Morgunblaðið - 29.02.2020, Side 31
MESSUR 31á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. FEBRÚAR 2020
AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Prestur er Hildur Eir Bolladóttir. Klass-
íski kór Akureyrarkirkju syngur. Organisti er
Eyþór Ingi Jónsson. Sunnudagaskóli í
Safnaðarheimilinu kl. 11. Umsjón Sonja Kro
og Sigríður Hulda Arnardóttir.
Æðruleysismessa í Akureyrarkirkju kl. 20.
Prestur er Hildur Eir Bolladóttir. Sigríður
Hulda Arnardóttir og Eyþór Ingi Jónsson sjá
um tónlistina og leiða söng. Molasopi í
Safnaðarheimilinu að messu lokinni.
AKURINN kristið samfélag | Samkoma
kl. 14. Biblíufræðsla, söngur og bæn.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Söngfuglar, kór eldri borgara, syngur nokkur
lög. Stjórnandi þeirra er Kristín Jóhann-
esdóttir sem er einnig organisti dagsins.
Kór Árbæjarkirkju syngur einnig og sr. Petr-
ína Mjöll Jóhannesdóttir prédikar og þjónar
fyrir altari. Sunnudagaskólinn er á sama
tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Aldísar
Elvu Sveinsdóttur og Birkis Bjarnasonar.
Batamessa kl. 17 Hún er tileinkuð spora-
fólki en allir eru velkomnir. Söngur, bæna-
gjörð. Kaffihlaðborð eftir messu.
ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11.
Ása Laufey Sæmundsdóttir héraðsprestur
þjónar fyrir altari og prédikar. Jens Elí Gunn-
arsson og Inga Steinunn Henningsdóttir
annast samverustund sunnudagaskólans.
Félagar úr Kór Áskirkju leiða sönginn. Org-
elleikari er Bjartur Logi Guðnason. Nýr
djákni Ássafnaðar, Jóhanna María Eyjólfs-
dóttir, verður vígð djáknavígslu í Dómkirkj-
unni á sama tíma.
Ástjarnarkirkja | Æskulýðsdagurinn 1.
mars kl. 17. Ísak Nói Ómarsson spilar for-
spil, barnakór Ástjarnarkirkju syngur undir
stjórn Helgu Loftsdóttur, Hallelúðar – hljóm-
sveit æskulýðsstarfs Ástjarnarkirkju tekur
lagið og börn úr fermingarstarfi Ástjarnar-
kirkju lesa ritningarvers og bænir. Eftir
messu býður Ástjarnarkirkja upp á veitingar.
Organisti er Kári Allansson. Prestur er Nói,
öðru nafni Arnór Bjarki Blomsterberg.
BESSASTAÐAKIRKJA | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11, Lærisveinar hans og börn
úr Tónlistarskóla Garðabæjar flytja tónlist.
Sigrún Ósk leiðir stundina ásamt sr. Hans
Guðberg. Lærisveinar hans spila undir
stjórn Ástvaldar organista. Æskulýðsmessa
kl. 17. Hljómsveitin Hipsumhaps, Lærisvein-
ar hans. Ræðumaður Kjartan Atli Kjart-
ansson, fjölmiðlamaður og þjálfari. Ferm-
ingarbörn taka virkan þátt. Margrét djákni
og sr. Hans Guðberg leiða stundina. Safnað
verður fyrir munaðarlausum börnum í Úg-
anda í báðum stundunum.
BRAUTARHOLTSKIRKJA Kjalarnesi |
Æskulýðsdagurinn haldinn hátíðlegur kl. 11.
Létt unglinga- og sunnudagaskólalög. Ferm-
ingarbörn aðstoða við helgihaldið. Ruth
sunnudagaskólaleiðtogi hefur umsjón með
stundinni ásamt sóknarpresti, kór og org-
anista.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Á æskulýðsdegi
þjóðkirkjunnar verður fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11. Sönghópur 6-9 ára barna kemur
fram undir stjórn Bjargar Pétursdóttur við
undirleik Arnar Magnússonar organista.
