Morgunblaðið - 29.02.2020, Síða 41
ÍÞRÓTTIR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. FEBRÚAR 2020
HANDBOLTI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Ásdís Sigurðardóttir, leikmaður KA/
Þórs í handknattleik, viðurkennir að
það hafi alltaf verið draumur hjá sér
að vinna bikar með uppeldisfélagi
sínu. Ásdís er fædd árið 1983 og er
einn reynslumesti leikmaður KA/
Þórs sem mætir Haukum í undan-
úrslitum bikarkeppninnar, Coca-
Cola bikarsins, í Laugardalshöll á
miðvikudaginn kemur.
„Við reynum að fókusera á deild-
arleikinn á laugardaginn gegn
Haukunum til að byrja með. Hann
er gríðarlega mikilvægur, sér-
staklega ef við ætlum okkur í úr-
slitakeppnina, sem er eitt af okkar
markmiðum. Það er þess vegna mik-
ið undir á laugardaginn en um leið
og þeim leik er lokið förum við að
einbeita okkur að leiknum í undan-
úrslitum bikarkeppninnar á mið-
vikudaginn kemur. Það verður auð-
velt að gíra sig upp í þann leik enda
eru þessir stóru leikir ástæðan fyrir
því að maður er að hlaupa, lyfta og
æfa allt árið.“
Góð blanda í liðinu
Ásdís er uppalin á Akureyri hjá
KA/Þór en liðið hefur aldrei orðið
bikarmeistari og viðurkennir stór-
skyttan, sem hefur einnig leikið með
FH og Stjörnunni, að það sé kominn
tími til þess að breyta því.
„Það hefur alltaf verið draumur að
vinna bikar með uppeldisfélagi sínu
en það má að sjálfsögðu ekki gleyma
því að við þurfum fyrst að vinna und-
anúrslitaleikinn, áður en við förum
að spá í úrslitaleikinn sjálfan. Að
sama skapi gjóum við augunum líka
að lokatakmarkinu sem er að taka
þann stóra. Við erum með erlendan
markmann en annars eru þetta allt
KA/Þór-stelpur sem hafa komið upp
í gegnum frábært barna- og ung-
lingastarf félagsins. Blandan í liðinu
er því mjög góð, það er að segja, við
erum með unga og mjög efnilega
leikmenn í bland við eldri og reynd-
ari leikmenn. Þá er stemningin á Ak-
ureyri geggjuð og þar snýst allt um
handboltann þessa dagana. Um-
gjörðin í kringum félagið er mjög
flott og á bak við hana standa meðal
annars fyrrverandi leikmenn úr lið-
inu sem hafa lagt skóna á hilluna.
Það er unnið frábært starf þarna á
bak við tjöldin og allir sem standa í
kringum félagið eiga stórt hrós skil-
ið.“
Skemmtileg deild í vetur
Ásdís hefur verið lengi í handbolt-
anum en ákveðin umræða skapaðist
á dögunum um styrkleika deild-
arinnar og ójöfnuð innan hennar.
Fram og Valur hafa haft mikla yfir-
burði í deildinni í vetur og hafa kom-
ið leikir inn á milli þar sem liðin hafa
unnið leiki sína með meira en tutt-
ugu marka mun.
„Vissulega hafa Fram og Valur
skarað aðeins fram úr í deildinni í
vetur en við getum klárlega unnið
bæði þessi lið á góðum degi. Það þarf
allt að ganga upp auðvitað hjá okk-
ur, bæði vörn og markvarsla, og
stóru liðin þurfa kannski að hitta á
slæman dag hjá sér á sama tíma. Við
unnum Fram í fyrra sem dæmi
þannig að það getur allt gerst í
þessu og liðin í sjöunda til þriðja
sætinu hafa öll verið að taka stig
hvert af öðru í vetur þannig að deild-
in hefur verið mjög skemmtileg í
vetur að mínu mati.“
Alltaf flykkst í sterkustu liðin
„Það hefur alltaf verið stór hluti af
kvennahandboltanum að stelpur
flykkjast í sterkustu liðin. Þetta er
eitthvað sem hver og einn leikmaður
verður að eiga við sjálfan sig. Þegar
allt kemur til alls snýst þetta oft á
tíðum um það hvort leikmaður sé
tilbúinn að sitja á bekknum hjá einu
af stóru liðunum og vinna titla eða
vera lykilmaður í liði sem er kannski
ekki alltaf að berjast í og við topp-
inn. Auðvitað er gaman að vinna titla
og allt það og ég skil þess vegna að
það kitli marga að fara í stóru liðin.
