Morgunblaðið - 29.02.2020, Page 40
40 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. FEBRÚAR 2020
Grill 66 deild karla
Þór Ak. – Valur ..................................... 33:25
Fjölnir U – Víkingur ............................ 30:29
Grótta – KA U....................................... 33:32
Staðan:
Þór Ak. 15 13 2 0 465:384 28
Haukar U 14 9 1 4 417:370 19
Grótta 15 9 1 5 441:419 19
Valur U 15 8 2 5 433:431 18
Þróttur 15 7 2 6 444:416 16
FH U 15 7 1 7 448:435 15
Víkingur 15 6 1 8 410:417 13
KA U 15 4 1 10 435:465 9
Fjölnir U 15 3 1 11 376:441 7
Stjarnan U 14 1 2 11 353:444 4
Grill 66 deild kvenna
Grótta – HK U ...................................... 27:17
FH – Selfoss.......................................... 22:25
Víkingur – ÍBV U ................................. 23:24
Staðan:
Fram U 18 18 0 0 607:402 36
FH 19 15 1 3 537:413 31
Selfoss 19 14 2 3 460:406 30
Grótta 19 12 1 6 490:447 25
ÍR 18 10 1 7 470:442 21
ÍBV U 19 9 1 9 466:466 19
Valur U 18 8 1 9 478:478 17
Fjölnir 18 6 2 10 433:484 14
Stjarnan U 18 6 1 11 428:479 13
HK U 19 4 2 13 464:555 10
Fylkir 18 3 0 15 359:451 6
Víkingur 19 0 0 19 417:586 0
Danmörk
SönderjyskE – Lemvig ....................... 18:26
Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 1
mark fyrir SönderjyskE, eins og Sveinn
Jóhannsson.
Frakkland
B-deild:
Cesson-Rennes – Séléstat................... 25:24
Geir Guðmundsson skoraði ekki fyrir
Cesson-Rennes.
1. deild karla
Snæfell – Höttur................................... 71:89
Vestri – Hamar ..................................... 90:79
Staðan:
Höttur 20 18 2 1753:1479 36
Hamar 20 17 3 1951:1738 34
Breiðablik 20 16 4 1978:1678 32
Vestri 18 11 7 1588:1451 22
Álftanes 20 10 10 1702:1744 20
Selfoss 19 8 11 1476:1533 16
Skallagrimur 20 3 17 1616:1873 6
Sindri 17 2 15 1370:1578 4
Snæfell 20 2 18 1585:1945 4
Svíþjóð
Borås – Wetterbygden Stars .......... 103:102
Elvar Már Friðriksson skoraði 19 stig,
tók 2 fráköst og gaf 8 stoðsendingar á 28
mínútum hjá Borås.
NBA-deildin
Philadelphia – New York................. 115:106
Indiana – Portland ........................... 106:100
Oklahoma City – Sacramento ......... 112:108
Golden State – LA Lakers................. 86:116
UNGSTIRNI
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Frammistaða kanadíska knatt-
spyrnumannsins Alphonso Davies
fyrir Bayern München gegn Chelsea
í Meistaradeild Evrópu á þriðjudag
hefur vakið verðskuldaða athygli.
Davies, sem lék í stöðu vinstri bak-
varðar, var ekki bara öruggur í vörn-
inni heldur gríðarlega sterkur í
sókninni og átti hann stóran þátt í
þriðja marki Bayern í 3:0-stórsigri.
Davies óð upp vinstri kantinn og áttu
leikmenn Chelsea ekki möguleika
gegn Kanadamanninum, áður en
hann sendi hnitmiðað á Robert Lew-
andowski sem skoraði auðvelt mark.
Davies var einn af bestu mönnum
vallarins, þrátt fyrir að vera aðeins
19 ára gamall.
Flúðu frá Líbíu til Gana
Hver er Alphonso Davies?
Frammistaða hans gegn Chelsea var
mögnuð, en leið hans á toppinn er
enn magnaðri. Davies fæddist í
flóttamannabúðum í Gana 2. nóv-
ember árið 2000. Foreldar hans
höfðu flúið stríðsátök í heimalandi
sínu Líbíu. Að sögn föður hans, De-
beah, var lífið lítið skárra í Gana.
„Við höfðum daglega áhyggjur af því
að deyja úr hungri. Við vorum ekki
aðeins á stríðssvæði, heldur líka í
flóttamannabúðum. Það var ekki
öruggt að við gætum fundið mat fyr-
ir okkur og Alphonso,“ sagði hann í
viðtali við Sky Sports.
Fimm ára til Kanada
Sem betur fer fyrir Alphonso og
fjölskyldu hans fengu þau hæli í
Kanada þegar hann var fimm ára.
