Morgunblaðið - 29.02.2020, Side 25
25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. FEBRÚAR 2020
Hríð Regnslár koma sér líka vel fyrir ferðamenn í snjókomu á Íslandi.
Eggert
Umræða um
upprunaábyrgðir
raforku hefur
hreyft við fólki,
meðal annars for-
stjóra Landsvirkj-
unar, eftir að
fréttaskýring-
arþátturinn Kveik-
ur setti málið á
dagskrá. Afstaða
Samtaka iðnaðar-
ins í því máli hefur
verið skýr um árabil og byggist á
því að standa vörð um jákvæða
ímynd Íslands sem lands endur-
nýjanlegrar orku og að efla
ímyndina enn frekar í þágu heild-
arinnar. Í grein forstjóra Lands-
virkjunar fyrir viku var nokkrum
spurningum beint til samtakanna
og hefur þeim verið svarað á vef-
svæði SI. Einnig var spurt hverra
hagsmuna Samtök iðnaðarins
gæti. Því er auðsvarað.
Samtök iðnaðarins
gæta heildarhagsmuna
og beita sér fyrir um-
bótum í íslensku sam-
félagi svo auka megi
verðmætasköpun í
landinu enda trúum við
því að þannig aukist
raunveruleg lífsgæði
landsmanna. Við höfum
gefið út fjölmargar
skýrslur á undan-
förnum árum, sem
unnar hafa verið í
góðri samvinnu stjórn-
ar SI, félagsmanna,
starfsmanna og sérfræðinga þar
sem ekki er eingöngu einblínt á
vandamál heldur eru lagðar til
fjölmargar leiðir til aukinnar sam-
keppnishæfni landsins. Þannig
stuðlum við að uppbyggilegri um-
ræðu í íslensku samfélagi.
Í vikunni voru boðaðir nýir
tímar í starfs- og tækninámi með
samstarfi menntamálaráðuneyt-
isins, Samtaka iðnaðarins og Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga. Það
er von okkar að iðnnemum fjölgi
þannig að færnimisræmi á vinnu-
markaði minnki. Það eru heildar-
hagsmunir.
Samtökin standa að ári nýsköp-
unar á þessu ári enda eru iðnaður
og nýsköpun samofin. Það er trú
okkar að nýsköpun verði drif-
kraftur vaxtar, skapi eftirsótt
störf og nýjar lausnir á sam-
félagslega mikilvægum viðfangs-
efnum. Þar liggja hagsmunir okk-
ar allra.
Innviðir landsins hafa verið
vanræktir síðasta áratuginn en nú
horfir það til betri vegar. Ríkis-
stjórnin kynnti í gær átak til að
bæta öryggi innviða landsins og
fögnum við þeim umbótum. Þó er
ljóst að fjárfesta þarf meira í inn-
viðum landsins svo þeir þjóni sínu
hlutverki og til að örva hagvöxt.
Þar liggja hagsmunir heildarinnar
og við beitum okkur í þágu þeirra.
Öll þurfum við þak yfir höfuðið.
Samtök iðnaðarins beita sér fyrir
umbótum í þágu byggingariðn-
aðarins þannig að uppbygging
verði hagkvæmari og skilvirkari.
Þannig verða byggðar ódýrari
íbúðir. Það eru hagsmunir heildar-
innar.
Iðnfyrirtæki nota nálægt 90%
raforkunnar á Íslandi og því látum
við okkur raforkumál varða. Sam-
tökin leggja áherslu á samkeppn-
ishæft raforkuverð en við skiptum
okkur að öðru leyti ekki af verð-
inu. Nýting orkunnar hefur bætt
lífskjör landsmanna og mun svo
áfram verða. Ráðherra mála-
flokksins benti nýverið á að raf-
orkumarkaður á Íslandi væri
óþroskaður. Undir það má taka og
höfum við lagt til ýmsar leiðir til
að þroska markaðinn. Hagsmunir
heildarinnar felast í slíkum um-
bótum sem og aukinni nýtingu.
Umhverfis- og loftslagsmál
verða sífellt mikilvægari enda eru
almenningur og fyrirtæki meðvit-
aðri um nauðsyn þess að ganga
vel um náttúruna. Landsvirkjun
og Samtök iðnaðarins ásamt fleiri
fyrirtækjum og samtökum stofn-
uðu til samstarfs við stjórnvöld
um loftslagsmálin með stofnun
Grænvangs enda hafa fyrirtæki
landsins metnað og vilja til að ná
settum markmiðum og vinna með
stjórnvöldum. Þarna fara hags-
munir iðnaðar og orkufyrirtækja
sannarlega saman og er ég sann-
færð um að það samstarf muni
skila árangri í þágu heildarinnar.
