Morgunblaðið - 29.02.2020, Side 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. FEBRÚAR 2020
Fáðu tilboð
í verkið hjá okkur
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Kristinn Sigmundsson stígur á
stokk í Salnum, Kópavogi, í dag kl.
14 og flytur hinn dáða ljóðaflokk
Vetrarferðina eftir Franz Schubert.
Anna Guðný Guðmundsdóttir situr
við flygilinn og segir í tilkynningu
frá Salnum að tónleikagestir megi
eiga von á einstökum tónleikum.
Kristinn hefur margoft flutt
Vetrarferðina en það gerði hann
fyrst fyrir 33 árum í Austurbæjar-
bíói með Jónasi Ingimundarsyni.
Síðast flutti Kristinn flokkinn í Eld-
borgarsal Hörpu árið 2011 og lék
Víkingur Heiðar Ólafsson þá með
honum.
Ljóðaflokkurinn Vetrarferðin er
með því síðasta sem Schubert samdi
á ferli sínum og er talinn vera eitt
mesta stórvirki ljóðasöngsins. Eins
og segir í tilkynningu „láta þessi lög
engan ósnortinn“.
Vetrarferðin
aldrei tvisvar eins
Í samtali líkir Kristinn því að
flytja Vetrarferðina eins og hann
hefur gert gegnum árin, aftur og aft-
ur, við fjallgöngumenn sem klífa fjöll
aftur og aftur. „Þetta er svo mikið
stórvirki,“ segir hann. „Fyrir mér er
þetta besti ljóðaflokkur sem hefur
verið saminn og hann er aldrei tvisv-
ar eins. Einhvern veginn eins og
spegillinn af því hvernig manni líður
og er breytilegur í hvert skipti sem
ég syng hann.“
Kristinn telur að sem flestir eigi
að heyra Vetrarferðina. „Þetta er
einn af toppunum í bókmenntum og
bæði er manni ljúft og skylt að flytja
þetta sem oftast,“ segir hann en
bætir við að hann syngi einnig af
eigingjörnum hvötum. „Þetta gefur
mér sjálfum svo mikið,“ segir hann.
Spurður hvort tök hans á lögum
og textum hafi breyst í tímanna rás
með ólíkum píanóleikurum svarar
Kristinn játandi. „Það eru engir
tveir píanistar eins. Maður er alltaf
eins og maður sé í nýjum fötum,“
segir hann og hlær.
„Við Jónas Ingimundarson flutt-
um þetta fyrst 1987 hér á landi og
svo í útlöndum líka. Bæði á Spáni og
í Þýskalandi. Svo hef ég sungið þetta
í Bandaríkjunum með bandarískum
píanista,“ segir Kristinn. Þá ber
hann Önnu Guðnýju sem spilar með
honum nú vel söguna. „Hún er al-
gjörlega eins og hugur manns.“
bodvarpall@mbl.is
Í nýjum fötum í hvert skipti
Kristinn Sigmundsson flytur Vetrarferðina í Salnum ásamt Önnu Guðnýju
Guðmundsdóttur píanóleikara Kristinn flutti hana fyrst fyrir 33 árum
Morgunblaðið/Kristinn
Söngvarinn „Fyrir mér er þetta besti ljóðaflokkur sem hefur verið saminn og
hann er aldrei tvisvar eins,“ segir Kristinn Sigmundsson um Vetrarferðina.
Landslag væri lítils virði … er yfir-
skrift sýningar á myndlistarverkum
sem verður opnuð í Hallsteinssal í
Safnahúsi Borgarfjarðar í dag,
laugardag, klukkan 13. Sýningin er
afrakstur samstarfs Listasafns
Borgarness og Listasafns ASÍ með
aðkomu Nýlistasafnsins.
Á sýningunni eru landslagsmyndir
úr safneign Listasafns ASÍ eftir Ás-
grím Jónsson, Jón Þorleifsson og Jón
Stefánsson, auk verks í eigu Ný-
listasafnsins eftir hollenska lista-
manninn og Íslandsvininn Douwe Jan
Bakker (1943-1997). Það ber heitið
„A Vocabulary Sculpture in the Ice-
landic Landscape“ – Þrívíddar-
orðasafn í íslensku landslagi, er frá
árunum 1976 til 7 og samanstendur
af 72 ljósmyndum af ákveðnum þátt-
um úr landslagi og jarðfræði Íslands.