Fermingarbörn taka þátt ásamt Steinunni
Þorbergsdóttur djákna, Steinunni Leifsdóttur
og sr. Magnúsi Birni Björnssyni.
Alþjóðlegi söfnuðurinn. Guðsþjónusta kl.
14. Prestur Toshiki Toma. Barnastarf í hönd-
um Steinunnar Þorbergsdóttur djákna á
sama tíma.
BÚSTAÐAKIRKJA | Messa kl. 11. Daníel
Ágúst Gautason djákni prédikar og sr. Eva
Björk Valdimarsdóttir þjónar fyrir altari. Tón-
listarnemar frá FÍH taka þátt í messunni í
fjölbreyttri tónlist undir stjórn Jónasar Þóris.
Fermingarbörn flytja ritningarlestra og bæn-
ir. Þetta er útvarpsmessa og allir velkomnir.
DIGRANESKIRKJA | Vegna æskulýðsdags
fellur niður messa kl. 11. Sameiginlega
æskulýðsmessa í Hjallakirkju kl. 17.
DÓMKIRKJA Krists konungs, Landa-
koti | Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku,
kl. 10.30 á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl.
18 á ensku. Virka daga kl. 18, og má. mi.
og fö. kl. 8, lau. kl. 18 er vigilmessa.
DÓMKIRKJAN | Presta- og djáknavígsla kl.
11. Biskup Íslands, Agnes M. Sigurð-
ardóttir, vígir og séra Elínborg Sturludóttir
þjónar. Dómkórinn og organisti er Kári Þor-
mar.
FELLA- og Hólakirkja | Æskulýðsguðs-
þjónusta í tilefni af æskulýðsdegi þjóðkirkj-
unnar kl. 20. Sr. Pétur Ragnhildarson leiðir
stundina auk leiðtoga og ungmenna úr
æskulýðstarfinu. Dúettinn Haf er með tón-
listaratriði. Veitingar eftir stundina. Bjóðum
sérstaklega fermingabörnum og fjölskyldum
þeirra. Ekki verður guðsþjónusta kl. 11
þennan sunnudag.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta
kl. 14. Hjörtur Magni Jóhannsson safn-
aðarprestur leiðir stundina. Hljómsveitin
Mantra og Sönghópurinn við Tjörnina leiða
tónlistina ásamt Gunnari Gunnarssyni.
Fermingarbörn og fjölskyldur þeirra eru hvött
til að mæta.
GARÐAKIRKJA | Messa kl. 14. Sr. Hans
Guðberg Alfreðsson prédikar og þjónar fyrir
altari. Félagar í kór Vídalínskirkju syngja og
organisti er Jóhann Baldvinsson.
GLERÁRKIRKJA | Æskulýðsdagur Þjóð-
kirkjunnar. Kvöldstund í Glerárkirkju kl. 20.
Umsjón með stundinni: sr. Stefanía G.
Steinsdóttir og Sunna Kristrún djákni. Um
tónlistina sér Valmar Väljaots tónlistar-
maður.
GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl. 11.
Séra Sighvatur Karlsson héraðsprestur pré-
dikar og þjónar. Organisti er Hákon Leifsson
og Kór Grafarvogskirkju leiðir söng. Sunnu-
dagaskóli kl. 11 á neðri hæð kirkjunnar.
Umsjón hefur Hólmfríður Frostadóttir.
GRAFARVOGUR – kirkjuselið í Spöng |
Selmessa kl. 13. Sr. Sigurður Grétar Helga-
son prédikar og þjónar. Organisti er Hilmar
Örn Agnarsson og Vox Populi leiðir söng.
GRENSÁSKIRKJA | Söngstund kl. 11.