Það skiptir hins vegar gríðarlega
miklu máli líka að fá spiltíma og
verða þannig betri leikmaður en að
endingu er þetta ákvörðun sem hver
og einn verður að taka fyrir sjálfan
sig,“ sagði Ásdís í samtali við Morg-
unblaðið.
Geggjuð stemning á Akureyri
Ásdís Sigurðardóttir segir það draum að vinna bikar með uppeldisfélaginu
KA/Þór einbeitir sér að Haukum í dag og aftur í bikarnum á miðvikudag
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Einbeitt Ásdís Sigurðardóttir í dauðafæri í leik gegn Haukum fyrr í vetur. Liðin mætast tvisvar á næstu dögum, á
Íslandsmótinu í Hafnarfirði í dag og svo aftur í undanúrslitum bikarkeppninnar í Laugardalshöll á miðvikudag.
Knattspyrnumaðurinn Hólmbert
Aron Friðjónsson fór meiddur af
velli á 22. mínútu hjá Aalesund er
liðið mætti Molde í æfingaleik í
gær. Hólmbert var borinn af velli
og er óttast að framherjinn sé með
slitið krossband. „Ég snéri illa upp
á hnéð á mér og ég vona bara það
besta,“ sagði Hólmbert við Morg-
unblaðið. Lars Bohinen, þjálfari
Aalesund, hefur miklar áhyggjur af
meiðslum Hólmberts en hann sagði
við Sunnmorsposten eftir leikinn að
Hólmbert yrði líklega ekki með á
komandi tímabili.
Hólmbert með
slitið krossband?
Ljósmynd/aafk.no/Srdan Mudrinic
Meiðsli Hólmbert Aron er líklega
alvarlega meiddur.
Ari Leifsson, sem hefur verið í
stóru hlutverki í vörn Fylkismanna
síðustu ár, er á leið til norska knatt-
spyrnuliðsins Strömsgodset frá
Drammen. Fylkir hefur samþykkt
tilboð Norðmannanna og hann á í
viðræðum við félagið um kaup og
kjör. Ari er 21 árs, lék sinn fyrsta
A-landsleik í janúar og hefur leikið
14 leiki með 21-árs landsliðinu.
Fylkir hefur hins vegar fengið til
sín Djair Parfitt-Williams, 23 ára
framherja frá Bermúda, sem kem-
ur frá Rudar í Slóveníu en var í
fjögur ár í röðum West Ham.
Ari á förum en
annar kominn
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fylkir Ari Leifsson er væntanlega á
förum til Strömsgodset.
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin:
Kórinn: HK – ÍBV .................................. L16
TM-höllin: Stjarnan – Afturelding........ L16
Ásvellir: Haukar – KA/Þór ............... L16.30
Origo-höllin: Valur – Fram.................... L17
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
TM-höllin: Stjarnan U – Fjölnir ........... L18
Origo-höllin: Valur U – Fylkir............... L19
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Ásvellir: Haukar U – Stjarnan U.......... L14
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
Origo-höllin: Valur – Grindavík ........ S18.30
MG-höllin: Stjarnan – Þór Ak........... S19.15
Blue-höllin: Keflavík – Haukar......... S19.15
Njarðtaksgryfjan: Njarðvík – KR.... S20.15
Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin:
Ásvellir: Haukar – Skallagrímur...... S17.30
1. deild karla:
Vallaskóli: Selfoss – Höttur .............. S19.15
1. deild kvenna:
Hveragerði: Hamar – Grindavík b........ L16
Sauðárkrókur: Tindastóll – Keflavík b. L16
Hertz-hellirinn: ÍR – Njarðvík.............. L16
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla, Lengjubikarinn:
Vivaldi-völlur: Grótta – Grindavík ........ L11
Skessan: Víkingur Ó. – Fjölnir.............. L12
Origo-völlur: Valur – ÍBV...................... L14
Boginn: KA – Keflavík ........................... L15
Fjarðabyggðarhöll: Leiknir F. – KR .... S13
Boginn: Þór – Þróttur R......................... S15
Boginn: Magni – Fram ........................... S17
Deildabikar kvenna, Lengjubikarinn:
Boginn: Þór/KA – Selfoss ...................... L17
ÍSHOKKÍ
Heimsmeistaramót kvenna, 2. deild B:
Akureyri: Tyrkland – Króatía ............... L10
Akureyri: Ástralía – Nýja-Sjáland .. L13.30
Akureyri: Ísland – Úkraína ................... L17
BORÐTENNIS
Íslandsmótið í borðtennis fer fram í
íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði
um helgina. Undanúrslit hefjast kl. 11 á
morgun og úrslitaleikir í einliðaleikjum
karla og kvenna kl. 14.20.
