aðgerðum sínum
rofið vopnahlé frá árinu 2018 sem
bæði Rússar og Tyrkir stóðu að, en
sýrlensk stjórnvöld segja að upp-
reisnarmenn hafi ítrekað brotið
gegn ákvæðum þess undanfarna
mánuði.
Bandalagsríki Tyrkja í Atlants-
hafsbandalaginu hafa flest sent frá
sér yfirlýsingar um stuðning sinn við
Tyrki. Erdogan ræddi einnig við
Donald Trump Bandaríkjaforseta
símleiðis í gær og voru forsetarnir
sammála um að hvetja Rússa og
Sýrlendinga til þess að láta af að-
gerðum sínum í Idlib-héraði áður en
fleiri óbreyttir borgarar létu lífið eða
væru neyddir frá heimilum sínum.
Tyrkir svöruðu árásinni með því
að gera eldflaugaárás á sýrlenska
bækistöð og féllu 20 hermenn stjórn-
arhersins þar. Sagði Erdogan við
Trump að Tyrkir hefðu þar með
svarað með fullnægjandi hætti árás
Sýrlendinga.
Opnuðu landamærin
Tyrknesk stjórnvöld sögðu hins
vegar einnig í kjölfar árásarinnar á
fimmtudagskvöldið að þau ætluðu
ekki lengur að koma í veg fyrir að
flóttamenn frá Sýrlandi gætu
ferðast til ríkja Evrópusambands-
ins, en samkomulag hefur verið í
gildi frá 2016 á milli Tyrklands og
sambandsins um að Tyrkir hindri
flæði flóttamanna til ESB.
Tilkynntu stjórnvöld í Grikklandi
og Búlgaríu að þau myndu auka ör-
yggisgæslu við landamæri sín að
Tyrklandi í gær til að koma í veg fyr-
ir að ólöglegir flóttamenn streymdu
þar inn frá Tyrklandi. Josep Borrell,
utanríkismálastjóri Evrópusam-
bandsins, sagði í gær að hann hefði
sóst eftir heiti tyrkneskra stjórn-
valda um að þau myndu standa við
sinn enda samkomulagsins frá 2016.
Sérfræðingar í málefnum Tyrk-
lands sögðu yfirlýsingu stjórnvalda
um landamærin hugsaða til að beita
ríki ESB og Atlantshafsbandalags-
ins þrýstingi vegna ástandsins í Sýr-
landi. Atlantshafsbandalagsríkin
samþykktu hins vegar á neyðarfundi
sínum í gær einungis að viðhalda
þeim viðbúnaði sem þegar væri fyrir
hendi í Tyrklandi en veittu engin
heit um frekari aðstoð. sgs@mbl.is
Óvissuástand
í kjölfar árás-
ar á Tyrki
Pútín og Erdogan funda mögulega
vegna Sýrlands í næstu viku
AFP
Sýrlandsstríðið Þessi flóttamaður
hélt í gær í átt að landamærum
Tyrklands og Grikklands.
Allt um sjávarútveg