Sungnir verða uppáhaldssálmar safnaðarins
undir stjórn sr. Maríu, Alberts og fleiri kór-
félaga. Stuttar hugleiðingar á milli sálma-
syrpna. Heitt á könnunni á eftir. Þriðjudagur
3. mars: Kyrrðarstund kl. 12. Fjöl-
skyldukirkjan kl. 17.15-18.30, leikir, helgi-
stund og létt máltíð. Fimmtudagur 5. mars:
Núvitund á kristnum grunni í kapellunni kl.
18.15-18.45.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Æskulýðs-
dagurinn. Fjölskyldumessa kl. 11. Már
Gunnarsson syngur með unglingakór Hafn-
arfjarðarkirkju og hljómsveit. Krakkar út TTT
starfinu taka þátt í stundinni og einnig
sunnudagaskólinn. Vöfflusala fermingar-
barna í safnaðarheimilinu eftir stundina til
styrktar munaðarlausum börnum í Úganda.
HALLGRÍMSKIRKJA | Fyrirlestur kl. 10 í
Suðursal í tilefni af Æskulýðsdegi þjóðkirkj-
unnar. Karítas Hrundar Pálsdóttir les úr bók
sinni Árstíðir. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.
Umsjón: Kristný Rós Gústafsdóttir, verk-
efnastjóri og djákni, sr. Irma Sjöfn Ósk-
arsdóttir, sr. Sigurður Árni Þórðarson, Kar-
ítas Hrundar Pálsdóttir og Rósa Árnadóttir.
Fermingarbörn og messuþjónar aðstoða. Fé-
lagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja.
Organisti er Hörður Áskelsson.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa í Eurovision-stíl
kl. 11. Gréta Salóme Stefánsdóttir leikur og
syngur. Eurovision-lög verða sungin og leikin
í messunni. Fermingarbörn lesa ritning-
arlestra og bænir. Jón Hafsteinn Guðmunds-
son leikur á trompet. Organisti er Guðný
Einarsdóttir. Prestur er Helga Soffía Kon-
ráðsdóttir.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Fjölskyldu-
messa kl. 17, og er sunnudagaskóli kirkn-
anna tveggja, Digranes- og Hjallakirkju, hluti
af þeirri samveru. Eftir stundina er kvöld-
matur á vægu verði í safnaðarheimilinu.
HREPPHÓLAKIRKJA | Kirkjuskóli laug-
ardaginn 29. feb. kl. 11. Biblíusaga, söngur
og gleði.
HRUNAKIRKJA | Hversdagsmessa 5. mars
kl. 20. Söngur, ritningarorð, hugvekja og
bæn.
HVERAGERÐISKIRKJA | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11 í umsjón sr. Ninnu Sifjar og
Signýjar Óskar. Kór kirkjunnar syngur. Ávext-
ir, djús og kaffi í safnaðarheimili að lokinni
guðsþjónustu.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Sam-
koma kl. 11. Service. Translation into Engl-
ish. Samkoma á ensku kl. 14. English
speaking service. Samkoma á spænsku kl.
16. Reuniónes en español. Samkoma Fíló+
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn sam-
koma kl. 13. Börnin byrja inni á sal með for-
eldrum/forsjáraðilum, en á meðan sam-
koman varir verður sérstök fræðsla fyrir
þau. Ólafur H. Knútsson prédikar. Kaffi að
samverustund lokinni.
KÁLFATJARNARKIRKJA | Messa á Æsku-
lýðsdag þjóðkirkjunnar, 1. mars, kl. 14.
Ungmennakórinn Vox Felix syngur undir
stjórn Arnórs Vilbergssonar og ferming-
arbörn lesa ritningarvers og bænir. Sr. Arnór
Bjarki Blomsterberg, prestur Kálfatjarn-
arkirkju, leiðir helgihaldið. Eftir messu býður
sóknarnefnd upp á messukaffi og með því.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Messa kl. 11.