Enski boltinn á Símanum Sport
Brighton – Crystal Palace ................ L12.30
Bournemouth – Chelsea........... (mbl.is) L15
Watford – Liverpool .......................... L17.30
Everton – Manchester United............... S14
UM HELGINA!
Lengjubikar karla
A-deild, riðill 1:
Breiðablik – ÍA......................................... 7:1
Gísli Eyjólfsson 37., Alexander Helgi Sig-
urðarson 40., Thomas Mikkelsen 44., 85.,
Davíð Ingvarsson 71., Viktor Karl Einars-
son 84., 90. – Tryggvi Hrafn Haraldsson 59.
Leiknir R. – Afturelding......................... 2:1
Bjarki Aðalsteinsson 15., Shkelzen Veseli
87. – Jason Daði Svanþórsson 81.
A-deild, riðill 2:
Víkingur R. – Fylkir................................ 2:0
Óttar Magnús Karlsson 21., 28. (víti)
Lengjubikar kvenna
Stjarnan – Valur ...................................... 1:0
Helga Guðrún Kristinsdóttir 64.
England
Norwich – Leicester................................. 1:0
Evrópudeild UEFA
32ja liða úrslit, seinni leikur:
Salzburg – Eintracht Frankfurt ............. 2:2
Frankfurt áfram, 6:3 samanlagt.
Danmörk
AGF – Hobro ............................................ 0:0
Jón Dagur Þorsteinsson lék síðustu 7
mínúturnar með AGF.
Pólland
Jagiellonia – Lech Poznan ..................... 1:1
Böðvar Böðvarsson var ekki í leik-
mannahópi Jagiellonia.
Frakkland
B-deild:
Caen – Grenoble ...................................... 2:0
Kristófer Ingi Kristinsson kom inn á
sem varamaður á 67. mínútu hjá Grenoble.
Holland
B-deild:
Eindhoven – Excelsior ............................ 3:1
Elías Már Ómarsson lék allan leikinn
með Excelsior.
Belgía
B-deild:
Lommel – Roeselare................................ 0:0
Kolbeinn Þórðarson lék fyrstu 75 mín-
úturnar með Lommel.
Union St. Gilloise – Westerlo ................. 3:1
Aron Sigurðarson lék allan leikinn með
Union St. Gillouise og skoraði annað mark-
ið.
Skíðamaðurinn Hilmar Snær Örv-
arsson frá skíðadeild Víkings varð í
gær fyrstur Íslendinga til þess að
vinna sigur á Evrópumótaröð IPC í
alpagreinum. Hilmar hafði sigur í
svigkeppni og að henni lokinni var
ljóst að ekki yrði keppt í stórsvigi í
dag vegna aðstæðna.
Þar af leiðandi er Hilmar sigur-
vegari heildarstigakeppninnar á Evr-
ópumótaröðinni með gull í svigi og
silfur í stórsvigi. Hilmar, sem hefur
síðustu ár klifrað hratt upp met-
orðastigann í alpagreinum, er nú á
meðal allra fremstu fatlaðra alpa-
greinamanna í heiminum. Hilmar
skíðaði fyrri ferðina á 47,30 sek-
úndum og seinni ferðina á 51,47 sek-
úndum. Austurríkismaðurinn Thom-
as Grochar, sem var helsti keppi-
nautur Hilmars, var með forystu eftir
fyrri ferðina en féll í seinni ferðinni.
Hilmar Snær fyrsti
íslenski sigurvegarinn
AFP
Sigur Hilmar Snær Örvarsson fagnaði sigri á Evrópumótaröðinni.