Fyrsta árið í Kanada bjuggu þau í
Windsor í Ontario og svo lá leiðin til
Edmonton. Þar byrjaði Alphonso
snemma að æfa fótbolta og vakti
hann athygli fyrir mikla hæfileika.
Þegar hann var 14 ára var Vancou-
ver Whitecaps farið að fylgjast vel
með honum og ári síðar samdi hann
við félagið. Fyrst um sinn lék Davies
í næstefstu deild með varaliði Van-
couver og í júlí 2016 varð hann
yngsti markaskorari næstefstu
deildar Bandaríkjanna.
Næstyngstur í deildinni
Hann skoraði tvö mörk í ellefu
leikjum með varaliðinu og var í kjöl-
farið færður í aðalliðið. Hann lék
fyrsta leik sinn í efstu deild í júní
2016, þegar hann var 16 ára og átta
mánaða. Varð hann næstyngsti leik-
maðurinn í sögu deildarinnar á eftir
Freddy Adu, undrabarninu sem spil-
aði 14 ára á sínum tíma en lítið varð
úr. Davies fékk kanadískan ríkis-
borgararétt 6. júní 2017 og sama dag
varð hann yngsti leikmaðurinn í
sögu kanadíska landsliðsins, en hann
var 16 ára er hann lék í vináttuleik
gegn Curaçao. Mánuði síðar varð
hann yngsti markaskorari landsliðs-
ins frá upphafi er hann skoraði í
fyrsta leik Kanada í Gullbikarnum í
Bandaríkjunum, álfukeppni Mið- og
Norður-Ameríku. Hann sló í gegn í
keppninni og varð markahæstur,
valinn besti ungi leikmaðurinn og
valinn í úrvalslið mótsins.
Keyptur til Bayern München
Davies hélt áfram að spila vel með
Vancouver, þar sem hann skoraði
tólf mörk í 81 leik. Var hann byrj-
aður að vekja athygli sterkustu fé-
laga Evrópu og að lokum var það
Bayern München sem vann kapp-
hlaupið. Sumarið 2018 staðfesti Van-
couver að félagið hefði komist að
samkomulagi við Bayern um að selja
leikmanninn á 22 milljónir dollara og
var hann á þeim tíma dýrasti leik-
maðurinn í sögu bandarísku atvinnu-
mannadeildarinnar. Davies kláraði
tímabilið með Vancouver og gekk
formlega í raðir Bayern í janúar á
síðasta ári og gerði samning til 2023.
Bakvörður vegna meiðsla
Hann lék fyrsta deildarleik sinn
með Bayern gegn Stuttgart 27. jan-
úar á síðasta ári. Fyrsta markið kom
17. mars gegn Mainz og varð hann í
leiðinni yngsti markaskorarinn hjá
Bayern í 20 ár. Hann spilaði sem
kantmaður hjá Vancouver og fyrst
um sinn hjá Bayern, en vegna
meiðslavandræða hjá þýska liðinu,
var David Alaba færður úr vinstri
bakverði í miðvörðinn og Davies
fékk tækifæri til að leika sem bak-
vörður. Þar hefur hann blómstrað og
er hann þegar orðinn einn besti
vinstri bakvörður heims. Hann hefur
leikið 26 leiki með Bayern á leiktíð-
inni og er algjör lykilmaður. Þá hef-
ur hann þegar leikið 17 landsleiki og
skorað í þeim fimm mörk.
Saga Davies hefur vakið mikla at-
hygli, enda fæddist hann í flótta-
mannabúðum en er orðinn einn besti
ungi leikmaður heims og hefur bætt
hin ýmsu met í leiðinni. Hann er enn
aðeins 19 ára gamall og á því bara
eftir að verða betri.
Höfðum dag-
lega áhyggjur
af því að deyja
Alphonso Davies sem hefur slegið
í gegn með Bayern München 19 ára
gamall fæddist í flóttamannabúðum
AFP
Kanadamaður Alphonso Davies sýndi í leik Bayern München og Chelsea í
London að hann er líklegur til mikilla afreka á næstu árum.
Ísland mætir Úkraínu í lokaumferð-
inni í 2. deild B á heimsmeistaramóti
kvenna í íshokkí í Skautahöllinni á
Akureyri í dag klukkan 17. Ástralía
er með 12 stig, Ísland 9, Nýja-
Sjáland 9 og Tyrkland, Úkraína og
Króatía eru með 2 stig hvert. Ástr-
alir mæta grönnum sínum Nýsjá-
lendingum í hreinum úrslitaleik
klukkan 13.30 en mestar líkur eru á
að Ísland hljóti silfurverðlaunin á
mótinu. Ástralir standa best að vígi
með að tryggja sér sæti í 2. deild A
en barátta þriggja neðstu liðanna
um að halda sér í deildinni er tvísýn.
