Morgunblaðið - 29.02.2020, Qupperneq 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. FEBRÚAR 2020
✝ Guðrún Jóns-dóttir fæddist
á Núpi undir Vest-
ur-Eyjafjöllum 5.
apríl 1930. Hún
andaðist á dval-
arheimilinu Lundi
16. febrúar 2020.
Foreldrar henn-
ar voru Jón Einars-
son, f. 30. apríl
1902, d. 22. maí
1979, og Auðbjörg
Jónína Sigurðardóttir, f. 25.
apríl 1910, d. 15. mars 1985.
Guðrún ólst upp á Núpi, elst
af 15 systkinum. Eru þau í ald-
ursröð Kristín látin, Jónas lát-
inn, sveinbarn látið, Sigurður
látinn, Jóna Vigdís látin, Einar
Ingi, Páll Ingi látinn, Sigríður
Júlía, Guðlaug, Jóhanna, Ben-
óný látinn, Rúna Björg, Guðjón
látinn, Oddur Helgi.
Þann 23. desember 1950 gift-
ist Guðrún Sigurði Þorsteins-
syni frá Götu í Ásahreppi. For-
eldrar hans voru Þorsteinn
þeirra: Haraldur Geir, Brynjar
Freyr og Guðrún Margrét. Auð-
björg á 6 barnabörn.
5) Hafdís Dóra, f. 4. febrúar
1963, synir hennar: Steinn Daði
og Stefán Orri.
6) Sigurður Rúnar, f. 17. októ-
ber 1968, kona hans er Margrét
Ýrr, f. 26. febrúar 1973, börn
þeirra Karen Eva, Rakel Ýr og
Björgvin Geir. Rúnar á 1 barna-
barn
7) Eiður Ingi, f. 13. janúar
1970, kona hans er Linda Rut
Larsen, f. 1. desember 1971,
börn þeirra eru Sævar Ingi, Eva
Rún og Sigurður Ernir.
8) Sigríður Magnea, f. 20. jan-
úar 1973.
Bjó hún í foreldrahúsum þar
til hún fór að vinna, fyrst við
Hótelið á Hellu og svo hjá Slát-
urfélaginu. Þar kynntist hún
Sigga og hófu þau búskap, fyrst
á Hellu á efri hæðinni hjá Þóru
systur Sigga, eða til 1952, er þau
hjónin hófu búskap í Vetleifs-
holti.
Útför Guðrúnar fer fram í
Odda á Rangárvöllum í dag, 29.
febrúar 2020, og hefst athöfnin
klukkan 13.
Tyrfingsson, f. 28.
apríl 1891, d. 22.
september 1973, og
Guðrún Pálsdóttir,
f. 28. júní 1891, d. 7.
maí 1988.
Börn Sigurðar
og Guðrúnar eru:
1) Jón Björgvin,
f. 22. júlí 1950, d.
14. apríl 2012, börn
hans eru: Snjólaug
Kristín, Eðvarð,
Kristján Guðni, d. 2014, og Jóna
Björk. Björgvin á 4 barnabörn.
2) Sigrún Steinunn, f. 4. ágúst
1955, gift Garðari Sigurðssyni,
f. 24. september 1958, börn
þeirra: Sólrún Helga, Karl
Steinar, Sigurður og Agnar
Bjarki. Sigrún á 4 barnabörn.
3) Hafsteinn Birgir, f. 12.
október 1957, d. 26. desember
2011, sonur hans er Erlingur
Örn. Hafsteinn á eitt barnabarn.
4) Auðbjörg Jónína, f. 28.
mars 1960, gift Valsteini Stef-
ánssyni, f. 15. ágúst 1957, börn
Í dag kveðjum við einstaklega
góða konu, hana Rúnu tengda-
mömmu mína. Þakklæti er mér
efst í huga fyrir að hafa fengið
að koma í hennar fjölskyldu fyr-
ir um 30 árum. Í Vetleifsholt var
alltaf gott að koma, gestrisni
var mikil og gaman var að
spjalla við þau hjónin Rúnu og
Sigga. Rúna hafði þann mikil-
væga eiginleika að vera góður
hlustandi og sýndi okkur og
ekki síður barnabörnunum mik-
inn áhuga. Ég sá þessa flottu
konu aldrei skipta skapi, hún
var alltaf glaðleg og stutt í
glettnina.
Það sem ég lærði helst af
Rúnu var hreinskilni en hún
sagði alltaf sína meiningu. Rúna
var heimavinnandi húsmóðir í
sveitinni þegar ég kynntist
henni og hugsaði vel um sína og
allt virtist leika í höndunum á
henni. Það er ómetanlegt á
þessari stundu að við skulum
geta yljað okkur við óteljandi
minningar um magnaða konu og
um leið yljað okkur um fæturna
í öllum ullarsokkunum sem
amma Rúna prjónaði á okkur.
