Morgunblaðið - 29.02.2020, Page 48
Tónlistarhópurinn Cauda Collective
kemur á morgun, sunnudag, kl. 16
fram á tónleikum í röðinni Sígildir
sunnudagar í Hörpu. Tónleikarnir
bera yfirskriftina „Ástarjátning“ og
tengjast verkin öll ástinni á einn
eða annað hátt. Þau eru eftir tón-
skáldin Björk Níelsdóttur, Halldór
Smárason, György Ligeti, Leoš
Janácek og Ernest Chausson.
Öll verkin fjalla um ást
á einn eða annan hátt
LAUGARDAGUR 29. FEBRÚAR 60. DAGUR ÁRSINS 2020
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.196 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Ásdís Sigurðardóttir, handknatt-
leikskona úr KA/Þór á Akureyri, á
langan feril að baki og segir að það
hafi alltaf verið draumur sinn að
vinna bikar með uppeldisfélaginu.
KA/Þór leikur í undanúrslitum bik-
arkeppninnar á miðvikudaginn.
„Þessir stóru leikir eru ástæðan fyr-
ir því að maður er að hlaupa, lyfta og
æfa allt árið,“ segir Ásdís. »41
Þess vegna er maður
að hlaupa, lyfta og æfa
Valdir kaflar úr hinu rómaða bók-
menntaverki Stílæfingar eftir Ray-
mond Queneau verða fluttir í þýð-
ingu Rutar Ingólfsdóttur í Hljóðbergi
Hannesarholts á morgun, sunnudag,
klukkan 16. Flytjendur eru leik-
ararnir Arnar Jónsson, Brynhildur
Guðjónsdóttir, Ragnheiður Stein-
dórsdóttir og Þór Tulinius. Sveinn
Einarsson er leikstjóri og milli kafla
leika Anna Guðný Guðmundsdóttir,
Einar Jóhann-
esson og Sig-
urður I.
Snorrason-
létta
skemmti-
tónlist sem
samin var
við verk-
ið.
Leikarar flytja kafla úr
rómuðum Stílæfingum
ÍÞRÓTTIR MENNING
„Listamenn sjá keppnina sem
frábært tækifæri til að koma sér á
framfæri erlendis og lögunum í spil-
un til dæmis á Spotify og YouTube,
sem getur skilað þeim talsverðum
tekjum og tækifæri til landvinninga.
En stóra málið er að taka þátt í
þessum landsleik sem söngvakeppn-
in er. Hér hjá RÚV var fyrir nokkr-
um árum ákveðið að efla keppnina
og fá fólkið í landinu með. Núna á
keppnisdegi erum við með loka-
æfingu síðdegis sem er fjölskyldu-
skemmtun og svo úrslitakeppnin
sjálf í kvöld. Báðir þessir viðburðir
eru mjög vinsælir og heilu fjölskyld-
urnar koma í höllina, sem er gam-
an,“ segir Rúnar Freyr.
Stemning á Norðurlöndum
Úrslitakeppni Eurovison verður í
Rotterdam í Hollandi 16. maí í vor
en forkeppni hennar verður dagana
10. og 12. maí og lokakvöldið er 14.
maí næstkomandi.
„Nei, það er ekkert nýtt að
söngvakeppnin sé að einhverju
marki notuð til að koma skilaboðum
á framfæri. Einhverju sinni rétt fyr-
ir 1970 sást sýrlenskum fána bregða
fyrir í sal og sjónvarpi. Þá hafa í
keppnina oft komið lög með ramm-
pólitískum textum sem er ekkert
um að segja. Listamenn hafa frelsi.
En fyrst og síðast er söngvakeppnin
þó skemmtun – og óvíða er stemn-
ingin fyrir þessum viðburði meiri en
á Norðurlöndunum og svo hafa
löndin í Austur-Evrópu komið sterk
inn á seinni árum; svo sem Albanía,
Litháen og Pólland. Þá eru Ástralar
mikið Eurovision-fólk sem hefur
mikinn áhuga á Íslandi – sem ég
held að sé gagnkvæmt,“ segir Rún-
ar Freyr að síðustu.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Söngvakeppnin hefur alltaf skipt
Íslendinga miklu máli, kannski mun
meira en aðrar þjóðir. Hér samein-
ast þjóðin, bæði um lokakeppnina
hér heima og úrslitakeppnina, og þá
mælist uppsafnað áhorf á sjón-
varpið um 70%. Meira verður það
varla,“ segir Rúnar Freyr Gíslason,
verkefnisstjóri Eurovision hjá
Ríkisútvarpinu, RÚV.
Þaulæfð atriði
Söngvakeppnin 2020 er á RÚV í
kvöld og hefst bein útsending frá
Laugardalshöll kl. 19.45. Þar ræðst
hvaða flytjendur og lag fara fyrir
Íslands hönd í Eurovision í Hol-
landi. Lögin eru Meet me halfway
með Ísold og Helgu, Daði og Gagna-
magnið flytja lagið Think about
things, Nína syngur lagið Echo, Iva
Marín kemur með lagið Oculis Vid-
ere og framlag rokkhljómsveit-
arinnar Dimmu er Almyrkvi. Tveir
síðastnefndu flytjendurnir syngja á
íslensku en hinir þrír á ensku.
Undirbúningur RÚV að Euro-
vision hefst snemma sumars ár
hvert. Línur eru lagðar, salarkynni
bókuð, tónlistarfólk ráðið til starfa
og fleira. Æfingar á sviði og fyrir
linsum myndavéla hefjast svo í jan-
úar og þar er allt lagt undir. Hver
tónn og hvert skref á sviðinu er
þaulæft og hver myndrammi sem
birtist á sjónvarpsskjám lands-
manna úthugsaður af færu fólki
sem vinnur undir stjórn Salóme
Þorkelsdóttur, sem stýrir útsend-
ingu.
Hátt undir höfði
„Hér hjá RÚV var ákveðið fyrir
nokkrum árum að gera keppninni
hærra undir höfði og það virkar vel.
Auk laganna fimm sem keppa til úr-
slita fáum við á sviðið í kvöld Hat-
ara, sigurvegara keppninnar í fyrra,
og Keiino, norsku sveitina sem
hlaut flest símaatkvæði áhorfenda í
Eurovision-söngvakeppninni í fyrra.
Þetta er frábært sjónvarpsefni og
áhugi íslensks tónlistarfólks á að
taka þátt í keppninni hefur líka auk-
ist mikið í seinni tíð,“ segir Rúnar
Freyr, sem nú stýrir Eurovison á
Íslandi í fimmta sinn.
Landsleikur í kvöld
Söngvakeppnin sameinar þjóðina Fimm lög og þrjú á
íslensku Þaulæfð útsending Tækifæri tónlistarmanna
Morgunblaðið/Eggert
Eurovision Söngvakeppnin skiptir þjóðina máli, segir Rúnar Freyr Gísla-
son sem er í aðalhlutverki við undirbúning sjónvarpsviðburðar ársins.