Bakker kynntist fyrst íslenskum
myndlistarmönnum (SÚM-urum) í
Amsterdam um 1970. Hann tók miklu
ástfóstri við Ísland og íslenska menn-
ingu og kom margar ferðir hingað til
lands bæði til að sýna og til að vinna
hér verk. Honum var umhugað um
með hvaða hætti íslenskt landslag
endurspeglaði eitthvað sem kalla
mætti persónueinkenni íslensku þjóð-
arinnar.
Landslagsmálverkin á sýningunni,
olíumálverk og ein vatnslitamynd eru
hluti af stofngjöf Ragnars í Smára til
Listasafns ASÍ.
Ólík landslagsverk
sýnd í Borgarnesi
Listasfn ASÍ
Úr Borgarfirði Þetta málverk eftir Ásgrím Jónsson af fjallinu Strúti er á
sýningunni en það var í stofngjöf Ragnars í Smára að Listasafni ASÍ.
Þóra Sigurbjörnsdóttir, safnafræð-
ingur Hönnunarsafns Íslands, og
Grétar Þorsteinsson sem starfaði
sem húsgagnasmiður hjá Nývirki
með hönnuðinum Sveini Kjarval
(1919-1981) sjá í dag, sunnudag,
klukkan 13 um leiðsögn um sýn-
inguna í Hönnunarsafninu Sveinn
Kjarval - Það skal vanda sem lengi
á að standa. Á sýningunni er sjón-
um beint að mikilvægu brautryðj-
andastarfi Sveins hér á landi á sviði
húsgagna- og innanhússhönnunar
um tveggja áratuga skeið (1950-
1970). Allir eru velkomnir.
Fjallað um hönnun
Sveins Kjarval
Hildur Guðnadóttir tónskáld hlaut
á fimmtudagskvöldið norrænu tón-
listarverðlaunin Nordic Music
Prize fyrir tónlist sína við sjón-
varpsþættina Chernobyl sem kom
út á hljómplötu í fyrra. Verðlaunin
voru afhent með viðhöfn á tónlist-
arhátíðinni by:Larm í Ósló. Alls
voru tólf norrænar hljómplötur til-
nefndar til verðlaunanna, en auk
Hildar voru íslensku tónlistarkon-
urnar Cell 7 (Ragna Kjartansdóttir)
og Countess Malaise (Dýrfinna Be-
nita Garðarsdóttir) tilnefndar.
Verðlaunin hafa verið veitt ár-
lega frá 2011 í tengslum við
by:Larm-hátíðina og er þetta í ann-
að sinn sem íslenskur listamaður
hlýtur hnossið. Jónsi (í Sigur Rós)
hlaut verðlaunin fyrstur allra árið
2011 fyrir sólóplötu sína sem kom
út það ár.
Hildur hreppti norræn tónlistarverðlaun
Ljósmynd/Arnar Eggert Thoroddsen
Sigurvegari Hildur Guðnadóttir bak-
sviðs í Osló ásamt löndum sínum sem
kalla sig Countess Malaise og Cell 7.
Tónleikar með yfirskriftina Russi-
an Souvenir: Alexander Pushkin
verða haldnir í Kaldalóni Hörpu í
dag, laugardag, klukkan 15. Flytj-
endur á tónleikunum eru Sergei
Telenkov bassa-baritónn, Alex-
andra Chernyshova sópran, Katie
Buckley hörpuleikari og Kjartan
Valdemarsson píanóleikari.
Tónleikarnir eru þeir 27. í röð
verkefna í tónlistarmenningarbrú
milli Íslands og Rússlands sem til
var stofnað af Alexöndru Cherny-
shovu fyrir fjórum árum.
Í forgrunni á tónleikunum er hið
dáða rússneska ljóðskáld Alexand-
er Púshkin sem var uppi á 18. öld. Á
dagskrá eru til að mynda frum-
flutningur sjö rómansa við ljóð
Púshkins eftir tónskáldið Antoninu
Rostovskuju, en þær voru skrifaðar
sérstaklega fyrir Alexöndru.
Tónleikar með ljóðum eftir Púshkin
Morgunblaðið/RAX
Söngkonan Alexandra Chernyshova
mun frumflytja sjö rómönsur.