Karen Eva frumburðurinn okk-
ar var mikið í pössun í Vetleifs-
holti áður en hún komst í leik-
sóla og þar var ýmislegt brallað
og leyft sem ekki leyfðist hjá
okkur ungu foreldrunum. Í Vet-
leifsholti lærði Karen t.d. ung að
drekka kaffi með mjólk og
sykri, brauð með mjög miklu
smjöri og að spila með eigin
reglum ömmu og afa. Um tíma
bjuggum við fjölskyldan hjá
Rúnu þegar hún var flutt á
Hellu og eftirminnileg voru
kvöldin þegar við prjónuðum
saman og hún hló mikið þegar
ég pirraði mig á að gera vitleys-
ur og hvatti mig til dáða og að
gefast ekki upp.
Síðustu ár dvaldi Rúna á
hjúkrunarheimilinu Lundi á
Hellu þar sem fjölskyldan gat
notið hennar alla daga. Dætur
mínar báðar voru tíðir gestir hjá
ömmu sinni og unnu m.a. á
Lundi og hefur þetta verið ein-
staklega dýrmætur tími. Yngsta
barnabarnið Björgvin Geir og
langömmustrákurinn Rúnar
Atli fengu að kynnast ömmu
sinni vel síðustu árin á Lundi og
alltaf hlupu þeir inn til hennar
þar sem þeim mætti geislandi
fallegt bros og boðið var upp á
djús og kex. Strákarnir fundu
að best var að vera þar sem
kærleikurinn umvafði þá. Stutt
er í fæðingu nýrrar langömm-
ustelpu sem Rúna beið eftir með
mikilli eftirvæntingu og fylgdist
hún mjög spennt með meðgöng-
unni. Hún mun vafalaust hafa
vakandi auga með litlu stúlk-
unni og öllum afkomendum sín-
um áfram.
Við höfum nú útskýrt fyrir
litlu strákunum að amma Rúna
sé nú hjá afa Sigga sem hafi tek-
ið glaður á móti henni. Rúnar
Atli sá yngsti veltir fyrir sér
hvað amma Rúna ætli eiginlega
að vera lengi dáin. Honum þætti
betra að fá hana aftur sem fyrst.
Útskýring sem hann er sáttur
með er að nú er amma alltaf að
passa okkur uppi í skýjunum hjá
guði. Að lokum þakka ég fyrir
þessa góðu konu og blessuð sé
minning Rúnu frá Vetleifsholti.
Margrét Ýrr
Sigurgeirsdóttir.
Góður engill Guðs oss leiðir
gegnum jarðneskt böl og stríð,
léttir byrðar, angist eyðir,
engill sá er vonin blíð.
(Helgi Hálfdánarson.)
Guðrún Jónsdóttir frá Vet-
leifsholti lést á Dvalarheimilinu
Lundi 16. febr. sl. tæplega ní-
ræð að aldri.
Rúna eins og hún var jafnan
kölluð átti sín uppvaxtarár á
Núpi, Vestur-Eyjafjöllum,
þeirri fallegu sveit. Systkina-
hópurinn var stór og hefur
örugglega oft verið glatt á
hjalla. Þá tóku börnin þátt í dag-
legum störfum eftir þroska og
aldri.
Maður Rúnu var Sigurður
Þorsteinsson. Þau bjuggu í Vet-
leifsholti í tæp 50 ár. Þau
byggðu þar allt upp og þar ólu
þau upp börnin sín átta.
Rúna var félagslynd. Hún var
félagi í Féagi eldri borgara í
Rangárvallasýslu og var í stjórn
þess um árabil. Hún var stofn-
félagi í Kvenfélagi Oddakirkju,
en það var stofnað 1963. Hún
var mjög virkur félagi. Við
kvenfélagskonur þökkum henni
vináttu og frábært samstarf á
liðnum árum.
Fjölskyldunni sendum við
samúðarkveðjur.
Blessuð von, í brjósti mínu
bú þú meðan hér ég dvel,
lát mig sjá í ljósi þínu
ljómann dýrðar bak við hel.
(Helgi Hálfdánarson.)
Fyrir hönd Kvenf. Odda-
kirkju,
Guðríður Bjarnadóttir.
