Morgunblaðið - 29.02.2020, Side 42
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. FEBRÚAR 2020
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.alno.is
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Önnur hljómplata tónlistarkonunnar
GDRN, sem er listamannsnafn Guð-
rúnar Ýrar Eyfjörð, kom út í liðinni
viku og er samnefnd listakonunni,
GDRN. Guðrún heldur upp á útgáf-
una með tónleikum 3. apríl í Há-
skólabíói og mun hún koma fram
þar með hljómsveit og góðum gest-
um. Miðasala er hafin á tix.is.
Guðrún sló í gegn með fyrstu
plötu sinni, Hvað
ef, sem kom út
árið 2018 og upp-
skar vel á Ís-
lensku tónlistar-
verðlaununum
2019, hlaut þar
fern verðlaun og
m.a. sem söngkona ársins og fyrir
bestu poppplötuna. Velheppnuðum
frumburðinum er nú fylgt eftir með
ekki síðri plötu, að mati blaðamanns,
þar sem margir færir tónlistarmenn
leggja Guðrúnu lið, þeirra á meðal
söngkonurnar Sigríður Thorlacius
og Matthildur.
Meiri pælingar
Guðrún er enn í námi í Tónlistar-
skóla FÍH, nemur þar djasssöng og
píanóleik, og hvort tveggja skilar
sér á plötunni nýju. Guðrún er spurð
að því hvernig platan sé ólík þeirri
fyrri og segir hún hana ólíka að því
leyti að meira sé um lifandi hljóð-
færaleik en á fyrstu plötunni. „Í
rauninni er allt annar hljóðheimur,
hin var rafrænni og meira R&B-
skotin en þessi er djassaðri með
,„live“ hljóðfærum og textagerðin er
önnur,“ segir hún.
– Þú segir að textagerðin sé öðru-
vísi, hvernig þá?
„Mér finnst þetta vera mynd-
rænni textar, meiri pælingar á bak-
við þá en á hinni var meira verið að
tala um tilfinningar hreint út,“ svar-
ar Guðrún sem semur flestalla laga-
texta. „Ég vann þessa plötu með
Magnúsi Jóhanni Ragnarssyni og
Arnari Inga Ingasyni og þeir sjá
meira um hljóðheiminn og að pródú-
sera þetta með mér á meðan ég er í
allri textagerðinni.“
Aðdáandi Sigríðar
– Líkt og á fyrstu plötunni færðu
ýmsa gesti í heimsókn, hverjir urðu
fyrir valinu að þessu sinni og hvers
vegna?
„Matthildur er í einu laginu, mig
langaði að vinna með henni af því
mér finnst hún frábær söngkona.
Okkur langaði að prófa hvort hún
myndi ekki passa í þetta lag sem
hún syngur í sem hún svo sannar-
lega gerði. Þar er algjör djass- og
R&B-fílingur sem er rosa gaman að
fá. Svo er ég mikill aðdáandi Sigríð-
ar Thorlacius og að fá hana á plöt-
una var bara eins og að fá Beyoncé,“
segir Guðrún kímin.
„Síðan fengum við Steina úr Mo-
ses Hightower til að vera með í einu
lagi sem okkur fannst passa svo vel
við hann, þar eru dálítil Moses-áhrif.
Við vorum svo að semja lokalagið á
plötunni og þá labbar Birnir inn í
stúdíóið og finnst lagið flott, segist
vera með hugmynd og spyr hvort
hann megi syngja hana inn fyrir
okkur,“ segir Guðrún og úr varð að
Birnir syngur í lokalaginu, „Áður en
dagur rís“.
Platan var tekin upp í 101nder-
land hljóðverinu við Hlemm þar sem
útvarpsstöðin 101 er einnig til húsa
og því mikill gestagangur en í hús-
inu má finna þrjú hljóðver. „Fólk er
að kíkja inn til hinna og því er mikið
,,featuring“ í gangi,“ útskýrir Guð-
rún.