Regnbogaraddir Keflavíkurkirkju syngja Arn-
órs organista og Freydísar Kneifar. Súpa og
brauð í boði. Kl. 16 Kaffihúsamessa í
Kirkjulundi. Vox Felix ásamt fermingar-
börnum sem einnig lesa texta og flytja bæn-
ir. Boðið verður upp á kaffi, kakó og kleinur
á 500 kr. Ágóði af framlögum af súpu og
kaffihúsi rennur í verkefni Hjálparstarfs
kirkjunnar til styrktar byggingu steinhúsa fyr-
ir munaðarlaus börn í Úganda. Sr. Fritz og
sr. Erla leiða messurnar.
KOTSTRANDARKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 14. Sr. Ninna Sif Svavarsdóttir þjónar fyr-
ir altari. Kirkjukór Hveragerðis- og
Kotstrandarsókna syngur og leiðir safn-
aðarsöng.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt djákna Kópavogskirkju. Æskulýðs-
leiðtogar annast tónlistarflutning. Til guðs-
þjónustunnar eru boðin sérstaklega ferming-
arbörn vorsins 2021 ásamt foreldrum og
forráðafólki þeirra og á eftir guðsþjónustuna
verður stuttur fundur um starfið fram und-
an.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Prest-
ur er Aldís Rut Gísladóttir, organisti er
Magnús Ragnarsson. Kór Langholtskirkju
syngur. Sara Gríms tekur vel á móti börn-
unum í sunnudagaskólann. Léttur hádegis-
verður að lokinni athöfn.
LAUGARNESKIRKJA | Æskulýðsmessa kl.
11. Ungt tónlistarfólk annast tónlistarflutn-
ing. Sr. Hjalti Jón Sverrisson þjónar fyrir alt-
ari og prédikar. Kaffi og samvera á eftir.
Betri stofan, Hátúni 12. Helgistund kl. 13
með sr. Hjalta Jóni og Elísabetu Þórðar-
dóttur organista.
3.3. Kyrrðarbæn kl. 20. Kirkjan opnuð kl.
19.30. Kristin íhugun.
4.3. Fræðslukvöld kl. 20. Dr. Jón Ásgeir
Sigurvinsson fjallar um spekirit Gamla
testamentisins.
5.3. Kyrrðarstund í Áskirkju kl. 12. Hádegis-
verður og opið hús á eftir.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Barnakór
Lindakirkju kemur í heimsókn í sunnudaga-
skólann kl. 11 undir stjórn Áslaugar Helgu
Hálfdánardóttur og Hjördísar Önnu Matthías-
dóttur. Guðsþjónusta kl. 20, ung-
lingagospelkór Lindakirkju syngur undir
stjórn Áslaugar Helgu Hálfdánardóttur. Ósk-
ar Einarsson leikur undir á píanó. Sr. Dís
Gylfadóttir þjónar.
NESKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl.
11. Í messunni verður opnuð sýning Mes-
síönu Tómasdóttur: Heimurinn er ljóð sem
mannkynið yrkir. Sr. Ása Björk Ólafsdóttir,
prestur í Dublin, predikar. Sr. Skúli S. Ólafs-
son þjónar fyrir altari. Kór Neskirkju syngur.
Organisti Steingrímur Þórhallsson. Katrín H.
Ágústsdóttir, Gunnar T. Gunnarsson og Ari
Agnarsson sjá um fjörið í sunnudagaskól-
anum með leik og söng. Hressing á kirkju-
torgi. Messíana Kristinsdóttir syngur við
undirleik Guðrúnar Birgisdóttur.
SALT kristið samfélag | Sameiginlegar
samkomur Salts og SÍK kl. 17 alla sunnu-
daga í Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-
60. Barnastarf. Túlkað á ensku.
Sandgerðiskirkja | Æskulýðsmessa kl.
14. Skólakór Sandgerðis syngur, kirkjukór-
inn syngur, ræðumaður er Júlíus Viggó
Ólafsson, börn og unglingar taka þátt.
Vöfflukaffi eftir messu til styrktar stein-
húsum í Úganda á vegum Hjálparstarfs kirkj-
unnar. 500 kr. vafflan og kaffi/djús.