Ótrúlega finnst mér skrítið að
þú sért farin frá okkur, elsku
amma. Ég finn fyrir miklum
söknuði og tómleika en samt
sem áður finn ég fyrir miklu
þakklæti. Skemmtilegt finnst
mér að þú og afi kennduð mér
að spila í sveitinni, þó stundum
hafi verið svindlað á blásaklausu
barninu. Hvergi var hægt að fá
betri pönnukökur en hjá ömmu,
sú uppskrift mun lifa, þótt erfitt
sé að toppa þínar. Ég tala nú
ekki um brúnu sósuna með
lambakjötinu, ég hugsa reglu-
lega um hana og mun einn dag-
inn ná að gera hana eins og þú.
Gaman var að heyra allar
sögurnar úr Vetleifsholti af bú-
skaparárum ykkar afa, það hef-
ur ekki alltaf verið dans á rós-
um. Þú varst harðdugleg og
hreinskilin húsmóðir, það er
eitthvað sem ég stefni á að
verða. Ég dáist að því hversu
hreinskilin þú varst, þú sagðir
alltaf þína skoðun óháð því
hvernig það kom út fyrir aðra
og þú stóðst á þínu. Maður pass-
aði sig að þú heyrðir frekar
góðu sögurnar svo þú myndir
ekkert segja og að sjálfsögðu
passaði sig að koma alls ekki í
rifnum gallabuxum til þín, þá
fékk maður að heyra það.
Ég er svo þakklát fyrir það að
Rúnar Atli fékk að kynnast þér
svona vel. Honum fannst svo
gott að koma til þín eftir leik-
skóla og drekka djús og borða
nammi í friði, því mamman átti
stundum erfitt að stoppa hann
af þegar langamman var nærri.
Á hverjum einasta degi vildi
hana fara til þín á Lund. Leið-
inlegt að þú rétt misstir af nýja
hlutverkinu hans sem stóri
bróðir, ég er viss um að þú hefð-
ir verið stolt.
Núna eftir að þú ert farin þá
spyr hann reglulega hvort við
gætum heimsótt ömmu Rúnu,
hann skilur ekki hvað hún ætlar
að vera lengi dáin. Við tölum um
þig daglega og erfitt er að út-
skýra þetta allt fyrir litlu barni.
Eitthvað held ég að þú myndir
hlæja að vangaveltum hans um
dauðann.
Ég mun gera mitt besta að
halda í minningu þína og passa
að hann gleymi þér aldrei. Við
eigum eftir að sakna þín.
Hvíldu í friði.
Karen Eva Sigurðardóttir.
Fyrrverandi kær nágranni,
Rúna í Vetleifsholti, hefur kvatt
þetta jarðlíf, komin vel á níræð-
isaldur. Minningarnar frá æsku-
árunum í Vetleifsholtshverfi
streyma fram og hlýja og þakk-
læti fylla hugann. Samfélagið í
hverfinu var gott, einkenndist af
náungakærleik, hjálpsemi og
dugnaði. Tvenn ung hjón byrj-
uðu búskap með árs millibili í
Vetleifsholtshverfi, foreldrar
mínir, Steinunn Guðný Sveins-
dóttir og Sigurður Jónsson í
Kastalabrekku árið 1951 og ári
síðar komu Guðrún Jónsdóttir
(Rúna) og Sigurður Þorsteins-
son í Vetleifsholt. Fyrir voru þá
Ólafur og Þórður Ólafssynir,
Svanhvít Guðmundsdóttir og
Sigríður Gísladóttir í Lindarbæ
og 4 árum síðar fluttu þangað
Jón Þorsteinsson og Sigurlaug
Björnsdóttir í Rifshalakot.
Átta börn fæddust og ólust
upp á hvorum bæ, Vetleifsholti
og Kastalabrekku, aldursdreif-
ingin að mestu sú sama á 20 ára
tímabili. Það var ekki langt að
fara á milli bæja og í minning-
unni var alltaf sól og bjartviðri
sem endurspeglar eflaust
skemmtilegu leikina, ævintýrin
og saklausan vinskap æskunnar.
Að koma inn í Vetleifsholt var
eins og að koma heim, værum
við á kaffitíma fengum við mjólk
og meðlæti, Rúna var eins og
mamma númer tvö, alltaf hlý,
glettin og góð.
Fyrir ungu hjónin sem hvor
um sig voru að reisa bú á nánast
húslausum jörðum um miðja
síðustu öld, var hjálpsemi og
vinátta mikils virði, vinátta sem
entist lífið sjálft. Þegar reist var
hús á annarri jörðinni lagði hinn
bóndinn verk sín til hliðar til að
hjálpa til. Rúna var alltaf tilbúin
til að aðstoða á Kastalabrekku
þegar hjálpar var þörf. Man ég
hennar hlýju nærveru þegar
yngri systkini mín fæddust en
þá voru heimafæðingar algeng-
ar.