Lítil skref sem við stígum á
hverjum degi leiða smám saman
til stórra stökka framfara og auk-
inna lífsgæða. Þannig verður Ís-
land áfram í fremstu röð.
Eftir Guðrúnu
Hafsteinsdóttur » Samtök iðnaðarins
gæta heildarhags-
muna og beita sér fyrir
umbótum í íslensku
samfélagi svo auka
megi verðmætasköpun
í landinu.
Höfundur er formaður
Samtaka iðnaðarins.
Samtök iðnaðarins gæta heildarhagsmuna
Guðrún
Hafsteinsdóttir
Einföldum kerfið til
að einfalda lífið fyrir
íbúa Reykjavíkur og
þá sem starfa í kerf-
inu. Það er markmið
meirihluta borgar-
stjórnar Reykjavíkur.
Á síðasta ári réðumst
við í töluverðar skipu-
lagsbreytingar til að
ná þessum mark-
miðum og nú höldum
við áfram í að ein-
falda, skýra og skerpa.
Eitt skrefið í þessa átt, sem
samþykkt var í borgarráði á
fimmtudag, var að sameina á ein-
um stað eftirlitsaðila Reykjavík-
urborgar; Innri endurskoðun
Reykjavíkurborgar, umboðsmann
borgarbúa og
persónuverndar-
fulltrúa. Markmiðið
með þessari samein-
ingu er að einfalda
og um leið styrkja
starfsemi og skipu-
lag þeirra aðila sem
sinna eftirliti með
starfsemi og stjórn-
sýslu Reykjavíkur-
borgar. Jafnframt
breikkar faglegur
grunnur starfsemi
eftirlitsaðilanna með
samvinnu fleiri sér-
fræðinga og á fleiri sviðum.
Með sameiningu eftirlitsaðila
getur farið fram öflugara starf
en hjá smáum og dreifðum ein-
ingum. Sameiningin býður upp á
betri yfirsýn yfir stöðu mála sem
snúa að málefnum Reykjavíkur-
borgar og auknum möguleikum
fyrir fyrirbyggjandi eftirlit sem
getur leiðbeint stjórnendum og
starfsmönnum.
Frá og með 1. júní mun starf
þessara eftirlitsaðila heyra undir
Innri endurskoðun, enda er slíkt í
góðu samræmi við þann staðal
sem starfsreglur innri endurskoð-
unar byggjast á. Verkefnum eft-
irlitsaðila á að sinna með óháðum
hætti, og heyra beint undir æðsta
stjórnunarstig. Innri endurskoð-
andi heyrir nú þegar beint undir
borgarráð og nýtur faglegs sjálf-
stæðis gagnvart öllum stjórn-
málamönnum og stjórnsýslu borg-
arinnar.
Í þessum breytingum er mik-
ilvægt að enn verður tekið á móti
ábendingum og athugasemdum
frá borgarbúum. Eftir að breyt-
ingarnar eru gengnar í gegn
þurfa borgarbúar hins vegar ekki
að velkjast í vafa um hvaða eftir-
litsaðili með Reykjavíkurborg
henti best til að taka á móti slík-
um ábendingum.
Það er mikilvægt að starfsemi
umboðsmanns borgarbúa verði
áfram sýnileg í sameinaðri starf-
semi og aðgengileg borgarbúum.
Því verður óskað eftir samstarfi
við umboðsmann Alþingis við
mótun á verklagi til að tryggja
stuðning og aðstoð við ein-
staklinga sem leita til innri end-
urskoðanda vegna athugasemda.
Með sameiningu eftirlitsaðila
erum við að greiða úr flækjustigi,
sem getur hægt á þjónustu, og
sköpum tækifæri til hagræð-
ingar. Þá hagræðingu er hægt að
nýta til að efla enn frekar starf-
semi eftirlitsaðila Reykjavíkur-
borgar. Með núverandi fyrir-
komulagi er hætta á að margir
aðilar séu að sinna sama verkefni
eða að einhverju sé ekki sinnt
vegna óvissu um hver eigi að
sinna því.
Við viljum einfaldara og skil-
virkara eftirlitskerfi í þágu borg-
arbúa, með því að styrkja innra
eftirlit Reykjavíkurborgar.
Eftir Þórdísi Lóu
Þórhallsdóttur » Við viljum einfaldara
og skilvirkara eftir-
litskerfi í þágu borgar-
búa, með því að styrkja
innra eftirlit borgar-
innar.