SAUÐÁRKRÓKSKIRKJA | Ungdómsmessa
kl. 20. Á æskulýðsdaginn ætla krakkar úr
Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra að sjá
um tónlist og talað orð.
SELJAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11,
Barnakór Seljakirkju syngur Disney-lög, allir
mega mæta í búningi. Kvöldguðsþjónusta
kl. 20, sr. Bryndís Malla Elídóttir þjónar.
Kristín Birna, Steinar Matthías og Helgi
Hannesar flytja vinsæl lög úr Disney-
kvikmyndum. Kvöldhressing í lokin.
SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorg-
unn kl. 10. Guð, Mammon og Kalvín. Vil-
hjálmur Bjarnason lektor talar. Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Bjarni Þór
Bjarnason þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson
er organisti. Janusz Nosek syngur einsöng
við undirleik Guðbjargar Sigurjónsdóttur.
Sveinn Bjarki og leiðtogar sjá um sunnu-
dagaskólann. Félagar úr Kammerkór Sel-
tjarnarneskirkju leiða almennan safn-
aðarsöng. Kaffiveitingar og samfélag í
safnaðarheimilinu eftir athöfn.
SEYÐISFJARÐARKIRKJA | Hjartamessa
kl. 11. Febrúar er árveknimánuður hjarta- og
æðasjúkdóma. Elfa Rúnarsdóttir hjúkrunar-
fræðingur segir frá einkennum, áhættuþátt-
um og góðum ráðum sem stuðla að bættri
heilsu.
Kór Seyðisfjarðarkirkju leiðir almennan safn-
aðarsöng. Organisti er Rusa Petriashvili. Sr.
Sigríður Rún Tryggvadóttir þjónar ásamt
fermingarbörnum. Eftir messu er bollukaffi í
safnaðarheimili. Fólk er hvatt til að mæta í
rauðu.
SÓLHEIMAKIRKJA | Messa með altaris-
göngu kl. 14. Prestar eru Birgir Thomsen og
Kristján Valur Ingólfsson. Organisti er Ester
Ólafsdóttir. Kirkjuvörður er Gunnar Óðinn
Einarsson. Kertavörður er Arna María Andr-
ésdóttir. Lokabæn les María K. Jacobsen.
ÚTSKÁLAKIRKJA | Æskulýðsmessa kl.
11. Barnagospelkór Útskálakirkju syngur,
kirkjukórinn syngur. Organisti er Keith Reed.
Ræðumaður Júlíus Viggó Ólafsson. Börn og
ungmenni taka þátt. Tekið við frjálsum fram-
lögum í söfnun Hjálparstarfs kirkjunnar fyrir
steinhúsum í Úganda.
VALLANESKIRKJA | Messa kl. 20. Kór
Vallaness og Þingmúla syngur og leiðir al-
mennan söng. Organisti Torvald Gjerde. Sr.
Ólöf Margrét Snorradóttir þjónar.
VÍDALÍNSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11 þar sem barna- og unglingakórarnir
undir stjórn Jóhönnu Guðrúnar Jónsdóttur
og Davíðs Sigurgeirssonar syngja og Magn-
ús Stephensen flytur forspil. Brúðuleikhús
og Biblíusaga. Að lokinni guðsþjónustu verð-
ur messukaffi í safnaðarheimilinu og vöfflu-
sala til styrktar hjálparstarfi kirkjunnar í
söfnun fyrir húsum handa munaðarlausum
börnum í Úganda.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Fjöl-
skylduhátíð kl. 11 á æskulýðsdaginn.
Barnakórinn syngur undir stjórn Helgu Þór-
dísar organista og Birgitta Ólafsdóttir syngur
einsöng. Töframaðurinn Einar Einstaki kem-
ur í heimsókn. Margrét Lilja og Pétur leiða
stundina. Kaffi, djús og snúðar í safn-
aðarsal á eftir.
