Morgunblaðið - 29.02.2020, Síða 43
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Pistilritari hefur reynst, tja,missannspár í úttektum sín-um á undankeppnunum sem
hafa birst í tveimur laugardags-
blöðum (þann 8. og 15. febrúar,
nánar tiltekið). Svo ekki sé nú
meira sagt. Stundum hef ég hitt á
rétt, stundum alls ekki, eins og ég
mun reifa frekar hér á eftir. Ég hef
hlaupið sigurhring og teygað bikar
niðurlægingarinnar í botn. Nú ætla
ég að taka aðeins til í mínum ranni,
pæla þetta áfram og upp á nýtt og
spá svo um það, hver fari út til Hol-
lands fyrir okkar hönd í vor. Það er
ekkert víst að sú spá klikki.
Ég var hissa, á fyrra undan-
kvöldinu, að Kid Isak skyldi ekki
hafa farið áfram. Fannst lagið bæði
móðins og ferskt. Sagði það líklegt
til árangurs en sú spá gekk ekki
eftir. Ég hefði viljað sjá Elísabetu
Ormslev í úrslitum sannarlega, frá-
bær söngkona, en lagið var bara
ekki gott, því miður. Sjáum til að
ári. Einnig vil ég hvetja Brynju
Mary til að halda áfram, þó að hún
hafi þurft að lúta í gras í einu
stykki söngvakeppni. Það er enginn
heimsendir. Ísold og Helga og svo
Dimma fóru áfram eftir fyrsta
kvöldið, og það kom mér ekki á
óvart. Dimma er þungarokkssveit
íslenskrar alþýðu og í raun forms-
atriði að hún myndi komast áfram.
Birgir Steinn, Ragnar Már og pabbi
Birgis, Stefán Hilmarsson, gerðu
þá vel í að setja niður „sígilt“ Evr-
óvisjónlag í formi „Klukkan tifar“.
Lagið er haganlega samið, „tikkar“
Stiginn hinsti dans …
Gagnamagnið Daði Freyr og hljómsveit flytja.
í öll box og saman með útgeislun
þeirra stalla var ekki að spyrja að
leikslokum.
Hvað seinna kvöldið varðar
var ég með reffilega spádóma og
enginn þeirra gekk upp. Ef þeim er
snúið á rönguna, þá ganga þeir allir
upp hins vegar! Ég gerðist meira að
segja svo gírugur að ég réðst á
meistara Daða og lýsti lagi hans
sem soðgrýlu fyrri afreka. Örlaga-
nornirnar komu óðar með refsi-
vöndinn og okkar maður flaug inn í
úrslit. Ég stend við þá skoðun mína
að besta lag keppninnar sé „Felli-
bylur“ en hann hlaut ekki náð fyrir
eyrum Íslendinga, þó hann hafi bul-
ið hátt. Nú, mitt ótrúlega innsæi í
hlutina, eftir hartnær tuttugu ára
reynslu við poppskrif, leiddi mig að
»Hvað seinna kvöld-ið varðar var ég með
reffilega spádóma og
enginn þeirra gekk upp.
Ef þeirri grein er snúið
á rönguna, þá gengur
allt upp hins vegar.
Í kvöld verður spurt að
leikslokum í Söngva-
keppninni. Förum að-
eins yfir stöðuna af því
tilefni, endurmetum
lögin og spáum aðeins í
spilin.
þeirri niðurstöðu að „Oculis Vid-
ere“ væri holt lag, glæsilegar um-
búðir utan um ekki neitt. Aftur
fékk ég að finna fyrir því og Íva
Marín landaði sæti í úrslitum með
glans. Og, þegar ég sá hana syngja
og nam atriðið allt, skildi ég þetta
betur. Eins með Daða, sem býr yfir
þeim einstæða hæfileika að geta
stillt sjarmann á ellefu og það með
vinstri. Ég stend þó við það, að mér
fannst „Ekkó“ engan veginn
burðugt en Nína stóð sig hins vegar
með sóma og sann og það dró hana
yfir línuna. Og leiðinlegt að
reynsluboltinn Matti hafi ekki farið
áfram, mér finnst lagið gott, og
Birgir Steinn og Ragnar Már hafa
sannað sig sem nokkurs konar völ-
unda þegar kemur að dægur-
lagagerð.
OK! Hverjir fara áfram? Ég
skal segja ykkur það. Daði mun
taka þetta, og það örugglega. Ef
það verður einvígi verður það á
milli hans og Ívu. Og, hún gæti
reyndar tekið þetta, það kæmi mér
ekki á óvart, en ef þið spyrjið mig
(munið, 20 ára reynsla!) segi ég …
Daði! Góða skemmtun í kvöld, góðir
hálsar. Munið eftir bugðunum,
sódavatninu og múnderingunni …
Almyrkvi Þungarokkssveitin Dimma er höfundur og flytjandi lagsins. Oculis videre Tónlistarkonan Íva Marín flytur eigið lag og texta.
Klukkan tifar Ísold og Helga flytja lagið. Ekkó Söngkonan Nína er flytjandi lagsins.
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. FEBRÚAR 2020
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
WHAT YOU CAN’T SEE
CAN HURT YOU
ELISABETH MOSS
FEBRUARY 28
T H E
INV I S I B LE
MAN
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI Julia Louis-Dreyfus Will Ferrell
ADifferent Kind of Disaster Movie.
★★★★★
Rás 2
★★★★★
FBL
m.a.
ÓSKARSVERÐLAUN3
BESTA KVIKMYNDATAKAN
BESTA MYNDIN
m.a.
ÓSKARSVERÐLAUN4