Rúna tók þátt í þeirri fé-
lagstarfssemi sem sveitin bauð
upp á, saumaklúbb, ungmenna-
félagi, kvenfélagi og slysavarna-
félagi. Þegar hún og móðir mín
fóru saman á fundi og klúbba
fannst manni að svona ætti lífið
að vera og manni datt ekki í hug
að framtíðin yrði með öðru móti
hjá manni sjálfum. Það var stutt
á milli bæja og oft gengu vin-
konurnar yfir á næsta bæ fyrir
kaffibolla og stutt spjall. Áður
en sjónvarpið kom á heimilin
settust nágrannarnir stundum
niður og tóku spil en það varð
mikil breyting eftir að sjónvarp-
ið hóf innreið sína, fyrst svart-
hvítt. Fyrsta sjónvarpið í hverf-
inu kom hjá gamla fólkinu í
Lindarbæ og gleymast ekki
fyrstu barnatímarnir sem við
krakkarnir í Kastalabrekku og
Vetleifsholti fengum að sjá hjá
þeim, spariklædd á sunnudög-
um.
Ég skrifa þessar línur fyrir
hönd móður minnar og okkur
systkinanna. Söknuður, virðing
og þakklæti er okkur efst í
huga, þakklæti fyrir trygga vin-
áttu, samhug og hjálpsemi í
gegnum árin.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem)
Sigurveig Þóra
Sigurðardóttir.
Guðrún Jónsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ANNA MARGRÉT JAFETSDÓTTIR
kennari,
Dalbraut 16, Reykjavík,
lést á Landspítalanum þriðjudaginn
18. febrúar. Útförin fer fram frá Laugarneskirkju miðvikudaginn
4. mars klukkan 15. Blóm og kransar afþökkuð en þeim sem
vilja minnast hennar er bent á Píeta-samtökin og UNICEF.
Ari Hálfdanarson Guðbjörg Sesselja Jónsdóttir
Finnbogi Rútur Hálfdanarson Guðrún Edda Guðmundsdóttir
Guðmundur Hálfdanarson Þórunn Sigurðardóttir
Jóna Hálfdánardóttir Einar Már Guðmundsson
Guðrún Hálfdánardóttir Sigurður Árni Sigurðsson
Halldóra Hálfdánardóttir Hilmar Þór Karlsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HELGA GUÐJÓNSDÓTTIR
frá Ökrum,
Höfðagrund 14b, Akranesi,
lést á Sjúkrahúsi Akraness miðvikudaginn
26. febrúar.
Útför hennar verður gerð frá Akraneskirkju fimmtudaginn
5. mars klukkan 13.
Ingiríður B. Kristjánsdóttir Ólafur Ólafsson
Smári H. Kristjánsson Nikolína Th. Snorradóttir
Guðjón Kristjánsson Ingibjörg Sigurðardóttir
Guðrún H. Kristjánsdóttir Vicente Carrasco
barnabörn og barnabarnabörn
Þökkum innilega samúð og hlýhug við
andlát og útför móður okkar, tengdamóður
og ömmu,
ELÍSABETAR GUÐNÝJAR
HERMANNSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
hjúkrunarheimilisins Sóltúns fyrir umönnun
á undanförnum árum.
Sigríður Indriðadóttir Margeir Pétursson
Einar Páll Indriðason Halla Halldórsdóttir
og barnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
FRIÐBJÖRG KRISTJANA
RAGNARSDÓTTIR,
Skipalóni 20,
lést á Landspítalanum föstudaginn
21. febrúar.
Útförin fer fram frá Garðakirkju föstudaginn 6. mars klukkan 15.
Jóhann Þór Jóhannsson Rúna Baldvinsdóttir
Ragnar Steinþór
Jóhannsson
Friðjón Viðar Jóhannsson
Edda Sigurbjörg Jóhannsd. Rúnar Páll Brynjúlfsson
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar ástkæri eiginmaður, fjölskyldufaðir
og bróðir,
BJARNI JÓN MATTHÍASSON,
Sandlæk í Gnúpverjahreppi,
áður Kirkjubæjarklaustri,
andaðist á Landspítalanum Hringbraut
miðvikudaginn 26. febrúar.
Útförin fer fram í Skálholtskirkju laugardaginn 14. mars
klukkan 12.
Elín Erlingsdóttir
Ester Elín Bjarnadóttir Björgvin Rúnarsson
Guðrún Heiða Bjarnadóttir Andri Jónasson
Helgi Haukur Hauksson Helga Margrét Friðriksdóttir
barnabörn og systur hins látna
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Lára Árnadóttir,
umsjón útfara
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna