Morgunblaðið - 29.02.2020, Side 38
38 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. FEBRÚAR 2020
PFAFF • Grensásvegi 13 • Sími: 414 0400 • www.pfaff.is
SkÍNaNdI
LjÓSaÚRvAl
80 ára Valdimar er
fæddur í Norðurgarði í
Mýrdal og ólst þar upp
en býr í Kópavogi. Hann
er blikksmíðameistari
frá Iðnskólanum í
Reykjavík. Hann stofn-
aði fyrirtækið Ísloft ehf.
ásamt tveimur öðrum og vann þar þangað
til í fyrravor og er enn hluthafi í fyrir-
tækinu.
Maki: Auður Pedersen, f. 1942, húsmóðir.
Börn: Gunnar, f. 1962, Anna María, f.
1964, Sigrún, f. 1968, Guðrún, f. 1970,
Jón, f. 1971 og Valdimar, f. 1972. Barna-
börnin eru 16 og langafabörnin 3.
Foreldrar: Jón Guðmundsson, f. 1899, d.
1983, og Guðrún Erlendsdóttir, f. 1900, d.
1980, bændur í Norðurgarði.
Valdimar Karl
Jónsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú þarft að veita sköpunargáfunni
útrás í dag. Haltu fast í taumana á krökk-
unum, það borgar sig til lengri tíma litið.
20. apríl - 20. maí
Naut Það væri upplagt að fara út að borða
í hádeginu ásamt félögunum og ræða mál-
in. Sláðu ekki af kröfunum þegar kemur að
frágangi.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Peningar vaxa ekki á trjánum –
þeir vaxa í garði hugmyndaflugsins. Þér
verður fótaskortur á tungunni í dag, en þú
hlærð bara að því.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Systkini er uppspretta óvæntra tíð-
inda í dag. Reyndu að taka þátt í sprelli á
vinnustað, það lífgar upp á sálartetrið.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þótt þér sé annt um það sem þú átt,
er sumt af því bara hlutir, sem þú getur vel
leyft öðrum að nota þegar svo ber undir.
Ekki hugsa þig um tvisvar þegar þér býðst
að fara í ferðalag.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Heimilið og fjölskyldan verða í
brennidepli hjá þér á næstu fjórum til sex
vikum. Hafðu gætur á eyðslunni.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú gætir verið dálítið yfirþyrmandi í
dag vegna þess að þú vilt sannfæra aðra
um að þú hafir rétt fyrir þér. Láttu ekkert
komast upp á milli þín og vinar þíns.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Gerðu enga samninga hvorki
stóra né smáa án þess að kynna þér vand-
lega innihald þeirra og smáa letrið. Þér
skjátlast um vissa persónu.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Feimni er eitthvað sem þú
þekkir. Ef einhver býðst til að gefa þér gjöf
skaltu þiggja hana. Þú neyðist til að borga
viðgerð úr eigin vasa.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er svo margt að gerast í
kringum þig að þér finnst erfitt að einbeita
þér að þeim hlutum sem skipta raunveru-
lega máli. Sýndu ákveðni og þá getur ekk-
ert staðið í vegi fyrir þér.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er til lítils að sitja með
hendur í skauti og halda að hlutirnir komi
af sjálfu sér. Fylgdu innsæinu til enda. Þú
stillir einhverjum upp við vegg.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er aldrei að vita, hvenær lukkan
ber að dyrum eða hjá hverjum. Eina mann-
eskjan sem þú getur breytt ert þú sjálf/ur.
Unnur hefur setið í stjórn Félags
íslenskra gullsmiða frá árinu 2008 til
dagsins í dag ásamt því að sitja í
sveinsprófsnefnd frá árinu 2012.
Hún var í sýningarnefnd Félags ís-
hreina og klæðilega og að skart-
gripirnir gangi við flest tækifæri og
þægilegt sé að bera þá.“ Unnur
hannaði bleiku slaufuna árið 2016
ásamt Lovísu Halldórsdóttur.
U
nnur Eir Björnsdóttir
er fædd 29. febrúar
1980 í Reykjavík.
„Þegar ég fæddist á
hlaupársdegi kom
skáfrænka mín til mömmu minnar
og spurði hvernig henni hefði dottið
það í hug að eignast barn á hlaup-
ársdag. Mamma svaraði fljótt:
„Góða besta, leiktu það eftir mér.“
Hún gerði það svo átta árum síðar
og þá fékk ég frænku í afmælisgjöf,
hana Eddu, en Edda og ég erum
bræðradætur.“
Æskuslóðirnar voru Árbærinn og
lék hún sér mikið öðrum krökkum í
Brekkubænum. „Við fjölskyldan fór-
um líka oft í sumarbústað í Skorra-
dal og eins til frænku minnar sem
bjó á Ormsstöðum í Dalasýslu. Ég
var líka rosa mikið hjá ömmu í
Hvassó eins og þegar mikið var að
gera í fjölskyldufyrirtækinu hjá
hinni ömmunni minni, til dæmis þeg-
ar jólatarnirnar voru.“
Unnur gekk í Árbæjarskóla og
var stúdent frá Verslunarskólanum
2000. Hún hóf síðan nám við Tækni-
skólann í Reykjavík þar sem hún
lauk sveinsprófi í gull- og silfursmíði
árið 2007 og meistaraskólann kláraði
hún 2008. Hún er skartgripahönn-
uður frá listaháskólanum Centra Sa-
int Martins í London og var þar í
námi 2006-2007.
Unnur hefur unnið í fjölskyldufyr-
irtækinu MEBA frá blautu barns-
beini. „Afi og amma stofnuðu það
fyrirtæki og mamma og pabbi byrj-
uðu ung að vinna þar. Þau urðu
helmingseigendur 1976 og sáu svo
alfarið um reksturinn fljótlega eftir
að var Kringlan opnuð,“ en MEBA
hefur verið með verslun þar frá
byrjun. Unnur opnaði síðan MEBA í
Smáralind árið 2001 ásamt for-
eldrum sínum. „Þá sá ég alveg um
verslunina þar en eftir að ég lauk
gullsmíðanáminu hef ég meira verið
á verkstæðinu, en maður er allt í öllu
í litlu fjölskyldufyrirtæki. Ég sé líka
um vefverslun MEBA sem er nú í
hraðri þróun á ört stækkandi mark-
aði með hraðri tækniþróun.“
Unnur er með eigin skartgripa-
línu sem hún hannar undir vöru-
merkinu EIR. „Ég er í þessu stíl-
lenskra gullsmiða 2008-2014.
Áhugamál Unnar eru að hitta vini
og sinna fjölskyldu. „Ég er eins og
er styrktaraðili í Hreyfingu en þar
mun áhuginn fljótt vakna aftur. Ég
Unnur Eir Björnsdóttir gullsmiður – 40 ára
Fjölskyldan Unnur, Kristinn og börn stödd í Aigua Blava í Katalóníu á Spáni síðastliðið haust.
Hannar klæðilega skartgripi
Gullsmiðurinn Unnur að vinna að bleiku slaufunni 2016.Afmælisbarnið Unnur.
60 ára Karólína er
Akureyringur, fædd
þar og ólst upp á
Brekkunni og býr á
Brekkunni. Hún er
þroskaþjálfi að
mennt frá Þroska-
þjálfaskóla Íslands
og er sviðsstjóri búsetusviðs Akureyr-
arbæjar.
Maki: Gísli Sigurður Gíslason, f. 1962,
kennari og vinnur í vettvangsteymi
Akureyrarbæjar.
Börn: Gunnar, f. 1983, d. 1987, Már, f.
1990, og Gunnar Breki, f. 2003.
Foreldrar: Gunnar B. Jóhannsson, f.
1935, fyrrverandi sjómaður, búsettur á
Akureyri, og Fríður Jóhannesdóttir, f.
1935, d. 2004, húsmóðir á Akureyri.
Karólína
Gunnarsdóttir
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is