Í brunagaddi úti á Granda
– Þú nefndir Beyoncé sem er
skemmtileg tilviljun því þegar ég sá
plötuumslagið varð mér strax hugs-
að til hennar.
Guðrún hlær, tekur undir þessar
vangaveltur en segir Beyoncé-
áhrifin þó ekki hafa verið markmið í
sjálfu sér við hönnun umslagsins.
Margir hafi þó nefnt Beyoncé og
líka Jennifer Lopez í tengslum við
það. „Þessi mynd var tekin úti á
Granda í roki og fjögurra stiga
frosti,“ segir Guðrún og hlær en
eins og sjá má er hún langt frá því
að vera kuldaleg á myndinni.
Umslagið gæti verið af plötu frá
áttunda áratugnum og segir Guðrún
það hafa verið hugmyndina. „Í
hljóðheimi plötunnar er dálítill
seventís fílingur, Motown-sánd sem
við erum að vinna með, fönkí bassa-
línur sem eru svolítið seventís og við
fengum Sigga Odds til að gera þetta
letur á kóverinu. Hann hannaði
þetta þannig að þetta væri nútíma-
legt en líka svolítið seventís. Pæl-
ingin var að hafa þetta svolítið tíma-
laust en líka seventís,“ útskýrir
Guðrún.
Mömmubuxur og Buffaló-skór
– Þetta tímabil í tónlistarsögunni
virðist heilla þig og mér finnst sífellt
fleiri sækja í það?
,,Já, er þetta ekki bara eins og
tískan, fer í hringi?“ spyr Guðrún á
móti og blaðamaður segir það vissu-
lega svo. Nú megi sjá unglings-
stúlkur í svokölluðum mömmu-
buxum og Guðrún bætir um betur
og nefnir að Buffaló-skór séu komn-
ir aftur í tísku. Á minn sann! eins og
maðurinn með þverslaufuna myndi
segja.
Öllu verður tjaldað til á útgáfu-
tónleikunum og verður vel skipuð
hljómsveit Guðrúnu til fulltingis.
„Ég hef á tilfinningunni að fólk vilji
frekar hlusta en dansa,“ segir Guð-
rún og því hafi hún kosið þennan
tónleikastað þar sem gestir verði
sitjandi. Tónlistin verði þó bæði ró-
leg og dansvæn í bland.
Allt annar hljóðheimur
Nýútkomin hljómplata tónlistarkonunnar GDRN er djassaðri en sú fyrsta og textar myndrænni
Að fá Sigríði Thorlacius til liðs við sig líkt og að fá sjálfa Beyoncé í stúdíó, segir Guðrún Ýr
Ljósmynd/Axel Sigurðarson
Á Granda Tónlistarkonan vinsæla Guðrún Ýr, þekkt sem GDRN, hefur nú sent frá sér aðra sólóplötu og er hún öllu djassaðri en sú fyrsta.
Fold uppboðshús
við Rauðarárstíg
heldur listmuna-
uppboð á mánu-
daginn kemur kl.
18. Boðið verður
upp úrval verka
eftir íslenska
listamenn, alls 99
verk. Til að
mynda verða
boðin upp tvö
olíumálverk eftir Georg Guðna og
er annað stórt og metið á á tíundu
milljón króna. Þá verður boðið upp
úrval verka eftir Jóhannes S. Kjar-
val, til að mynda málverk af „Systr-
unum frá Stapa“ sem Kjarval mál-
aði um 1948. Þá verður boðið upp
afar fallegt olíuverk eftir Kristínu
Jónsdóttur sem heitir „Í Nauthóls-
vík“. Hluti uppboðsins er helgaður
skúlptúrum, meðal annars eftir Ás-
mund Sveinsson og Einar Jónsson.
Eitt verk eftir Karl Dunganon verð-
ur líka boðið upp. Verkin verða
sýnd í Fold um helgina.
Bjóða upp 99 ólík
myndlistarverk
Verk eftir Dung-
anon á uppboðinu.