Lokaumferðin á
Akureyri í dag
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Ung Hilma Bergsdóttir er fimmtán
ára gömul landsliðskona Íslands.
Körfuknattleiksdeild Hauka sagði í
gær upp samningi sínum við þjálf-
ara kvennaliðs félagsins, Ólöfu
Helgu Pálsdóttur, sem hefur stýrt
Haukaliðinu frá sumrinu 2018.
Bjarni Magnússon, aðstoðarþjálfari
liðsins, stýrir því í næstu leikjum,
fyrst gegn Skallagrími í mikil-
vægum leik í Dominos-deildinni á
sunnudaginn. Haukar eru í harðri
baráttu við Skallagrím og Keflavík
um tvö sæti í úrslitakeppninni um
Íslandsmeistaratitilinn en töpuðu
fyrir Skallagrími á dögunum í
undanúrslitum bikarkeppninnar.
Ólöfu Helgu sagt
upp hjá Haukum
Morgunblaðið/Eggert
Uppsögn Ólöf Helga Pálsdóttir er
hætt störfum hjá Haukum.
Kylfingarnir Valdís Þóra Jóns-
dóttir og Guðrún Brá Björgvins-
dóttir komust í fyrrinótt báðar í
gegnum niðurskurðinn á NSW
Open golfmótinu á Evrópumótaröð-
inni í Ástralíu.
Valdís Þóra lék annan hringinn á
74 höggum, eftir að hafa leikið
þann fyrsta á 72 höggum, og var
þar með á tveimur höggum yfir
pari samanlagt í 31.-40. sæti.
Guðrún Brá lék hringinn á 72
höggum, eftir að hafa leikið þann
fyrsta á 77 höggum, og var sam-
anlagt á fimm höggum yfir pari í
53.-65. sæti en efstu 65 keppendur
leika áfram tvo síðustu hringina um
helgina.
Þriðji hringurinn var leikinn í
Nýja-Suður-Wales í Ástralíu í nótt
en keppnin fer fram í borginni
Dubbo, um 300 km norðvestur af
Sydney.
Báðar áfram
í Ástralíu
Guðrún Brá
Björgvinsdóttir
Valdís Þóra
Jónsdóttir
Heimsmeistaramótunum í hand-
knattleik karla og kvenna hefur verið
úthlutað til ársins 2027. Fram-
kvæmdastjórn Alþjóða handknatt-
leikssambandsins, IHF, kom saman í
Kaíró í Egyptalandi í gær og tilkynnti
eftir fund sinn hvar yrði leikið árin
2025 og 2027.
Evrópubúar geta verið ánægðir
með sinn hlut því öll stórmót íþróttar-
innar hjá báðum kynjum verða í Evr-
ópu næstu sjö árin hið minnsta.
Norðurlöndin fá sinn skerf því
Danir og Norðmenn munu halda
heimsmeistaramót karla árið 2025 og
Króatía verður þriðja gest-
gjafaþjóðin. Það verður í fyrsta skipti
sem þrjár þjóðir halda HM karla en
það var gert í fyrsta skipti á Evr-
ópumóti karla á þessu ári þegar mótið
í janúar fór fram í Noregi, Svíþjóð og
Austurríki, og verður í fyrsta skipti á
HM kvenna 2023 þegar þrjár Norð-
urlandaþjóðir halda mótið í samein-
ingu. Mótshaldið næstu sjö árin verð-
ur sem hér segir:
HM karla:
2021: Egyptaland.
2023: Pólland og Svíþjóð.
2025: Danmörk, Króatía og Nor-
egur.
2027: Þýskaland.
HM kvenna:
2021: Spánn.
2023: Danmörk, Noregur og Sví-
þjóð.
2025: Holland og Þýskaland.
2027: Ungverjaland.
Evrópuþjóðir fengu ekki aðeins
heimsmeistaramótin í elstu flokk-
unum heldur einnig öll mót sem út-
hlutað var í yngri aldursflokkum.
Slóvenía, Norður-Makedónía, Pól-
land, Þýskaland, Króatía, Georgía og
Portúgal fengu þar öll gestgjafa-
hlutverk.
Þá eru Ólympíuleikarnir 2024
haldnir í París þannig að eftir ÓL í
Tókýó í sumar þurfa Evrópuþjóðir
ekki að fara á stórmót utan álfunnar
fyrr en Ólympíuleikarnir 2028 verða
haldnir í Los Angeles. vs@mbl.is
Evrópa sér um HM í handbolta næstu árin