Þórdís Lóa
Þórhallsdóttir
Höfundur er formaður borgarráðs
og oddviti Viðreisnar.
Öflugra eftirlit með Reykjavíkurborg
Við upphaf kirkju-
stríðs í Innan-
sveitarkroniku Hall-
dórs Laxness kemur
vígreifur Ólafur
bóndi á Hrísbrú með
orf sitt reitt um öxl
til prestsins á Mos-
felli eldsnemma
morguns. Knýr fast
dyra og vekur heim-
ilisfólkið: „Hér skal
verða barist. Blóð skal mæta
blóði,“ sagði Ólafur bóndi allæst-
ur. Eftir nokkra bolla af kaffi,
„nærbuxnaskólpi“ og samræður
var loft úr mönnum lekið og
gengu þeir til daglegra verka
sinna. Það er víst að sameiginleg
kaffidrykkja og samtal sjávar-
útvegs og þjóðar eina morg-
unstund mun ekki leysa öll mál,
en einhvers staðar verður að
byrja. Því samtalið – sambandið –
verður að bæta.
Til þess að grafast fyrir um
hvað gera má betur í sjávarútvegi
og auka skilning á því sem þar er
að gerast hafa Samtök fyrirtækja
í sjávarútvegi ákveðið að halda
fjóra fundi um málefni sjávar-
útvegs og ræða þau með upp-
byggilegum hætti. Efni fundanna
er; gagnsæi, umhverfismál, sam-
félagslegur ábati og nýsköpun.
Fyrsti fundur var síðastliðinn mið-
vikudagsmorgun í
Messanum á Granda.
Húsfyllir var og rúm-
lega það. Frummæl-
endur voru fjórir;
Þórður Snær Júl-
íusson, ritstjóri
Kjarnans, Birna
Einarsdóttir, banka-
stjóri Íslandsbanka,
Valmundur Val-
mundsson, formaður
Sjómannasambands
Íslands, og Gunnþór
Ingvason, fram-
kvæmdastjóri Síld-
arvinnslunnar í Neskaupstað.
Umræðuefnið var gagnsæi.
Án þess að gera sérstaka grein
fyrir áherslum hvers og eins má
halda því fram að margt sé hægt
að gera betur til þess að auka
gagnsæi í sjávarútvegi og komu
margar gagnlegar ábendingar
fram á fundinum. Sumum þykir
gagnsæið nú þegar vera ágætt og
í samræmi við lög og reglur en
aðrir halda því fram að vegna sér-
stöðu sjávarútvegs eigi að gilda
um hann sérstakar reglur sem
kveða á um aukið gagnsæi. Þá var
augljóst að traust milli útgerða og
sjómanna verður að aukast.
Nú að þessum fundi loknum
munu samtökin fara vandlega í
gegnum það sem fram kom og
nýta sér umræður og tillögur til
þess að auka gagnsæi í sjávar-
útvegi og reyna að auka traust
milli manna. Það gerist ekki í einu
vetfangi en ég vil leyfa mér að
halda því fram að sú vegferð sé
hafin. Sjávarútvegur er grundvall-
arstoð efnahagslegrar hagsældar á
Íslandi og mikilvæg undirstaða í
menningu okkar. Skiljanlegt er að
margir hafi skoðanir á svo mikil-
vægri atvinnugrein og verðmætri
náttúruauðlind. Þótt ekki sé víst
að nokkru sinni takist að sætta öll
sjónarmið er mikilvægt að koma í
veg fyrir að tortryggni og illindi
verði ráðandi í sambandinu milli
sjávarútvegs og þjóðarinnar. Ég
tel að opið og hreinskiptið samtal
um sjávarútveginn sé leiðin fram á
við. Gjarnan yfir kaffibolla.
Næst ætlum við að tala saman
um sjávarútveg og umhverfismál.
Fundurinn verður haldinn á mið-
vikudag 4. mars klukkan 9.00 á
sama stað; Messanum á Granda.
Hér skal verða samtal
Eftir Heiðrúnu
Lind Marteins-
dóttur
» Þótt ekki sé víst
að nokkru sinni
takist að sætta öll
sjónarmið er mikilvægt
að koma í veg fyrir að
tortryggni og illindi
verði ráðandi í sam-
bandinu milli sjávar-
útvegs og þjóðarinnar.
Höfundur er framkvæmdastjóri Sam-
taka fyrirtækja í sjávarútvegi.
Heiðrún Lind
Marteinsdóttir