ORÐ DAGSINS: Kan-
verska konan
(Matt. 15)
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Skútustaðakirkja.
BIBLE TALKS
IN ENGLISH
WILL BE HELD IN
MENNINGARHÚS Grófinni
Tryggvagötu 15, 101 REYKJAVIK
Sat. March 7: 4–5 p.m.
Tue. March 10: 6–7 p.m.
Thurs. March 12: 6–7 p.m.
Sat. March 14: 4–5 p.m.
We present no new doctrine,
but uphold all that Jesus lived
and taught.
Everybody is welcome!
Vibeke Schaffalitzky
& Karen Lund
með hálsklútinn (og verður ekki
saknað). Biskuparnir láta sér fátt
um finnast. Í landinu sem krefur
skattgreiðendur um hæstu skatta
í heimi telst þetta eins og hvert
annað hundsbit. Það kemst ekki á
vinsældakvarðann.
Spurningar til ráðherra sem fer
með innflytjendamál að gefnu til-
efni:
1. Hvenær telur ráðherrann að
efni séu til að grípa til landa-
mæravörslu, þ.m.t. að krefja flug-
félög um að sinna henni á brott-
fararstað líkt og ýmsar þjóðir
gera?
2. Hvað er áætlað heildarkostn-
aður íslenska ríkisins af svköll-
uðum hælisleitendum á ári verði
árin 2020-2025 miðað við samsvar-
andi þróun og verið hefur í fjölda
þeirra?
3. Hefur ráðherrann haft sam-
ráð við heilbrigðisráðherra um
hver sé geta bráðaþjónustunnar
til að taka við auknum fjölda út-
lendinga þessi sömu ár?
4. Reikna verður með að öllum
útlendingum verði tryggð lág-
marks ellilaun þótt þeir hafi ekki
greitt í lífeyrissjóð nema skamm-
an eða engan tíma. Hver er áætl-
aður framtíðarkostnaður næstu 30
ára vegna þessa?
5. Eru nú þegar farin að mynd-
ast innflytjendahverfi í Reykjavík
þar sem félagslegum vandamálum
fer fjölgandi?
6. Eru einhver dagheimili, skól-
ar eða félagsmiðstöðvar í Reykja-
vík þar sem íslenska er ekki notuð
sem talmál?
Þessar eru einungis nokkrar af
spurningum sem óhjákvæmilega
vakna vegna þess að málaflokk-
urinn virðist vera í fóstri hjá þeim
sem síst skyldi. M.a.s. flokksnefna
iðjuleysingja á þingi virðist hafa
meiri völd í málinu en ábyrg yf-
irvöld. – Ráðherra, reddast þetta
samt?
»Hvenær telur ráð-
herrann rétt að
grípa til landamæra-
vörslu og að krefjast
þess m.a. að flugfélög
sinni henni?
Höfundur er hæstaréttarlögmaður.
Því miður virðist stjórn fyrir-
tækisins hafa misst sjónar á þjón-
ustuhlutverkinu og keyra í þess stað
harða hagnaðarstefnu. Þar þarf
pólitíkin að grípa inn í ef ekki á illa
að fara.
Póstþjónustan er hluti af inn-
viðum allra þjóða. Hér á landi hafa
þessir innviðir veikst og þar með
talin þjónusta við landsmenn hvað
varðar póstþjónustu. Það er horft til
gróðamöguleika á þéttbýlum svæð-
um í ákveðnum þjónustuþáttum en
annað látið mæta afgangi, þar með
talin þjónustan við hinar dreifðu
byggðir. Þung er ábyrgð stjórnar
Íslandspósts sem mótar þessa
stefnu.
Viljum við hafa þetta svona?
» Því miður virðist
stjórn fyrirtækisins
hafa misst sjónar á
þjónustuhlutverkinu og
keyra í þess stað harða
hagnaðarstefnu.
Höfundur er formaður
Póstmannafélags Íslands.
jonc@simnet.is